Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011

"Áslaug, þú ferð aldrei of oft til læknis"

"Áslaug, þú ferð aldrei of oft til læknis, ég er svo feginn að þú ert komin, þú hefðir ekki mátt koma seinna þess vegna verð ég að troða þér inná milli í næstu viku í "aðgerð".  Þetta fékk ég að heyra þegar ég mætti til míns húðsjúkdómslæknis til 18 ára ekki fyrir svo löngu.  Þegar ég kom til hans, var varla búin að klæða mig úr buxunum og sýna honum lærið mitt þá heyrist í mínum manni "þetta er ljótur blettur, ég hef áhyggjur af honum". 

Í frekar langan tíma (kanski tvö ár) hef ég séð fæðingarblett á lærinu mínu sem ég hef alveg haft áhyggjur af, ég hef séð hann breytast í frekar ljótan blett en það var bara eitthvað annað ofar á mínum forgangslista sem ég vildi frekar sinna.  Það er líka svo dýrt að fara til læknis að ég var heldur ekki að tíma því það er að sjálfsögðu margir í þeirri stöðu  þeir hreinlega "tíma" ekki að fara til læknis eða hafa hreinlega bara ekki efni á því, þetta er ekkert gefins.

Ég var ekkert að segja neinum frá þessum áhyggjum mínum, ég veit ef ég hefði gert það þá hefði ég verið send beinustu leið til doktors Jóns en ég vildi heldur ekkert láta neinn hafa neinar "óþarfa" áhyggjur.  Í byrjun maí var ég samt farin að hafa meiri áhyggjur en venjulega af þessum ljóta bletti en geymdi það samt í nokkra daga að hringja og panta tíma og hugsaði líka "æji það tekur svo langan tíma að fá tíma svo nokkrir dagar/vikur til eða frá skipta ekki svo miklu máli" en ákvað svo að hringja.  Ég átti að fá tíma á ákveðnum degi sem er eftir nokkra mánuði (fáránlegt hvað það eru langar biðir hjá þessum læknum) og var náttúrlega ekkert viss hvort ég kæmist þá en svo sá konan á símanum að það datt einn út sama dag og ég fékk þann tíma.  Doktor Jón hafði miklar áhyggjur af þessum bletti svo ég fékk "aðgerðar" tíma inná milli kúnna hjá honum þó svo það var ekkert laust því hann vildi ekki bíða mikið lengur að taka hann. 

19.maí fór ég og lét taka af mér tvo ljóta fæðingarbletti, annar þeirrra var mjög svo ljótur, svartur og mislitur inní sem eru að sjálfsögðu þeirra allra hættulegustu.  Ég lýg því ekki en þetta var ógeðslega vont en hugsaði allan tíman til Maístjörnu minnar sem hefur gengið í  miklu miklu verra svo ég reyndi ekki að kveinka mér(ekki mikið allavega).  Fyrir helgi var mér farið að verkja mjög svo mikið í saumana (vont að labba) á lærinu svo ég ákvað að senda tölvupóst á doktor Jón sem vildi fá mig strax á staðinn og þá var komin mikil sýking í saumana, mín komin á sýklalyf og saumarnir teknir þó svo sárið var ekki farið að gróa almennilega.  Þannig ég VERÐ að taka því rólega næstu daga svo það rifni ekki upp sárið.

Þegar ég mætti til doktors Jóns í gær þá tilkynnti hann mér það að það væru frumubreytingar í blettinum á lærinu, það var einsog hann hefði slegið mig.  "En Áslaug, ég hélt að þetta væri miklu miklu verra en það, þú hefðir ekki mátt koma seinna, ég er svo feginn að þú komst".  Stelpurnar mínar voru með mér svo ég varð að halda höfði, fannst það bara nógu slæmt að vera með frumubreytingar.  Ég var eftir að fara í apótekið og það var ofsalega erfitt því ég átti svo erfitt með að halda grátinum inni, fór útí bíl og reyndi aðeins að róa mig þar sem þetta var ekki "dauðadómur".  Heyrði í Skara, man ekki einu sinni hvort það var ég sem hringdi í hann eða hann í  mig, lét hann vita að það væri mikil sýking og ætlaði svo bara að kveðja því mig langaði ekki að fara gráta en svo kom það "en Áslaug var ekkert komið úr ræktuninni?".  Þá fossuðust tárin út, "æji afhverju varstu að spurja mig?" tautaði ég.

Já ég var heppin að þetta var ekki orðið af sortuæxli en með þessari "sögu" vil ég benda fólki á ljósabekkina sem eru stórhættulegir sem ég notaði of mikið þegar ég var yngri en mun ALDREI nokkurn tíman nota aftur, ALDREI!!  Ég mun líka passa mig mun betur í sólinni, mig langar að sjá börnin mín verða stór, giftast, mennta sig, sjá Maístjörnuna mína verða heilbrigða, verða amma og svo lengi ég mætti telja.  Þess vegna er ég líka svo fegin að ég ákvað loksins verða af því að fara til doktors Jóns sem er sá ALLRA ALLRA besti í sínum bransa.  Þetta kenndi mér líka að ég á að fara til læknis þegar/ef ég hef áhyggjur af einhverju þess vegna ákvað ég líka um daginn að fara til annars konar læknis því ég er í öðrum áhættuhóp og er í rannsóknum útaf því.  Einsog doktor Jón sagði þá "förum við aldrei of oft til læknis" en þeir eru bara svo FJANDI dýrir að það eru ekki allir sem hafa efni á þeim því verr og miður.  Einsog "bara" þessar læknaheimsóknir til doktor Jóns eru komnar yfir tuttugu kallinn.

Þetta kenndi mér líka það að ég VERÐ líka að hugsa aðeins meira um sjálfan mig, ég elska börnin mín, mann og fjölskyldu meira en allt og mig langar að vera með þeim þanga til ég verð níræð hundleiðing kerling.  Ég er samt ofsalega dofin eftir að ég fékk þessar fréttir, var eitthvað svo máttlaus í gær og leið ömurlega sem ég reyndar geri en því að fá sortuæxli (sem mitt var ekki orðið) er hættulegasta krabbamein sem þú getur fengið og það vill ENIGN fá það. Jú það verður að fylgjast aðeins betur með öllum blettum hjá mér sem ég geri svo sannarlega og ætla að láta doktor Jón fá leið á mér, því ég ætla að mæta svo oft til hans.

MUNIÐ bara að við förum aldrei of oft til læknis og gefum SKÍT í ljósabekki.


Hefuru áhuga á kjúklingaréttum?

Ég elska að elda þá helst nýja kjúklingarétti og það geri ég á hverjum einasta föstudegi fyrir fjölskylduna og þá helst alltaf nýjan rétt í hvert skipti.  Oft koma börnin með tilhögur af einhverjum rétti sem ég hef gert og þá gerum við hann að sjálfsögðu "aftur".  Oft hefur mig skort hugmyndaflugið eða orðið uppskroppa með hugmyndir þá hefur mig vantað svona síðu einsog ég var að stofna á face-inu, ef þér finnst gaman að gera kjúklingarétti þá geturu "like-að" "föstudags-kjúklingaréttir Áslaugar" og fengið hugmyndir af góðum réttum.  En þar ætla ég að birta alla þá bestu og okkar uppáhalds rétti fjölskyldunnar. 

Ég hef reyndar átt mér þann draum að búa til kjúklingarétta-bók og láta allan ágóðan renna til Maístjörnu minnar þar sem hún mun aldrei geta tryggt sig vegna sinna veikinda í framtíðinni.  Kanski mun sá draumur rætast einn daginn??

Endilega "like-ið" ef ykkur finnst kjúklingur góðurGrin.

254029_132713966806682_132713156806763_227349_7793776_n
Hérna er ég að smakka mexíkönsku-kjúklingasúpuna mína í einu barnaafmælinu sem ég hef haldið.


Að mínu mati...

....á ég flottasta fótboltastrákinn sem var að keppa á VÍS fótboltamótinu í dag.  Það er GULL-drengurinn Theodór Ingi verðandi Arsenal-maður (segir hann) og sem ætlar að enda feril sinn hjá KR en ekki hvað?  Ætlar að gleðja afa sinn Hinrik í ellinni reyndar líka þegar hann fer í Arsenal.  Að sjálfsögðu skoraði hann endalaust mörg mörk en hann átti sér tvö markmið en það var að skora á móti KR og auðvidað varð afi Hinrik (KR-ingur) að sjá það sem og hann gerði (tvö mörk) og skora fyrir Lindu sína (systir ömmu Oddný) þegar hún var að horfa og auðvidað gerði hann það líka.  Litli snillingurinn minn sem ég er endalaust stollt af. 

Hérna eru nokkrar frá deginum:
P5288652 [1280x768]
Tilbúinn að fara keppa.
P5288668 [1280x768]
Ooooooog það var maaaaark!!
P5288676 [1280x768]
Maður átti stundum erfitt með að standa í lappirnar.


Þakklát fyrir svo margt...

Maístjarnan mín er búin að tala mikið um það síðustu daga hvað henni langar mikið að fara í fimleikana sína aftur þar sem hún hefur ekkert geta stundað þá eftir áramót vegna sinna veikinda.  Á æfingum sínum hefur hún verið með aðstoðarmanneskju með sér þar sem hún kanski meikar ekki allt á æfingunum, er með styttri þolinmæði en hinar stelpurnar og svo er úthaldið kanski ekki það besta á svæðinu og þá er gott að geta farið aðeins útur hópnum og hvílt sig.  Frábærir þjálfarar sem hún hefur verið með sem eru tilbúnir að gera ALLT fyrir hana svona án gríns þá hef ég ekki kynnst öðrum eins stelpum, þetta eru ungar stelpur og gefa ofsalega mikið af sér.  Komu í heimsókn til Maístjörnu minnar í kringum jólin þegar hún var mjög slöpp, með gjafir handa henni frá þeim, kveðjur skrifaðar á blað frá stelpunum í hópnum og mynd af þeim öllum saman með flottri jólakveðju.  Þetta gladdi mína Maístjörnu endalaust mikið, að sjá hvað allar stelpurnar í hópnum og þjálfararnir hugsuðu fallega til hennar þó svo það hefði verið nóg fyrir hana að fá eitt knús.

Þessi sami hópur hefur verið að æfa í allan vetur og núna ætla þær að hittast svona í lok annar og fara saman útað borða og minni hetju boðið með, þið getið ekki ímyndað ykkur gleðina sem skein af henni þegar ég tilkynnti henni það í vikunni að hún fengi að hitta fimleika-stelpurnar á laugardaginn.  Þó svo hún hafi ekkert getað verið með í vetur þá er hún sko ekki gleymd og fær að vera með í "partýinu".  Þegar ég sagði henni frá hittingnum þá fór hún að sjálfsögðu að tala aftur um fimleikaæfingar sínar sem henni langar svo að komast á, fara keppa einsog blómarósin mín sem er mjög skiljanlegt þar sem hún lítur mikið upp til hennar.

Ég get alveg viðurkennt það þá treysti ég ekki hverjum sem er að hugsa um Maístjörnuna mína þess vegna spurði ég annan þjálfarann hvort hún yrði með á fimleika-sumarnámskeiðinu í sumar þar sem hún þarf alveg manneskju á sig (og þjálfarinn þekkir orðin ágætlega inná hana) því það er hennar draumur að komast á eitt stk námskeið og jú keppa en það er víst ekki í boði.  Nei var svarið hjá þjálfaranum ENN hún ætlaði samt að kanna það hjá okkar frábæra fimleikafélagi ÁRMANNI hvort hún mætti sjá um hana á einu námskeiðinu og viti menn það var sko ekkert mál svo Maístjarnan mín fær sinn draum uppfylltan með frábæra aðstoðarmanneskju með sér.  Ég er mjög þakklát fimleikafélaginu ÁRMANNI sem gerir þetta fyrir hana því auðvidað er þetta ekkert sjálfsagt og auðvidað hennar þjálfara að vilja taka þetta verkefni að sér þó svo það hefði ekkert verið á dagsskránni hjá henni.  TAKK TAKK TAKK!! 

Maístjarnan mín á sér marga drauma og þetta var einn af þeim sem mun rætast og ég er ofsalega glöð fyrir hennar hönd.  Nei hún getur ekki gert sömu hluti (langt í frá) og stelpurnar sem eru að æfa með henni (vegna sinna veikinda) sem eru allar heilbrigðar en hún lætur það sko ekki stoppa sig, GETA ÆTLA SKAL!!  ...og þeim dettur heldur ekki í hug að gera grín af henni eða hlæja ef hún getur ekki einföldustu hluti þær aðstoða hana frekar ef eitthvað er.

Svo loksins getur Maístjarnan mín farið að nota fína og flotta fimleikabolinn sinn sem hún fékk í jólagjöf frá jólasveininum í Hafnarfirði síðustu jól sem er reyndar kominn ofan í tösku og bíður eftir notkun.  Þegar ég sagði henni það í gær að hún kæmist á fimleikanámskeið í sumar var hún ekki lengi að finna tösku og fína fimleikabolinn sinn.  Yndislegust!!  Svo sáum við líka í gær þegar við vorum að ná í Blómarósina okkar að það er verið að selja flottar fimleikavörur í félaginu þeirra systra svo ég spurði hana hvort hún vildi kaupa sér eittthvað fallegt fyrir afmælispeningana sína og hún var ekki lengi að svara því JÁTANDI.Heart  Á morgun ætlum við að velja eitthvað sætt handa henni.

Já ég er ofsalega þakklát fyrir öllu þessa flotta fólki sem hefur raðast í kringum okkur þá sérstaklega Maístjörnuna mína, við erum heppin!  Ég vil líka þakka "leynda aðdáandanum" (einsog stóð á pakkanum) í útlandinu sem sendi þetta flotta föndur handa henni, hún var ekki lengi að byrja föndra hálsmen á dúkkuna sína Ósk.  Utan á pakkanum stóð "Maístjarna Óskarsdóttir"Grin.  KÆRAR ÞAKKIR!!


Fyrirmynd barnanna minna

Desember síðastliðin sá ég hvað börnin mín ljómuðu þegar ég mætti einn daginn heim með rauða kjólinn sem ég ætlaði að klæðast á aðfangadag, það var einsog þau hefðu unnið í lottói ljóminn var svo mikill og gleði skein svona líka af þeim, þau voru svo stollt af mömmu sinni að hafa keypt sér kjól, já það þarf ekki mikið til að gleðja þau.  En það gerist mesta lagi ca 4x á ári að ég kaupi mér flík, ég hef bara ekki haft neina löngun í það, bara þægilegt að klæðast joggaranum sem getur að sjálfsögðu verið "stórhættulegt" fyrir auka kg sem hlaðast á mann við það án þess að vera var við það. 

Fólki finnst oft alveg ótrúlegt að maður fer að safna auka kg þegar barnið manns veikist einsog Maístjarnan mín,maður á frekar að missa þau við allar áhyggjurnar (finnst mörgum) sem hlaðast á mann en nei það hefur allavega ekki verið svoleiðis hjá mér og mörgum öðrum mömmum sem ég þekki til.  Það er bara auðvelt að grípa sér eitthvað óhollt sérstaklega þegar maður er staddur á spítalanum og maður er ekkert sérstaklega mikið að hugsa um eitthvað annað en að nærast, hugsa um veika barnið sitt og öll hin.  Manns eigin líðan skiptir ofsalega litlu máli í svona aðstöðu eða hún hefur allavega verið frekar neðarlega hjá mér síðastliðin ár hvað þá að reyna gera mig fína og sæta, klæðast öllum fínu kjólunum, mála mig, fara í klippingu og strípur eða þess háttar.  Gæti ekki verið meira sama. 

ENN mér á að vera sama, ég er fyrirmynd barnanna minna og sjá viðbrögð þeirra fyrir jólin síðastliðnum fór ég líka að hugsa minn gang.  Svo ég get hugsað vel um alla englana mína verður mér að líða vel, ég var orðin ótrúlega kvalin í líkamanum vegna gigtar, kom mér varla uppúr sófanum, hvað þá að gera eitthvað af viti inná heimilinu og andlega líðan var komin langt niður.  Ég var lengi að reyna ákveða mig hvað ég ætti að gera fyrir mig svo mér færi að líða betur jú að lokum fann ég mér þennan flotta einkaþjálfara einsog ég hef sagt einhverri færslunni minni sem kostar ekki hálfan handlegg einsog margur gerir. 

Í mars eða réttara sagt 19.mars breyttist minn lífstíll og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mín líðan hefur breyst mikið.  Ég finn varla fyrir gigtinni, mér finnst ekki lengur erfitt að gera einföldustu hluti jú einsog að skúra t.d., mataræðið mitt hefur breyst, drekk mikið vatn, borða mikið af ávöxtum og halda mig frá namminu er ekkert svo erfitt.  Plús það er ég búin að losa mig við nokkur kg en ég er með markmið sem ég ætla að ná um jólin svo ég hef 215 daga til stefnu og þá ætla ég að verðlauna mig með fleiri en einum kjól og EKKI svörtum einsog flest fötin mín eru.

Já ég er fyrirmynd barnanna minna og þarf að "haga" mér þannig, fyrir þau að horfa á mömmu sína líða illa bætir ekki líðan þeirra.  Þess vegna ákvað ég að breyta um lífstíl, þó svo ég sé ennþá í joggaranum þá líður mér miklu miklu betur á líkama og sál en ég tími heldur ekki að kaupa mér föt þessar vikurnar því ég ætla mér að losna við fleiri kg áður en það gerist.  Ég er hjá einkaþjálfara 3x í viku og er meir að segja farin að labba upp Esjuna en stefnan er sett ALLAVEGA einu sinni í viku í sumar og annað skipti sem ég fór hana hljóp ég niður sem ég hélt að ég gæti ekki vegna grindarinnar minnar en ég gjörsamlega sveif niður mér leið svo vel og fann ekki fyrir neinu í grindinni.  Þegar ég var komin niður hefði mig langað að hlaupa aðra svona ferð en lét þetta samt duga.  Bara yndisleg tilfinning!  Það er alveg ótrúlegt hvað hreyfing gerir mikið fyrir mann sem ég hef reyndar ALLTAF vitað en bara aldrei komið mér almennilega í gang því það hefur oftast verið eitthvað annað mikilvægara í forgang en ég VERÐ að hugsa um mig líka ef ég vil vera til staðar fyrir litlu snillingana mína sem þarfnast mín.  Því BARA að mamma þeirra kaupir sér kjól og finni sig aðeins til gleður þau endalaust mikið.

Ég hef ekki hugmynd hvernig næstu mánuðir verða hjá Maístjörnunni minni sem er reyndar ofsalega þreytt þessa dagana eða þegar "gammageislarnir" eru hættir að vinna sína vinnu þá verð ég líka að vera heil heilsu til að geta sinnt henni og hinum en ég vona bara svo heitt og innilega að þeir geri sitt og stoppi vöxtinn á þessum fjanda.  Vávh hvað hún er annars farin að þrá frí og ég get ekki beðið með þegar þær systur eru komnar í frí frá skólanum og við förum að "vinna" í matjurtagarðinum okkar og svo er ég líka búin að lofa litlu mömmupungsunum mínum að þeir verði aldrei eitthvað lengi á leikskólanum á daginn því okkur langar að njóta sumarsins saman.

Slaugan sem er búin að losa sig við 4kg síðan 19.mars en stefnan sett miklu hærra.


Á meðan fæturnir bera mig

Fyrir hönd Þuríðar minnar vil ég þakka fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið senduð henni/mér tilefni dagsins á föstudaginn en hún átti æðislegan afmælisdag. 

En mig langar að benda ykkur á skemmtilegt verkefni sem verður í gangi í byrjun júní http://www.mfbm.is/ en það var fjallað um það í sunnudagsmogganum núna um helgina.  Í stuttu máli þá ætla tvenn hjón (önnur þeirra í SKB-Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna) að hlaupa hringinn í kringum landið á 15 dögum til styrktar SKB. 

Meðan fæturnir bera mig er verkefni sem er helgað öllum börnum sem hafa greinst með krabbamein á Íslandi. Hlaupararnir vilja samt sem áður tileinka einu barni hvern dag sem hlaupið er. Þetta eru börn sem hafa snert hlauparana á einn eða annan hátt. 

9.júní munu þau tileinka Maístjörnunni minni en það er dagurinn sem hetjan mín fer í rannsóknirnar sínar.  Endilega styrkið þetta flotta verkefni þeirra en allur ágóðinn rennur einsog ég sagði beint til SKB. 

Vil svo bara ljúka færsluna mína á flottustu töffurum ever eða þeim Hinrik Erni og Theodór Inga en hún var tekin af þeim í gær 21.05.11.
IMG_4558
Þeir geta ekki verið "venjulegir" á myndum þessi snillingar :)


Hún á afmæli í dag....

Elsku bestasta og flottasta Þuríður Arna mín er 9 ára í dag. Heart

Þuríður Arna mín er sú sem ég lít mest upp til, hún er þvílíkur nagli, endalaust fyndin, mikill húmoristi, dýrkar og dáir systkin sín, hún samgleðst ÖLLUM ef vel gengur hjá þeim, finnur til með þeim sem líður illa, elskar að "rífast" við afa sinn Hinrik, stendur með sínu fólki, elskar að vera innan um krakka, að gefast upp er ekki til í hennar orðabók og hún er sú ALLRA ALLRA skemmtilegasta og fallegasta 9 ára stelpa sem ég þekki.  Systkin þín eru líka óendanlega stollt af þér.

Elsku bestasta og flottasta Maístjarnan mín hjartanlegar hamingjuóskir með daginn, sem fékk þvílíka draumavinkvenna-afmæli á miðvikudaginn.  Varst bingó-stjóri og stjórnaðir því svona líka vel enda ekki við neinu öðru að búast.  Þú  hefur gengið í gegnum alltof erfiða hluti í gegnum ævina og ég ætla rétt að vona að þú þurfir ekki að upplifa neitt meira slæmt um ævina þú átt svo miklu meira betur skilið.

Ég veit að þú og Blómarósin okkar eigið eftir að skemmta ykkur endalaust vel í veislunni sem þið fáið í kvöld. Grin Elskum þig MEST í heimi.
P5188351 [1280x768]
Hérna er ein af hópnum sem mættu í veisluna til Maístjörnunnar minnar, þetta eru bekkjarsystur og nágrannar.  Ég er að segja ykkur það hún HEPPNUST í heimi að eiga svona góða að.  Þessar stelpur hafa ALDREI strítt henni, gert grín af henni vegna steranna (þegar útlit hennar breyttist mjög hratt en auðvidað brá þeim mikið), í tímum fær hún sína athygli (í tjáningu) og aldrei dettur þeim í hug að hlæja að henni ef hún kemur ekki orðunum rétt "útur sér".  Við gætum ekki hugsað okkur betri bekkjarfélaga eða vinkonur, flottastar!!
P8012247 [1280x768]
Hérna eru þær systur í Stokkhólmi síðasta sumar eða þegar Maístjarnan mín lagðist undir "gamma"hnífinn og auðvidað breyttum við leiðinlegri og erfiðri ferð í skemmtilega og kíktum í tívolíið en hún er rosaleg tívolí"kerling".  Besti í heimi að vera með henni í tívolíið og heyra hana skella uppúr og garga af spenning.
P6109154 [1280x768]
Í gegnum veikindin sín hefur hún kynnst ofsalega skemmtilegu, góðu fólki með yndislega sál sem eru alltaf tilbúin að leyfa henni að hitta sig bara að henni líði sem best.  En leikonan Vigdís gunnarsdóttir sem leikur t.d. hana Höllu Hrekkjusvín hefur veitt Þuríði minni mikla athygli eða alveg síðan í nóv'05.

Já afmælisbarnið hefur kennt okkur hinum hvað heilsan er okkur mikilvæg og að horfa alltaf á björtu hliðarnar í lífinu þó svo það sé stundum erfitt.


Nokkrar tilefni dagsins :)

Krökkunum mínum fannst Eurovision einstaklega skemmtilegt og hérna er ein góð af Theodóri mínum sem fagnaði hverju stigi sem við Íslendingarnir fengu:
P5148104
Þeim öllum finnst rosalega gaman að fara í Hetjulund verðandi hvíldarheimili Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og leggja sitt af mörkum einsog þið sjáið á myndunum:
230084_215660165129223_131349653560275_744924_4703060_n
Blómarósin mín góð með borinn.
226688_215419508486622_131349653560275_742753_1443832_n
Theodór minn mjög einbeittur með hamarinn.

Eigið yndislegan dag en ég ætla að eyða honum í undirbúning fyrir bekkjar- og vinkvennaafmæli Maístjörnu minnar sem verður haldið á morgun og hún gæti ekki verið spenntari.


Maístjarnan mín

Maístjarnan mín er ofsalega heppin þrátt fyrir hennar veikindi og miklu þroskahömlun.  Hún á erfitt með að tengjast krökkum á hennar aldri en þrátt fyrir það þá á hún ofsalega góða verndarengla í skólanum sem gera allt fyrir hana þá meina ég ALLT.  Þessar stelpur eru ári eldri en hún og leyfa henni að vera með í ÖLLU sem þær gera, þær reyna láta henni líða eins vel og hægt er, þær eru duglegar að knúsa hana, spjalla við hana, leyfa henni að vera með í snú snú í fríminútum þrátt fyrir að hún getur ekki mikið hoppað, þær gleðjast með henni ef hún gerir einhverjar hluti sem hún er ekki vön að geta.  Einsog um daginn þegar hún ætlaði að fara í sinn fyrsta heila dag í skólanum síðan frá því í byrjun des þá frétti ég að ein af þessum frábærum stelpum tilkynntu mömmu sinni það kvöldið áður að "á morgun yrði merkisdagur í lífi Þuríðar" ....mamma skyldi nú ekki afhverju "jú því þá ætlaði hún að vera heilan dag í skólanum".  Já þær gleðjast með henni í öllu sem hún gerir og getur annars aðstoða þær hana bara og þessar stelpur mega vera stolltar af sjálfum sér.  Henni var boðið í afmæli í vikunni hjá tveimur af þessum stelpum sem er ekkert sjálfgefið hvað þá hjá bekkjarsystrum hennar enda fannst henni það þvílíkur draumur í dós og skemmti sér svona líka vel. 
Myndin sem ég ætla að birta lýsir því einmitt BEST hvernig þessar stelpur eru við hetjuna mína en afmælið var haldið í Nauthólsvík, þar skelltu stelpurnar sér í pottinn, ráku tærnar í sjóinn, grilluðu og fleira skemmtilegt.
P5117916 [1280x768]
Ég elska þessa mynd, finnst hún ofsalega falleg og lýsir þessum stúlkum svo VEL.

Maístjörnunni minni líður ofsalega vel þessar vikurnar, hún er að meika'ða í sjúkraþjálfuninni, krampar minna en venjulega þó svo það koma dagar þegar hún krampar nokkra daga í röð.  Hún bíður mjög spennt fyrir því að komast í sumarfrí enda vorum við mæðgur að panta okkur matjurtagarð (20fm) þar sem við ætlum að rækta okkar eigið grænmeti og hafa gaman af.  Blómarósin okkar verður að sjálfsögðu líka eitthvað með okkur eða þegar hún verður ekki á æfingum sem verða ansi strembnar í júní/ágúst eða alla daga vikunnar, þrjá tíma í senn.  Já loksins finnum við fyrir spenning fyrir sumrinu þó svo við erum nett stressuð fyrir 9.júní eða þegar hún fer í rannsóknirnar sínar þess vegna er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa það skemmtilegt þanga til og finna okkkur eitthvað til að hlakka til.

Spennandi helgi framundan, eigið góða helgi öll sömul.
XOXO


Töffararnir mínir

Langaði að koma með nokkrar myndir af aðal töffurum mínum (fyrir utan Óskar að sjálfsögðuWink) sem eru í aðlögun á nýjum leikskóla(Óskar er sko ekki í aðlögunW00t), komnir í "sveita"leikskólann okkar.  Þetta er dáltið erfitt fyrir mömmuhjartað þar sem eldri töffarinn ældi af kvíða í gærmorgun þegar hann átti að fara, saknar vinanna svo mikið og sá yngri grenjar "ég ekki fara í nýjan leikskóla".  En ég veit að þeir verða sáttir eftir ekki svo langan tíma "góðir hlutir gerast hægt".

Fyrr í vikunni fóru töffararnir með elsta töffaranum á heimilinu í Hetjulund sem er verðandi hvíldarheimili Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, rosalega flott og verður vonandi vígt eftir ekki svo langan tíma þökk sé fólkinu í landinu að þetta hvíldarheimili varð að veruleika.  Við getum ekki beðið með að fara þangað og hvíla okkur aðeins og eiga góðan og notanlega tíma saman.  En hérna eru nokkrar frá þeim degi sem var æðislegur fyrir gaurana mína:
P5097759 [1280x768]
Theodór minn mjög einbeittur í gröfuvinnunni en hann fékk að hjálpa til með jarðveginn svo það sé hægt að fara gera pallinn.  Þetta fannst honum BEST og SKEMMTILEGAST í heimi, þarf ekki mikið til að gleðja 5 ára gaur og töffara.
P5097760 [1280x768]
Svo var það nestis-tími í góða veðrinu, enda þurfa vinnumenn að fá smá pásu inná milli en í baksýn sjáiði Hetjulund sem er að verða stór glæsilegur.
P5097764 [1280x768]
Hinrik minn Örn var meira fyrir það að slappa af í þessari ferð, kom ekki of nálægt gröfunni eða vinnumönnunum.

Bara flottur dagur hjá strákunum mínum sem er bara byrjun á góðu sumri, næst á dagsskrá er að finna einhverja sveit sem við getum séð litlu lömbinGrin.

Eigið góðan dag en dagurinn í dag byrjar yndislega en Blómarósin mín á von á 13 fimleika-vinkonum í smá partý í dag og svo er alveg að koma að Maístjörnu-partýi.Joyful


Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband