Leita í fréttum mbl.is
Embla

Hún á afmæli í dag....

Elsku besta og flottasta Maístjarnan mín er 11 ára gömul í dag - hver hefði trúað því að hún myndi ná 11 ára aldri, allavega ekki læknar okkar, mikið rosalega er ég þakklát fyrir að læknar okkar vita ekki allt og ég líka aðeins of glöð með að Maístjarnan mín er sú allra þrjóskasta sem ég þekki.

Tilefni dagsins fékk litla DraumaDísin okkar nafnið sitt en hún var skírð Jóhanna Ósk - Maistjarnan mín fékk að halda á henni undir skírn, Blómarósin sagði nafnið hennar og bræðurnir héldu á kerti og fengu svo að opna pakka DraumaDísinnar þannig allir voru með hlutverk í veislunni.

Yndislegur dagur að baki með okkar yndislegum ættingjum og vinum.
aslaug_1202285.jpg





















Hérna er ein af okkur mæðgunum en DraumaDísin er 13 daga á myndinni en hún er ótrúlega vær og góð.
p5209089.jpg
















Afmælisbarn dagsins - Maístjarnan mín.


Afmælissystur

62667_10200905808597701_583140826_n_1200348.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Er lífið ekki dásamlegt - afmælissysturnar að kynnast.  Ég er ótrúlega heppin ef ég fæ eitthvað að halda á henni.  Þessi litla DraumaDís er ótrúlega heppin hvað hún á mörg systkin sem eru tilbúin að gera ALLT fyrir hana - verðandi dekurrós!


DraumaDísin mætt á svæðið....

Þegar við tilkynntum krökkunum okkar það að þau ættu von á systkini og ég væri sett 13.maí sagði Blómarósin okkar strax að henni langaði að fá hana í afmælisgjöf (30.apríl) og þyrfti þá sko enga afmælisgjöf frá okkur hvað þá að fara á Fabrikkuna einsog við lofuðum henni - væri nóg að eignas litla systir á afmælisdaginn.  Ég sagði henni nú að það væri frekar ólíklegt að hún kæmi á afmælisdaginn en maður vissi samt aldrei.

Viti menn 30.04.13 kl 17.12 eftir fjagra klukkutíma hríðaverki var 15 marka stúlka og 53 cm mætt á svæðið svo Blómarósin fékk ósk sína ræsta og grét af gleði í símann þegar við hringdum í hana hálftíma eftir komu hennar og ég held að hún sé ennþá grátandi af gleði.  Þvílík drauma-afmælisgjöf!! Hún fékk samt pakka frá okkur og þurftum við að sjálfsögðu að aflýsa Fabrikku-ferðinni - fyrst að DraumaDísin okkar kom á afmælisdag hennar höfum við ákveðið að nýta afmælisdag Maístjörnu okkar 20.maí til að skíra en ekki hvað? :) 

Hérna eru allir í skýjunum með nýjasta fjölskyldumeðlimin sem er hreint út æðisleg og við foreldrarnir erum frekar heppin ef við fáum að halda eitthvað á henni - sem sagt verðandi dekurdós.
551439_10200874183567095_1812872988_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
DraumaDísin okkar á leiðinni heim af spítalanum fimm klukkutíma gömul enda ekkert í boði að hanga eitthvað á spítalanum þegar systkinin bíða spennt heima að hitta mann.


Örstutt....

Bara litlar fréttir þar sem það er svo langt síðan síðast - Maístjarnan mín er að krampa meira en venjulega, kvartar mikið undan hausverk og tryllist ef ég ætla að reyna setja teygju í hárið hennar.  Þannig ég fæ að setja lausa teygju í toppinn hennar svo hárið "flækist" ekki fyrir henni.  Annars er hún ágætlega hress, jú hún sofnar snemma flest kvöld og finnur alveg þegar hún er orðin þreytt um helgar og fer oftast undan systkinum sínum að sofa því hún finnur að orkar ekki meir.

Hún fékk að halda uppá afmælið sitt í vikunni þrátt fyrir að eiga ekki afmæli fyrr en 20.maí - þar að segja fyrir bekkjarsystur sínar og þar mættu 17 stk og hún skemmti sér aðeins of vel.  Æðislega gaman að sjá hvað bekkjarsystur hennar eru duglegar að mæta til hennar þrátt fyrir að hún er ekki að tengjast þeim neitt, þannig séð!  Ástæðan fyrir því að hún hélt afmælið sitt svona snemma er jú, konan er alveg að fara eiga og nennir ekki að vera með veislu(r) þegar hún er nýbúin að eiga nema kanski fyrir fjölskylduna þar sem Blómarósin fékk líka að halda afmælið sitt fyrr en hún á afmæli 30.apríl.

Skemmtilegur tími framundan og allir eru að springa úr spenning.....


Fallega Stjarnan mín

Fallega Maístjarnan mín um helgina:
544288_10151293524120378_749869349_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 


Hún er því miður alltaf að fá krampa öðru hvoru og það er alltaf jafn erfitt - ÞOLI EKKI þá daga.


Páskabingó Þuríðar minnar

Þuríður mín var með páskabingó á barnaspítalanum í dag og það heppnaðist ótrúlega VEL - bestu þakkir til allra sem aðstoðu okkur með að gera það svona flott.  Það fór engin tómhentur heim, að sjálfsögðu ekki.
p3258593.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Hún fær alltaf aðstoðarmann í bingóinu og í þetta sinn fékk hún hann Pétur í Bláum Opal en hann er einn af stuðningsfulltrúum í skólanum hennar og oft með hana.
p3258548.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 


Blár Opal kom líka og skemmti fyrir bingóið og hérna er Rokkarinn minn að skemmta með þeim - þvílíkur snillingur!!
p3258589.jpg





















Rokkarinn minn eftir "tónleikana" - ef hann á ekki eftir að vera skemmtikraftur þá veit ég ekki hvað.

Ætlum svo að hafa framhald á morgun og dreifa páskaeggjum um spítalann þar sem eitt fyrirtækið gaf okkur einn ks af eggjum sem við áttum að dreifa einsog Þuríður mín vildi. Bara gaman!!


Systra kærleikur

Svona sofnuðu systurnar í gærkveldi:
482499_10200579507600380_693488879_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 


Held að það sé ekki til meiri kærleikur á milli þeirra systra.
734472_10151364396739611_1775199113_n_1193634.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Sá yngsti (4 ára) tilkynnti svo systir sinni (8 ára) að honum langaði að fara læra stafina svo hún var ekki lengi að standa upp og fara í smá kennslu með honum.  Ótrúlega þolinmóð!
486405_10151364249259611_725541943_n_1193636.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 





Tveir mánuðir í lilluna okkar svo mín ákvað að grípa í prjónana og prjóna pínulítið handa henni og varð að sýna ykkur afraksturinn.

Yndisleg helgi framundan - NJÓTIÐ!!


Aðstoð óskast!!

Eftir ca þrjár vikur (25.mars) mun Þuríður mín halda bingó á leikstofunni á barnaspítalanum (fjórða árið í röð) og við erum komnar með nóg af stórum páskaeggjum í bingóið en okkur vantar ennþá ca 25-30 páskaegg nr.2 svo allir krakkarnir sem taka þátt fái en ekki bara þeir sem fá bingó (en markmiðið í bingóinu er að allir krakkarnir fari glaðir heim:)). Langar þig og þínu fyrirtæki að gefa þessi egg í bingóið? Við mæðgur yrðum rosalega þakklátar fyrir það :)

Þetta bingó gefur Þuríði minni ofsalega mikið - finnst yndislega gaman að gleðja krakkana á spítalanum. Simmi Vill og Jói hafa komið og aðstoðað hana með bingóið, presturinn uppá spítala og Sveppi Krull og núna í ár erum við með einn í huga sem við ætlum að hafa samband við sem bæði þekkir Þuríði og hún hann :)

Ef þínu fyrirtæki langar að gefa þessi egg máttu hafa samband við mig í skilaboðum eða á aslaug@vefeldhus.is.

Þess má geta að þetta er orðið stærsti viðburðurinn á leikstofunni bæði fyrir páska og jól - þetta bingó er að sjálfsögðu að kostnaðarlausu fyrir inniliggjandi börn og þau sem eru mikið á dagdeild spítalans og systkini þeirra en AÐEINS fyrir þau.
B.k.
Áslaug Ósk og Þuríður Arna.

Myglusveppir í ræktun.....

Desember 2006 fluttum við í nýja blokk - íbúð sem var sérstaklega gerð fyrir hjólastóla svo það yrði nú auðveldara fyrir okkur að koma Maístjörnunni okkar inn ef hún væri í hjólastól enda á þeim tíma var hún orðin ofsalega veik og lamaðist hægt og rólega á hægri hluta líkamans.  Við fluttum ekki í þessa íbúð vegna þess hún var stærri en íbúðinni okkar sem við áttum fyrir - við þurftum jú fyrst og fremst að komast á jarðhæð og svo voru ástæður fyrir þessu sem ég ætla ekki að tala um hér.

Fyrir tveim/þrem árum var gerð úttekt á blokkinni og það kom í ljós að það voru myglusveppir komnir í íbúðina okkar og í fleiri íbúðir í blokkinni sem verktakarnir "þóttust" laga og alltílagi með það.  

Núna blokkinn okkar 7 ára gömul og hvernig haldiði að hornin í stofunni minni sé orðinn, jú sjáið hérna:
p2168387_1192253.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 


Finnst ykkur ekki þetta geðslegt?  Við erum að sjálfsögðu að reyna vinna í því (ásamt húsfélaginu) að fá þessa verktaka hingað til að reyna laga þetta AFTUR - reyndar eru verktakarnir sem gerðu blokkina á sínum tíma farnir á hausinn og komnir með nýja kennitölu einsog flestir verktakar hér á landi.  Væri flott ef ég gæti bara gert mig gjaldþrota, fengi mér nýja kennitölu og haldið áfram með lífið einsog ekkert sé.  Það verður líka fróðlegt að sjá hvað verktakarnir gera en ef þeir gera ekki neitt þá mun eg að sjálfsögðu birta hér hverjir þetta eru en mun gefa þeim séns núna til að sjá hvað skeður. 

Maður er algjörlega ótryggður fyrir svona sveppum en væntanlega í dag á að ath hvursu eitraðir þeir eru og það verður fróðlegt að sjá.  Auðvidað er ekkert sniðugt að búa í íbúð í svona "standi" ef eitthvað af börnunum þínum er ekki með eins sterkt ónæmiskerfi og hin, reyndar skiptir það ENGU máli þetta getur bara verið "hættulegt".  Yfir svona hlutum verður maður reiður, því þú getur ekki mikið gert ef þessir sveppir væru mjög slæmir fyrir heilsuna nema jú flytja út úr íbúðinni og hvað svo?


Fréttir þriðjudagsins.

Maístjarnan mín var mætt uppá spítala kl 8:30 og kl 11:50 var hún vöknuð, búin að klæða sig, borða og við komin með fréttir frá rannsóknunum.  Jú æxlið hefur ekkert breyst síðan síðast sem eru bara góða fréttir - þannig núna verður haldið uppá það næstu fimm mánuðina eða til næstu rannsókna.  Búum okkur til eitthvað til að hlakka til og auðvidað er stærsta tilhlökkunin í byrjun maí þegar lillan okkar kemur í heiminn.  Maístjarnan mín verður að sjálfsögðu með páskabingó uppá barnaspítala eða fjórða árið í röð sem hún sér alveg sjálf um eða ég sé um að senda á fyrirtækin til að þess að "sníkja" og hún heldur bingóið sem hún ELSKAR!!  Er ekki málið að fara undirbúa sumarið líka?
559788_10200459399997765_1885802807_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 







Svona vaknar Maístjarnan mín eftir hverja svæfingu - aldrei neitt vandamál og öskrar á mat.
581201_10200459280594780_384364808_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Blómarósin okkar fékk að fylgja stóru systur á spítalann í rannsóknirnar sínar og á meðan svæfingin stóð skellti hún sér á besta staðin á spítalanum, leikstofuna og föndraði smávegis handa lillunni í maganum.
47042_10151334530899611_1516384076_n_1191731.jpg

 

 

 

 

 

 

 









Maístjarnan mín var að byrja þriðja eða fjórða árið sitt í röð á sjúkraþjálfun á hestum sem hún elskar enda mikil tilbreyting en þarna fékk Sjarmatröllið okkar að skella sér líka á bak með henni sem honum fannst heldur ekki leiðinlegt.

Núna getur konan allavega andað léttar næstu mánuði og notið þess að pirra sig yfir öllum smáhlutum sem eru að bögga hana.  Einsog ég hef oft sagt áður mun baráttu Maístjörnu minnar væntanlega aldrei ljúka en æxlið getur byrjað að vaxa á morgun - þess vegna tökum við alltaf bara nokkra mánuði í einu en hættum samt aldrei að plana hluti, mjög mikilvægt að hafa eitthvað til að hlakka til.

Þanga til næst XOXO

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband