Leita í fréttum mbl.is

Datt af baki

Þuríður Arna mín var í sjúkraþjálfuninni sinni í gær sem er á hestum og stúlkan datt af baki, datt aftur fyrir sig og beint á bakið en meiddist ekkert.  Fékk dáltið sjokk, skiljanlega en ég held samt að þjálfarinn hafi verið í meira sjokki.  Svona lagað getur að sjálfsögðu alltaf gerst og sem er fyrir mestu að Þuríður Arna mín meiddist ekkert og vildi strax fara á bak eftir að hún var búin að jafna sig. 

Núna er það ekkert annað en harkan sex hjá mér en ég er búin að fá það staðfest á öðru en einhverju flóknu læknamáli, alveg ótrúlegt hvað læknar þurfa að tala einhverja "kínversku" við mann þegar þeir eru að útskýra hvað er að manni.  En ég er með mikla slitgigt í mjöðmunum og brjóskið farið að eyðast, jú svo er eitthvað bogið og beyglað við bakið og rófubeinið.  Ég er búin að fara einu sinni í sprautur til að lina verkina (sprautað á tveimur stöðum) og svo fer ég aftur á laugardaginn og þá verður sprautað í einhverja staði í bakinu.  Vávh hvað ég hugsaði mikið til Þuríðar minnar þegar ég fékk fyrri sprauturnar, þetta var ógeðslega vont og mín "vælandi" einsog lítið barn en hvað hefur hetjan mín þurft að þola?  Uuuuuu þetta var lítið sandkorn af öllu sem hún hefur þurft að þola þannig ég vorkenndi mér ekkert, þó svo ég sé búin að vera hrikalega kvalin alla síðustu viku og á tonn af verkjalyfjum sem á víst að fylgja eftir þetta en jú ég er mannleg og hef tilfinningar.  Núna verð ég bara að vera ennþá duglegri í minni endurhæfingu og gera allt sem ég get gert til að lina verkina og stefnan að láta þetta "hverfa" fyrir haustið.  ....sjúkraþjálfun og hreyfing.

Þuríður Arna mín mun hitta hluta af "teyminu" okkar í lok mánaðarins og þá ætlum við einmitt að biðja um myndatökur í maí.

Að sjálfsögðu gengur vel í skólanum og meir að segja búin að landa einni tíu og svo áttu, skil samt ekki alveg hvernig ég náði áttunni þar sem ég sat sárkvalin í prófinu nýbúin í sprautum en það er bara GÆSIN tekin á þetta (GETA, ÆTLA, SKAL).

Núna er það bara harkan, þarf víst að skila bönns af verkefnum áður en ég fer í sprauturnar á laugardag (jebbs á laugardag, þessi læknar fá bara skurðstofuna um helgar).  Þá er líka gott að eiga svona yndislega rólegan og góðan strák einsog Hinrik minn sem situr bara á gólfinu heilu klukkutímana og leikur sér en getur líka setið heilu og hálfu klukkutímana í mömmufangi hehe.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ekki er ég hissa þo sjúkraþjálfaranum hafi brugðið mikið þegar Þuríður datt af baki. Það hefur einhver ósýnileg hönd tekið af henni fallið. Mikið ert þú orðin slitin kona, (slitin á Norsku er sama og þreytt) mér fannst mjög fyndið þegar dóttur dóttir mín sem þá var 4 ára, talaði um að hún væri svo slitin. Þetta er heimikið alvörumál að fá svona gigt og vera svona kornung eins og þú.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.2.2010 kl. 02:27

2 identicon

Kærleikskveðja til fjölskyldunnar og gangi þér vel  Álslaug mín.

Þorgerður (IP-tala skráð) 13.2.2010 kl. 20:23

3 identicon

bara lang flottust börnin ykkar og þið hjónin líka :-)

Auður (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband