Leita í fréttum mbl.is

Útaf færslunni minni í gær...

Í gær var ég frekar ósátt við það hvað það væru fáar íþróttir í boði fyrir Þuríði  mína og að hún hefði ekki verið velkomin í fimleikafélagið sem systkin hennar væru að æfa í þar sem hún þurfti smá stuðning á að halda.  Sem ég varð frekar leið yfir því jú þetta var mikill draumur hjá Þuríði minni að æfa fimleika sérstaklega hefði henni fundist flott að æfa með sama félagi og systkin hennar, þó svo hún verði aldrei einhver stjarna í fimleikum þá finnst henni þetta æðislega skemmtilegt og mér finnst líka aukaatriði hvort hún ætti eftir að ná eitthvað langt, það á bara að ganga jafnt yfir alla.  Þuríður mín getur t.d. ekki farið í handahlaup eða staðið á höndum en það er bara vegna lömunareinkennar en henni langar samt svo að geta það enda horfir hún á Oddnýju systir sína gera það alla daga hérna inní stofu og finnst ennþá skemmtilegra að fá að horfa á hana á æfingum.

Allavega ég fékk ofsalega skemmtilegt símtal í dag sem ég bjóst að sjálfsögðu ekki við því ég nefndi ekki fimleikafélagið hérna í færslunni, fannst það algjör óþarfi enda þó svo ég hafi verið ósátt við viðbrögðin sem ég fékk fyrst frá þeim þá er þetta frábært félag og Oddný og Theodór ofsalega ánægð þar og við foreldrarnir líka en ég varð ennþá glaðari eftir símtalið sem ég fékk í dag.  Jú þar hringdi íþróttafulltrúinn í mig og tilkynnti mér það að Þuríður Arna mín væri meira en velkomin til þeirra og var ofsalega hissa á viðbrögðunum sem ég fékk fyrst í vetur frá þeim en það var ekki hún sem ég talaði við þá.  (sá starfsmaður er hættur)  Hún byrjar hjá þeim á föstudaginn og verður 2x 50mín  og ekki bara það en hún mun líka fá stuðning frá þeim ef hún þarf þess en vonandi þarf hún  ekki á þeim að halda og getur verið "ein" að æfa sem er náttúrlega bara draumur ef það verður.  Þið hefðuð samt átt að sjá gleðina á andlitinu á Þuríði minni þegar ég tilkynnti henni að hún væri að fara æfa með félaginu sem Oddný er að æfa með (það er sko aðal) hvað þá að annar tíminn sem hún mætir í er á svipuðum tíma og hún æfir líka (sko Oddný).  ...og þegar ég sagði henni að hún fengi að fara 2x í viku þar varð hamingjan ennþá meiri. 

Já ég skal segja ykkur það að það þarf ekki mikið til að gleðja litla hjartað hennar Þuríðar minnar en mitt hjarta sló ennþá hraðar við þessar fréttir og ég vil þakka fimleikafélaginu enn og aftur fyrir þetta.  Að sjálfsögðu á að ganga jafnt yfir alla einsog þau vilja sé gert hjá sínu félagi.   Hér ríkir allavega mikil hamingja og hetjan mín fer ennþá hamingjasamari í háttinn í kvöld og verður ö-a að spurja á hálftímafresti næstu tvo daga "hvenær hún fær eiginlega að fara á fimleikaæfingu?".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Frábærar fréttir og upp með þumlana fyrir þessu fimleikafélagi

Ragnheiður , 17.3.2010 kl. 18:16

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið eru þetta frábærar fréttir. Gefði hetjunni knús í tilefni af þessu

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.3.2010 kl. 18:19

3 identicon

ég eiginlega táraðist yfir þessari færslu. Já það þarf ekki mikið til að gleðja lítið hjarta ... sem er samt svo stórt.

Berglind (IP-tala skráð) 17.3.2010 kl. 19:00

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Frábært að heyra...:)

Halldór Jóhannsson, 17.3.2010 kl. 21:06

5 identicon

Yndislegt, þvílíkur gullmoli sem þið eigið, hún á sko eftir að verða fimleikastjarna þessi stelpa í framtíðinni!

Eyja (IP-tala skráð) 17.3.2010 kl. 22:53

6 identicon

Frábært að heyra þessar fréttir.

Margrét (IP-tala skráð) 18.3.2010 kl. 19:46

7 identicon

Frábært.

Þrgerður (IP-tala skráð) 18.3.2010 kl. 19:48

8 identicon

SNILLLLLLD!!! :D

Sigrún - ókunnug :) (IP-tala skráð) 18.3.2010 kl. 23:49

9 identicon

  Frábært, til hamingju með þetta og smá gleðitár með, fyrir ykkar hönd.

    

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 17:20

10 identicon

Ohh hafði misst af þessari færslu :) En sit hér í vinnunni með tár í augunum af gleði :) Gæsilegt og glæsilegt að félagið skuli hafa brugðist svona við :)

R (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband