Leita í fréttum mbl.is

11. eða 18.maí

Þá er það ákveðið að Þuríður Arna mín fer í rannsóknir sínar 11. eða 18.maí.  Að sjálfsögðu er mikill hnútur í maga sem mun væntanlega ALDREI hverfa alveg sama hvursu langt er á milli rannsókna eða hvursu vel kemur útur þessum rannsóknum en það er vont að vera með þennan hnút þess vegna er þá líka gott að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera og hafa mikið til að hlakkat til.   Við erum búin að fylla næstu helgar hjá ykkur, við Skari vorum t.d. ein í sumarbústað um helgina sem var æðislegt.  Næstu helgi ætlum við að sjálfsögðu með börnin á Latabæjarhátíðina og svo getum við ekki beðið eftir páskunum, páskaeggin komin í hús og krakkarnir bíða spenntir að fá að leita af þeim á páskadag en ekki hvað?  ....svona ætlum við að hafa næstu vikur svo maður geti "gleymt" sér í skemmtileguheitunum.  Þuríður mín er annars ágætlega hress, bíður núna spennt eftir því að komast í páskafrí með móðir sinni því þá ætlar hún að baka skúffuköku einsog amma Oddný gerir.  Yndislegust!!  Hún kvartar nefnilega dáltið um það að ég sé ekki nógu dugleg að baka þá sérstaklega skúffukökuna einsog amman.

Ég er sæmileg hress, farin að æfa á "fullu" og fer einmitt á crossfit-námskeið um miðjan apríl sem ég hlakka mikið til en kvíði því líka pínu, verð væntanlega einsog belja á svelli.  Núna á sko að taka á því, því ég ætla að fara vinna í haust (vonandi fæ ég vinnu) og get ekki beðið eftir því að vera innan um fullorðið fólk en að vera í fastri vinnu hef ég ekki verið í 8 ár og hlakka mikið til.  Jú skólinn gengur einsog í sögu, ég rúlla í gegnum hann og fæ bara háar einkunnir enda ekkert annað í bpði og svo eru BARA tvær greinar eftir í útskrift.  Jeij!!  Er meira að segja farin að gæla við annað nám í fjarnámi, finnst þetta bara svo gaman því mér gengur svo vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það eru bara góðar fréttir af þér núna sem er langbest. Skil vel þetta með hnútinn, tengdamamma hefur tvisvar fengið krabbamein í brjóst, hún fer reglulega í eftirlit og hnúturinn í maganum er alltaf á "sínum stað". Frúin er að verða 85 ára 11. maí og er alveg bráðhress að öllu leiti, býr enn heima og allt. Góðar óskir til Þuríðar og ykkar allra.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.3.2010 kl. 23:22

2 identicon

gangi ykkur allt í haginn kæra fjölskylda, góðar óskir og  gæfan fylgi ykkur.

Didda ókunnug (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 19:23

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

:):):) Kærleiksknús:)

Halldór Jóhannsson, 23.3.2010 kl. 22:30

4 identicon

Bestu kveðjur til ykkar kæra fjölkylda.

Þorgerður (IP-tala skráð) 24.3.2010 kl. 10:14

5 identicon

Æi fyrirgefðu Áslaug mín að bláókunnug kona snarstoppar við setninguna þína "belja á svelli"  eingöngu vegna þess að eitt sinn varð einhverjum illa fótaskortur á tungunni og sagði "svelja á belli" og mér finnst það alltaf jafnfyndið.  Vona að þú takir þessu ekki illa.  Annars finst mér frábært hvað allt gengur vel hjá Þuríði og hinum gullmolunum þínum.  Vona bara að þinn skrokkur fari að komast í lag svo þú getir almennilega notið lífsins.  Gangi ykkur allt í haginn og gleðilega páska.

Huldís Þorfinnsdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband