Leita í fréttum mbl.is

Yfirlit okt'04-feb'10

Okt'04 greindist Þuríður Arna mín með góðkynja heilaæxli og illvígaflogaveiki.

Des'04 var hún "uppdópuð" af lyfjum til að halda krömpunum niðri en ekkert gekk, það átti að fara svæfa hana og halda henni sofandi í einhverja daga til að ath hvort kramparnir minnkuðu ekki við það en sem betur fer var ekki þörf fyrir það.

Nóv'05 var ákveðið að senda hana til Boston í aðgerð því kramparnir voru orðnir yfir 50 á daginn en því miður gekk sú aðgerð ekki einsog læknarnir vildu.  Það var hægt að fjarlægja hluta af æxlinu en þar sem það er við hreyfi- og málstöðvar var það ekki áhættunnar virði.

Jan'06 Var ákveðið að stúlkan færi í 80 vikna krabbameinsmeðferð en það var allt gert í samráði við læknana okkar í Boston.

Júní'06 Voru komnar einhverjar breytingar í æxlið hjá henni og þá var ákveðið að herða lyfjameðferð og lengja hana aðeins.

Okt'06 Var æxlið búið að stækka mjög mikið og skilgreint sem illkynja.  Hún var að verða algjörlega lömuð hægra megin og kramparnir 10-50 á dag.  Hún var látin hætta í lyfjameðferð því einsog læknarnir sögðu þá mundi hún ekkert gera fyrir hana, frekar leyfa henna að eyða síðustu mánuði góða sem hún átti eftir.

Des'06 Við ákváðum ekki að gefast upp sama hvað læknarnir sögðu og í samráði við þá höfðum við samband við okkar lækna í Boston og þeir mældu líka með því að hún hætti í lyfjameðferð en vildu að hún fengi 10 geisla strax í des en það var ekki til að lækna bara til að lengja tíman hennar með okkur.  En eftir ár átti hún að fá seinni tíu geislana þar að segja ef hún hefði verið meðal okkar.

Feb'07  Hætti Þuríður Arna mín að krampa og það var ótrúlegt kraftaverk en þá halda læknarnir að geislarnir hefðu hitt akkurat á þann stað sem þeir "áttu" að hitta á.  (...og hefur ekki krampað síðan)

Júní'07 Var æxlið farið að stækka aftur og ákveðið var ekki lengur með seinni tíu geislana og þá fékk hún í júlí sem hún átti að fá í des.

Nóv'07-mars'08 var hún nánast útur heiminum vegna "næringaskorts" og hita.  Hún var með hita "stanslaust" í þrjá mánuði og læknarnir vissu aldrei afhverju það var.  Hún átti að fara fá slöngu í magann til að fá næringu en sem betur fer hresstist hún og fór að borða sjálf.  Á þessum tíma átti var hún líka byrjuð í svokallaðri töflumeðferð sem var líka til að lengja tíman hennar með okkur en hætti fljótlega því það fór svo illa í hana.

Apríl'08 fór Þuríður mín í myndatökur og ótrúlegt kraftaverk gerðist, jú æxlið hafði minnkað um helming og margir læknar sem sáu þær myndi og höfðu séð þær "gömlu" héldu að hún hefði farið í aðgerð á milli en neinei, kraftaverkin voru að byrja.

Júlí'08 Fór hún aftur í myndatökur og æxlið var ennþá að minnka, lungun hennar voru reyndar slæm á þessum tíma og hún var á fullu á sýklalyfjum í æð.

Sept'08 Var byrjað að minnka flogalyfin hennar Þuríðar minnar enda fjórar tegundir og bönns af hverri tegund.

Jan'09 Voru teknar myndir af æxlinu og það heldur áfram að minnka og áframhaldandi minnkun af flogalyfjunum.

Ágúst'09 Fór hún í myndatökur og æxlið stóð í stað frá síðustu myndatökum en næstu myndatökur verða nk. maí og að sjálfsögðu ætlumst við til þess að það haldi áfram að minnka en ekki hvað.

Feb'10 Er Þuríður Arna á einu flogalyfi, búin að skila hjólastólnum, hætt að nota kerruna sína því hún hefur alveg krafta til að labba langar leiðir.  Eftir næstu myndatökur er stefnan sett á að láta taka "brunninn" hennar eða þar sem öll lyf og blóðprufur hafa verið teknar enda lítið sem ekkert notaður.

JÁ einsog oft áður hef ég sagt þá gerast KRAFTAVERKIN.  ALDREI að hætta trúa.  Það er ALLTAF von.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er alveg ótrúlegt - og engin orð fá lýst baráttuvilja ykkar allra.

Guð geymi ykkur og passi.

I.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 19:13

2 identicon

já það er hægt að sagja það kraftaverkin gerast og það er aðdáðunarvert hvað þið eruð dugleg og strek fjolskilda

knus á ykkur 

Tota Helga (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 19:54

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Já HETJAN MIKLA er FURÐUVERK sem og KRAFTAVERK:):)Og á einstaka fjölskyldu sér við hlið stóra sem smáa sem trúir og berst fram í rauðan.....með henni...

STÓRT KNÚS...með miklum kærleik frá Halldóri...

Halldór Jóhannsson, 9.2.2010 kl. 20:55

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur :O)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.2.2010 kl. 21:13

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þetta er ótrúleg færsla og í raun upptalning á köldum staðreyndum málsins. Á bak við þessa upptalningu er mikil og flókin saga fjölskyldu sem hefur farið gegnum mikinn tilfinningalegan rússíbana. Við höfum fengið að kíkja inn í rússíbanann í gegnum færslurnar þínar hér á síðunni.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.2.2010 kl. 22:54

6 identicon

Þetta er nánast eins og lygasaga og þvílíkt kraftaverk að þið fáið að upplifa slíka sögu.  Til hamingju segi ég bara, með flottu stelpuna ykkar og öll hin auðvitað líka.

Dísa (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 23:08

7 identicon

Yndislegt alveg :)

Gyða (ókunnug (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 23:16

8 identicon

Yndislegt.  Kærleikskveðja til ykkar allra.

Þorgerður (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 10:07

9 identicon

Þetta er náttúrulega bara dásemdin ein að vera í þeirri stöðu sem þið eruð í í dag, og þá meina ég miðað við það sem á undan er gengið og þær spár sem ykkur voruð gefnar.
Þið eruð  eitt STÓRT KRAFTAVERK!!!
Kv. frá DK

Begga Kn. (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 10:13

10 Smámynd: Ragnheiður

Ótrúleg hetjusaga og dásamlegt að lesa þetta. Kær kveðja og knús til ykkar flotta fólk

Ragnheiður , 10.2.2010 kl. 17:14

11 identicon

Yndislegt alveg, fékk bara tárin í augun :)

Þóra (IP-tala skráð) 11.2.2010 kl. 08:27

12 identicon

Alveg ótrúlegt! Samt þegar ég les þetta í gegn þá sé ég hvað tíminn hefur liðið ótrúlega hratt!!! Það eru að verða komin 6 ár síðan ÞA greindist!!!!! Og stúlkan bara rétt að verða 8 ára á árinu!!! Vá hvað hún er dugleg og þið öll!

Þetta sýnir það og sannar að á meðan er VON og TRÚ þá er allt hægt og allt getur gerst!

Súsanna (IP-tala skráð) 15.2.2010 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband