Leita í fréttum mbl.is

Hvers á hún að gjalda?

Þuríður Arna mín elskar að hreyfa sig, hún elskar nánast flestar íþróttir og þarf á mikilli örvun á að halda.  Hún þarf að æfa fín- og grófhreyfingar þar sem hún kemur ekkert ofsalega vel útur því "prófi".  T.d. í haust langaði henni svo að fara æfa fimleika þannig ég fór að sjálfsögðu fyrst í fimleikafélagið (þar sem systkinin hennar æfa) og langaði að koma henni að þar en fékk það bara í hausinn að það væri ekki í boði fyrir hana að æfa hjá þeim, jú vegna þess hún þarf á smá stuðning á að halda og ég vill heldur ekki setja hana í hóp með heilbrigðum börnum svo henni finnist hún ekki minnimáttar því hún getur ekki helminginn af því sem þau gera.  Ég var samt búin að frétta að þar æfði barn sem þurfti á stuðning á að halda sem var meir að segja á hennar aldri en NEI hún mátti ekki koma til þeirra og auðvidað var ég svekkt því bæði Oddný og Theodór eru að æfa hjá þeim.  Jú ég er alveg tilbúin að fylgja Þuríði minni hvert sem er en að sjálfsögðu vill ég líka leyfa henni að vera án mín og njóta þess að vera innan um önnur börn án þess að mamman er að skipta sér af.

Þá ákvað ég að snúa mér að fimleikafélaginu Gerplu og þar eru þau með tíma einu sinni viku fyrir krakka sem eiga við einhverja þroskahömlun að stríða, þar eru frábærar stelpur að þjálfa krakkana og erum þeim til stuðnings.  Ég tek að ofan fyrir þeim en það er samt einn galli þetta er "bara" einu sinni í viku en Þuríði minni langar svo að vera miklu oftar, þetta dugar henni ekki.  Það er mikill áhugi hjá henni, henni langar svo að vera einsog Oddný systir sín sem er frekar efnileg (þó ég segi sjálf frá).  Nota bene mér finnst þetta frábært starf hjá þeim þó svo mig langi í meira eða þar að segja Þuríði minni en það er bara ekki í boði.

Ég man fyrir nokkrum árum þá kom það alveg í fréttunum því það var eitt fótboltafélag í borginni sem var að bjóða æfingar fyrir fötluð börn, afhverju er það svona fréttnæmt?  Á þetta ekki bara að vera sjálfsagður hlutur?  Nei ég bara spyr?  Mér finnst það bara sjálfsagt því hvers á Þuríður mín að gjalda eða hin börnin sem eru í sömu sporum og hún?  Já mér finnst þetta ósanngjarnt þó svo sumum finnist það ekki.

Ætla að enda færsluna mína af einni af Oddnýju minni sem missti sína fyrstu tönn í gær, frekar stollt og ánægð:
oddny_tonn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er bara alveg furðulegt því það er ekki eins og það séu fá börn sem þurfa á einhverju "sérstöku" að halda!!!

Jóhanna (IP-tala skráð) 16.3.2010 kl. 16:04

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Þarna sérðu Áslaug mín,því miður.

Íþróttir er ekki leikur,skemmtun né forvarnarstarf hvað þá uppbyggingarstarf fyrir þá sem minna geta:(...Bara harkan sex og full keppni,og ef getan er lítil(takmörkuð),eða þú mætir ekki einn og einn tíma færðu sparkið,ef kemst inn:(:(..En nóg kosta þessi sportæfingar,rugl:(

En tek að ofan fyrir Gerplu:)þó ekki sé nema einn tími á viku hjá þeim...

Áfram svo:)

Halldór Jóhannsson, 16.3.2010 kl. 20:30

3 identicon

Gæti ekki verið meira sammála, almenn íþróttafélög ættu ef allt væri eðlilegt að bjóða öllum börnum upp á íþróttastarf og þann stuðning sem til þarf án þess að það væri svo merkilegt að það kæmi í fréttunum.

Freyja Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 16.3.2010 kl. 21:29

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Vona svo sannarlega að Þuríður komist oftar í fimleika en einu sinni í viku.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.3.2010 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband