Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

6.jan'09

Jessörí þá eru 8 dagar í næstu myndatökur hjá hetjunni minni, hef ekkert reynt að hugsa um þennan dag yfir jólin en er núna að átta mig á því að það er að líða að þessum degi.  Alveg sama hvursu hress hetjan mín er þá verður maður alltaf jafn stressuð yfir þessum degi, það t.d. bendir ekkert til þess að það sé stækkun í gangi því hún er búin að eiga sín bestu jól EVER en samt er ég öll að stressast upp.  Þetta stress hættir aldrei.  Það hefur aldrei liðið svona langur tími á milli myndataka heilir 6 mánuðir er bara algjört kraftaverk og vonandi mun líða svona langt á milli næstu myndataka.

Annars erum ég og börnin mín fjögur heima, að sjálfsögðu voru hin tvö látin vera í fríi í leikskólanum um jólin þannig það er bara búið að vera tjill hjá okkur í dag.  Erum reyndar að horfa á Gosa í annað sinn hehe þau elska þennan disk sem þau fengu nota bene í jólagjöf en Skari þurfti að fara í vinnuna en bara tveir vinnudagar eftir hjá honum en þá ætlar minn maður að skreppa í mánaðarfæðingarorlof en það er í fyrsta sinn sem hann fer í FÆÐINGARORLOF, ótrúlegt en SATT.  Ákváðum að leyfa okkur það fyrst að þetta á að vera okkar síðasta barn þanga til annað kemur í ljós hehe eða árið 2010 og svo styttist óðum í skírnardaginn hjá hnoðra mínum en samt ekki búin að finna nafn á drenginn.  Hvað er málið?  Við erum búin að hafa ansi langan tíma að ákveða nafnið en finnum samt ekkert, dóóhh!!  Well verðum að vera búin að finna það fyrir 17.jan þegar Séra Pálmi ætlar að skíra hann og litlu músina hennar Oddnýjar systir.

Best að halda áfram að gera ekki neitt og kanski við börnin kíkjum útí göngutúr með hnoðra litla sem fékk að sitja í Dorrit fangi á Styrktartónleikunum, ekki amalegt að geta sagt honum það þegar hann eldist.


Fyrsti jólin hennar Þuríðar minnar....

....sem hún hefur getað notið í botn en samt er stúlkan sex og hálfs árs gömul.  Hún hefur sýnt allt sem öll börn sýna á þessum hátíðardögum sem er í fyrsta sinn á hennar ævi, hún er búin að vera hrikalega spennt, naut sín í botn að opna gjafir sínar og það var alveg sama hvað var í pökkunum þá kættist hún yfir því öllu.  Mamman á heimilinu var glöðust yfir því hvað börnin fengu mikið af fötum þessi jólin enda að vaxa uppúr þeim öllum og þá þarf að versla minna af þeim á útsölunum, jíííhhaaaa!!  Þuríður mín var samt spenntust yfir pakkanum sem hún gaf foreldrum sínum eða það sem hún föndraði í skólanum sínum, hún hélt fast utan um pakkan allan þann tíma sem við borðuðum og svo var hún alltaf að reyna laumast að opna hann hehe.  Var svo stollt af gjöfinni sinni sem var bara gaman að sjá og við líka ótrúlega  hamingjusöm með gjöfina hennar eða þeirra allra og það sem hin gerðu í leikskólanum.

Það er alveg ótrúlegt hvað það gefur manni mikið að horfa á börnin sín opna gjafir sínar,ég þarf sko engar gjafir það er nóg að sjá börnin sín glöð.  Ég fékk samt nokkrar og get farið í mollið eftir áramót og keypt mér föt fyrir gjafabréfin mín, reyndar ætla ég ekki að gera það fyrr en ég er orðin ánægðari með sjálfan mig eftir meðgönguna.Whistling

Annars er bara náttfatadagur hjá okkur fjölskyldunni í dag, Oddný Erla mín er reyndar að máta öll fötin sín sem hún fékk í jólagjöf, hin tvö eru bara að leika saman og hnoðrinn minn liggur í mömmukoti sem er bara yndislegast.  Á morgun eru það styrktartónleikarnir sem við Skari ætlum að sjálfsögðu að mæta á ásamt hnoðranum mínum sem verður bara með velvarin eyru.  Hlakka mikið til.  Svo fer alveg að líða að uppáhalds degi Þuríðar minnar sem eru áramótin sem ég er reyndar líka spennt fyrir.Sideways

Ætla halda áfram að horfa á möndluvinninginn minn sem er Ladda-dvd, fyrsta sinn sem ég vinn þá gjöf. Jabbadabbadú.


Gleðileg jól!!

Kæru lesendur.

Við fjölskyldan viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.  Takk fyrir stuðninginn sem þið hafið veitt okkur í gegnum bloggið.  Ég trúi ekki öðru en árið mun byrja jafn vel hjá okkur og það stefnir í að enda en hetjan mín mun byrja árið að fara í myndatökurnar sínar.
PC065746
Hérna eru gullmolarnir mínir, ég er þokkalega ríkust!!

Vill minna ykkur á, að það eru ennþá til nokkrir miðar á styrktartónleikana í Háskólabíó 27.des.  Styrkið gott málefni, hnoðrinn minn ætlar sko að mæta á svæðið.Wink

Allir orðnir spenntir á heimilinu fyrir morgundeginum, lofaði perlunni minni að ná í þau systkin snemma í leikskólann í dag og hún er ö-a að telja niður mínúturnar þanga til ég kem hehe.  Er að reyna mana mig að skreppa aðeins í kringluna með Þuríði og hnoðrann áður en ég næ í hin, verst að það er ekki hægt að skreppa þangað á þessum tíma.  Dóóhh!!  Held að ég nái ekki að mana mig í þetta, bwaaahh!!  Einsog mig langar að eyða gjafabréfinu mínu sem ég á og kaupa mér rauða kjólinn sem ég var búin að sjáInLove, úffhhh það er bara klikkun þarna.

Vávh mér líður einsog litlu barni að bíða eftir jólunum, hlakka svo mikið til því börnin mín eru svo spennt að opna pakka og svona ekki það að ég fái marga pakka hehe en þá lifir maður sig inní börnin sín í staðin.

Vonandi eigi þið yndisleg jól, við ætlum allavega að njóta þeirra hérna í sveitinni.  Loksins ALLIR hressir og kátir!!
Knús í hús!!


Skoppa, Skrítla og Lúsí

Óskar skrifar.

Í gær fékk ég þann heiður að fara með börnin mín á sérstaka hátíðarsýningu á nýrri bíómynd um þær vinkonur Skoppu og Skrítlu.  Ég verð að viðurkenna að ég var smá kvíðinn þar sem ég var að fara einn með þrjú börn 6 ára og yngri og hafa þau blessuð ekki alltaf verið þekkt fyrir að láta segja sér mikið fyrir verkum.

En allavegana þá vorum við komin í bíóið og þar tóku þær á móti gestum Skoppa og Skrítla og einnig var með þeim hún Lúsí en að þessu sinni er að það Vigdís nokkur Gunnarsdóttir sem fer með hlutverk hinnar sísofandi Lúsí.  Fyrir þá sem ekki vita þá er Vigdís þessi þekktust fyrir það á mínu heimili fyrir að fara með hlutverk Höllu Hrekkjusvín í Latabæ.  Sem slík er hún ein af allra bestu vinkonum Þuríðar og hefur oftar en ekki komið í heimsókn til okkar og eru þær (hún og Þuríður) einstakar vinkonur. 

En þær voru þarna semsagt og móttökurnar voru náttúrulega bara frábærar.  Þessar konur eru hreinlega einstakar og sína börnum okkar svo mikla hlýju og það sem meira og merkilegra er – þær sýna þeim einstaka virðingu.  Þuríður, Oddný og Theodór voru virkilega glöð að sjá þessi idol sín og það var mikið knúsast.

En því næst var komið að því að kaupa sígildar bíóveigar og bað ég börnin um að koma á eftir mér í röðina svo við gætum gengið frá því máli.  Frá þeirri stundu og allt þar til heim var komið að sýningu lokinni var eins og um einhver önnur börn en mín eigin væri að ræða.  Ég ákvað að gefa þeim séns á að sýna hvað þau gætu verið góð og þau nýttu það svo sannarlega til fulls.  Ég þurfti engan að leiða og ég þurfti ekki að reka á eftir neinum, þau gengu í beinni röð á eftir mér, krókaleiðir inn í bíósalinn, biðu svo fyrir aftan mig á meðan ég gerði sætin klár fyrir þau, sátu svo stjörf á meðan á myndinni sjálfri stóð og gengu svo í fallegri röð á eftir mér út úr bíóinu og alla leið út í bíl.  Ég verð að viðurkenna að ég var hálf klökkur yfir því hvað þessi yndi stóðu sig vel en þó fyrst og fremst stoltur af því hvað þau voru ólýsanlega góð og auðveld.  Það var einhvernvegin eins og þau hafi fundið að ég væri að gefa þeim alvöru séns og að þetta yrði kannski bara ekkert skemmtileg ef eitthvert þeirra yrði með vesen – þau ákváðu bara sjálf að þetta ætti að vera auðvelt og skemmtilegt og var frammistaða þeirra einfaldlega einstök.

Skoppa og Skrítla fá stóra rós í hnappagatið fyrir frábæra mynd.  Börnin sátu stjörf yfir henni frá upphafi til enda og nutu hverrar mínútur, alltaf eitthvað fjör eða áhugavert í gangi.  Lúsí fær svo að sjálfsögðu prik í kladdann. 

Að endingu sendi ég þeim Lindu, Hrefnu og Vigdísi bestu kveðjur fyrir að vera alltaf til staðar fyrir börnin mín.  Þið eigið heiður skilinn fyrir að búa til frábært skemmtiefni fyrir börn.

Kær kveðja


Stefnir í góð jól :)

Ég  er búin að hugsa mikið um síðustu jól eða hvernig þau hafa verið hjá okkur síðustu fjögur árin eða síðan hetjan mín veiktist og ég myndi ljúga því ef ég myndi segja að þau hafa verið auðveld. 

Jólin árið 2004 voru frekar erfið jól en það voru jólin sem hetjan mín veiktist, hún var uppdópuð af lyfjum öll jólin og krampaði endalaust mikið.  Við vorum heima yfir aðfangadag en mig minnir að það hafi verið annan í jólum sem það þurfti að leggja hana inn með sterk lyf í æð því hún hætti ekki að krampa þessi elska og fengum svo að fara aftur heim á gamlárs.  Þá var líka ákveðið að kaupa gommu af flugeldum handa hetjunni minni enda eeeeeelskar hún flugelda, hefur aldrei verið hrædd við þessi ljós og læti.  Gamlárs er ö-a skemmtilegasti dagur hennar á árinu.

Jólin 2005 vorum við nýkomin frá Boston en þar fór hetjan mín aðgerð sem gerði því miður ekki mikið fyrir hana, kramparnir versnuðu tífalt og voru ca 10-50 á dag og í framhaldinu átti hún að fara í lyfjameðferð á nýju ári.  Það var frekar erfitt að horfa uppá hana þessi jól, á aðfangadag voru kramparnir mjög slæmir og nutum að sjálfsögðu ekki dagsins þannig séð.  En þegar við fórum að opna gjafirnar var ofsalega skrýtið þá hætti stúlkan að krampari  og byrjaði svo aftur þegar þeirri törn lauk.

Jólin 2006 vorum við nýbúin að fá þær fréttir að hetjan mín væri komin með illkynja heilaæxli og ætti nokkra mánuði ólifaða.  Hún var rosalega veik þessi jólin, að sjálfsögðu síkrampandi, algjörlega lömuð hægra megin á líkamanum og kláraði fyrri geislameðferð sína á Þorlák. 

Jólin 2007 var reyndar hetjan mín hætt að krampa, búin að ljúka tveimur geislameðferðum því æxlið var búið að stækka svo mikið.  Var byrjuð í svokallaðri töflumeðferð en var látin hætta í henni í janúar þar sem hún var með stanslausan hita frá lok nóv til byrjun febrúar.  Hún var hætt að nærast á þessum tíma og farin að líta út einsog anorexíusjúklingur.

Jólin 2008 sem eru að skella á er hún ótrúlega hress og kát.  Þið myndið ekki trúa því ef þið hefðuð séð hana fyrir ca ári síðan að þetta væri sama stúlkan.  Þroskinn sem hún hefur tekið er alveg hreint út ótrúlegur, ég er svakalega stollt af þessari stelpu.  Það sem sagt stefnir í frábær jól hjá Þuríði minni þetta árið sem er fyrsta sinn síðan hún veiktist og ég get ekki beðið eftir þeim.  Það er líka alveg yndislega gaman að við erum orðin sex manna fjölskylda þessi jólin þannig það verða engin rólegheit hjá okkur sem verður ennþá skemmtilegra.  Oh mæ god hvað ég verð bara spenntari og spenntari, það er svoooo stutt í þetta allt saman.  Get heldur ekki beðið eftir áramótunum og að sjálfsögðu ætti maður að kaupa gommu af flugeldum þetta árið til að fagna heilsu hetju minnar og gleðja hana en hin tvö (sem hafa orðið vit fyrir þessu eheh) eru alveg skíthrædd við lætin.
PC206148
Hérna eru þær systur, krökkunum í Styrktarfélaginu var boðið á Eldsmiðjuna í gær (slurp ótrúlega góðar pizzur) og svo var jólaball fyrir krakkana á eftir sem þau skemmtu sér alveg frábærlega vel á.
PC206336
Smá hræðslu svipur á Theodóri mínum enda alveg skíthræddur við Sveinka þannig það kom okkur mikið á óvart að drengurinn vildi setjast hjá honum einsog hann er mikill nagli fyrir.
PC186003
Hnoðrinn minn á leiðinni á jólaballið hjá SKB

Vitiði það ef við værum ekki búin að "lenda" í þessu með Þurðíði mína, að horfa uppá hana berjast fyrir lífi sínu það væri maður ö-a grenjandi meira yfir ástandinu í þessu þjóðfélagi.  Heilsan er það sem skiptir mestu máli og við ættum að vera þakklát fyrir okkar heilsu hitt er "aukaatriði".

Eigið góðan dag.


Ég á mér uppáhalds flík

Uppáhalds flíkin mín er kápan mín sem ég fékk frá Skara mínum í jólagjöf fyrir nokkrum árum en það er einn "galli" með hana eða kanski mig hehe en ég get eiginlega aldrei notað hana almennilega því ég er "alltaf" ólétt eða með barn á brjóst.Whistling  Sko málið er núna þegar ég var ólétt af hnoðra mínum þá gekk ég í kápunni minni sem er ekki frásögufærandi en þá gat ég bara hneppt henni yfir brjóstinn en ekki yfir bumbuna sem er náttúrlega ekkert skrýtið.  Núna Þegar ég er búin að eiga hnoðrann minn þá get ég hneppt yfir magann en ekki brjóstinn því ég lít út einsog Dolly Parton mhohoho!!  Þannig kápan mín fær aldrei að njóta sín þannig séð og mér er alltaf kalt einhversstaðar á líkamanum því aldrei get ég hneppt henni almennilega.  Dóóhh!!Shocking  Spurning hvort ég get kanski notað hana næsta haust og hneppt ÖLLUM tölum? 

Það er brjálað að gera hjá okkur fjölskyldunni, ég myndi ekki bjóða í það ef ég hefði átt að kaupa allar jólagjafirnar í des því þá þyrfti ég ansi marga auka tíma í sólarhringinn, sem betur fer er ég ALLTAF það skipulögð að ég dreifi jólagjafakaupunum yfir árið því einsog ástandið er í dag veit ég ekki hvort ég hefði meikað það?  Ég er bara snillingur, fór meir að segja á Toys'rus útsöluna áður en allt hækkaði þar um 100% og keypti handa krökkunum mínum, ohh það er svoooo gott að vera ég.Halo

Við krakkarnir sendum Skara í að kaupa jólatréð í gærkveldi sem er kanski ekki frásögufærandi en fyrir nokkrum árum sendi ég líka hann einan og hann kom með stærsta tréð sem var til í búðinni og þá hét ég því að ekki senda hann einan aftur en núna var ekkert annað í boði.  Viti menn Skari kom AFTUR með stærsta tréð í búðinni hahaha!!  Well spurning hvort jólaskrautið okkar dugi á tréð, oh boy!!  Reyndar elska ég stór tré en stofan okkar er nú ekkert hægt að hrópa húrra fyrir en hverjum er ekki sama, jólin eru bara 1x á ári og við ELSKUM jólin en verst að pakkarnir munu týnast undir trénu.  Eins gott að mamma og pabbi komi með marga pakka með sér en þau verða með okkur, bara gaman!!  Oh god hvað ég er orðin spennt að sjá börnin mín yfir hátíðirnar, þau eru líka svoooo spennt. 

Krakkarnir eru búin að fara á tvö jólaböll en það þriðja er á morgun hjá Styrktarfélaginu, litli naglinn minn hann Theodór er alveg skíthræddur við sveinka einsog hann getur verið mikill gaur og mikill töffari en þegar það kemur að sveinka þá snappast hann.  Greyjið litli!!  Við fórum einmitt á jólaball í skólanum hjá Þuríði minni í gær og það var svo gaman að fylgjast með henni en hún þekkir hálfan skólann, heilsaði og knúsaði aðra hverja manneskju sem labbaði framhjá okkur.  Hún var svo glöð að hitta alla og náttúrlega allir glaðir að hitta hana en ekki hvað?  Það er ekki annað hægt en að vera glöð innan hetjuna mína, lífið er svo skemmtilegt hjá henni að hálfa væri miklu meir en nóg.  Bara gott og gaman!!

Útskrift í dag, oh mæ god!!  Loksins komið að henni og að sjálfsögðu fór ég annað sinn á þessu ári og verslaði mér eina flík fyrir hana (ok tvær).  Ég bara varð ástfangin um leið og ég sá flíkina, mjög flott fyrir konur sem líta út einsog Dolly Parton.  Þuríður mín er líka komin í jólafrí og finnst ekki leiðinlegt að tjilla bara ein með mömmu sinni og hnoðra litla sem hún dýrkar og elskar að sýna fólki hann sem ég geri að sjálfsögðu líka enda bara flottastur.

Well hnoðrinn minn farin að kalla á Dollyjarnar, eigið góða helgi. Mín mun pottþétt verða góð og mjög upptekin ALLA helgina sem er bara gott.  Knús í hús!!


Ég bara varð...

.....að birta þessa mynd, þessi drengur verður bara fallegri og fallegri með hverjum deginum sem líður.
PC135977
Bara flottastur!!

Fór áðan og kíkti á músina hennar systir minnar, oh mæ hún er svo mikil mús hehe!!  Hún er svo lítil og nett, verður gaman að sjá frændsystkinin saman.


Til hamingju Oddný og Sammi

Mig langar að óska minni yndislegu systir og hennar manni honum Samma innilega til hamingju með litlu stelpuna sína en þau voru að eignast stelpu númer tvö í gærkveldi.  Litla músin þeirra var 13 merkur og 50.5cm þannig hún mun komast inní hnoðrann minn núna hehe.  Að sjálfsögðu mun ég kíkja á þau í kvöld en þar sem hún var tekin með keisara er þetta svo strangt að ég þarf alveg að bíða til fimm að sjá hana, damn!!  Well ég hlýt að lifa það af Wink Verst bara að stærri músin þeirra hún Eva má ekki koma þangað og kíkja á litlu systir.

Allir í stuði hérna á heimilinu, Þuríður mín er bara að meika áa það. Flotti húmoristinn minn sem er farin að segja við mig þegar hún vill ekki hlusta á mig þá segist hún ekki heyra í mér ehhe!!  Hnoðrinn dafnar og dafnar, eeelskar rjómann sinn.  Oddný mín Erla átti ofsalega erfitt í fyrrinótt þegar hnoðrinn minn grét svona líka sárum grátum sem var mér að kenna en honum var illt í mallanum sínum ö-a vegna þess ég fékk mér eitt sem ég"mátti" ekki fá mér þannig hún grét líka með honum.  Ég ákvað að prufa að fá mér eitt að borða því með hin börnin mátti ég borða allt og drekka allt án þess að þau fengju í magann en hnoðrinn minn er viðkvæmari í maga þannig það verður ekki gert aftur.  Theodór minn kemur sífellt á óvart en samt ekki, um daginn settist hann hjá afa Hinrik með uppáhalds bókina sína Stafabókina og þuldi upp ALLA stafina í bókinni án þess að við vissum að hann kunni þá alla ehhe.  Alveg ótrúlegur!!  ÞEssi börn mín hehe ohhh þau eru svo æðisleg!!Whistling

Tíminn líður alltof hratt, alveg að koma jól og mér finnst ég ótrúlega bissí samt búin að gera allt fyrir jólin nema þrífa og kaupa gjöfina hans Skara sem ég er nú ekkert að stressa mig á.  Skólinn búinn og útskriftin á föstudag, pantaði prestinn og kirkjuna í gær fyrir 17.jan Víííí!!  Samt ekki búin að finna nafn á drenginn en haaaalllóóó ég hef mánuð það hlýtur að takast að finna nafn fyrir þann dag.
PC100047
Sætur tærnar hans hnoðra mín þegar hann var í vigtun í síðustu viku, hlakka til þegar hann fer aftur á fimmtudaginn.

Knús í hús.


Yndislegur karakter

Þuríður mín er alveg frábær karakter, hún er ótrúlega skemmtileg, á svo auðvelt með að bræða alla sem kynnast henni og þessi stúlka veit alveg hvað hún vill sem kom sérstaklega í ljós í gær þegar hún fékk fund með skólastjóranum og aðstoðarskólastjóra í skólanum sínum hehe.

Allir bekkirnir í skólanum hennar fengu fund með þeim í gær og áttu að koma öllu á framfæri sem þeim fannst þurfa að bæta og alls sem tilheyrir skólanum.  Auðvidað hafði Þuríður mín skoðun á sumum hlutum og var búin að ákveða að kvarta undan ákveðnum hlut sem hún vildi láta bæta.  Nefnilega deginum á undan fundinum varð hún frekar fúl yfir því að það voru ekki til nógu margar mandarínur handa sér til að borða eheh.  Þannig hún ákvað að kvarta við skólastjórann og aðstoðar vegna þess máls sem hún að sjálfsögðu gerði hehe.  Ég veit ekki alveg hvernig var tekið í þessa kvörtun en ég geri ráð fyrir því að framvegis verða til nógu margar mandarínur á boðstólnum handa henni Þuríði minni.  Hún er bara flottust!!

Ég var annars að fatta að það stefnir í fyrstu jólin hennar Þuríðar minnar síðan hún veiktist að hún verði bara spræk þessi jólin, oh mæ god bara yndislegast!  Hún hefur síðustu fjögur jól verið mjög veik en er svona sprellandi hress sem er best í heimi og auðvidað ætlum við að njóta þess í botn, hún er líka svo spennt fyrir öllu og hvað þá núna í kvöld þegar sveinki mætir á svæðið.  Oddný Erla mín sagðist nú ætla að halda sér vakandi heh því hún ætlar að sjá sveinka setja í skóinn og ætlar svo að skrifa bréf til hans og segja hvað þeim öllum krökkunum langar í jólagjöf.  Jebbs það getur stúlkan.

Hnoðrinn minn er ótrúlega vær og góður, finnst lang skemmtilegast að borða enda búinn að þyngjast um hálft kg núna á átta dögum.  Allavega ekki hægt að segja að ég sé að svelta drenginn hehe farinn að fá smá kinnar, bara flottastur!!

Mín er búin að fá fjórar einkunnir af fimm, stefnan var sett á að fá ekki lægra en sjö og auðvidað hef ég staðist það þó svo að það verða engar tíur þessa önnina en er samt eldhress með þær sem ég hef fengið og bara einkunn fyrir lokaritgerðina eftir að koma.  Ég hef líka ákveðið að ég ætla að halda áfram í námi eftir áramót sem er framhald af þessu sem ég var í, mun taka fjórar greinar og hef svo möguleika að taka sjö greinar önnina þar á eftir.  Úúúfffhh en það er þá bara til að útskrifast einni önn fyrr sem verður bara lítil kökusneið eða jámm.... en það hef ég ákveðið bara einsog þjóðfélagið er í dag og þá verð ég líka orðin "eitthvað" þegar ég get farið aftur á vinnumarkaðinn enda ekki búin að vera á honum síðan hetjan mín veiktist.  Aaaaaalltof langt síðan.

Ætla núna að leggjast með tærnar útí loftið eða þanga til hnoðrinn minn vaknar og heimtar rjómann sinn því hin þrjú eru sofnuð og verða ö-a vöknuð kl fimm í fyrramálið til að sjá hvað sveinki gaf þeim í skóinn.


Jólagjöfin í ár

VON – HOPE – SPES

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur hafið sölu hálsmena í fjáröflunarskyni. Hálsmenin eru með áletruninni VON á þremur tungumálum (íslensku, ensku og latínu) og fást bæði í silfri og stáli (grófari fyrir herra).

Í Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna er hópur fólks sem hefur staðið í þeim sporum að glíma við veikindi með vonina að vopni – vonina um að lífið komist í réttar skorður á ný – vonina um að veikt barn nái heilsu og fjölskyldan öll muni eiga sínar ljúfu stundir á ný.

SKB langar til að færa þjóðinni von og gefa henni um leið tækifæri til að hjálpa félagsmönnum að halda í sína von. Í því skyni eru þessi táknrænu hálsmen boðin til sölu. Verði er stillt í hóf en silfurmen kostar aðeins 4.000 krónur og stálmen 3.500 krónur. Menin eru seld á heimasíðu Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, www.skb.is og í síma 588-7555. Boðið er upp á heimsendingu.

Íslenska þjóðin er á krossgötum. Margir standa frammi fyrir því að þurfa að breyta lífsstíl sínum og forgangsraða upp á nýtt. Í þeirri óvissu sem framundan er skiptir miklu máli að missa aldrei vonina um að komast út úr erfiðleikunum og lífið komist í fastar skorður á ný. 

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Markmiðið með stofnun SKB var að gæta hagsmuna krabbameinssjúkra barna og aðstandenda þeirra á ýmsum sviðum. Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi.  Íslenskir læknar og hjúkrunarfólk eru mjög framarlega á sínu sviði og batahorfur barna með krabbamein góðar hér á landi.

Mynd af kvennmannshálsmeninu.
halsmen


Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband