Leita í fréttum mbl.is

ritstífla.is

Hef haft ofsalega lítið að segja, er í páskafríi með Stjörnunni minni henni Þuríði Örnu sem hún er að fíla í botn og það eina sem hún vildi gera með mömmu sinni í fríinu sínu það var að baka skúffuköku la amma Oddný og að sjálfsögðu erum við búnar að skella í eina svoleiðis og eina tertu.  Það verður sko borðað hérna um páskana.  En hún er ótrúlega hress og kát, er t.d. núna að horfa á sig á dvd þegar hún var mjög veik (samt ekki sem veikust, er að veikjast) og á þeim myndum er hún frekar lyfjadrukkin og mér finnst eiginlega mjög erfitt að horfa á þetta.  En þetta minnir mig samt á allt sem hún hefur þurft að þola sem er alltof mikið og maður hefur þurft að vera endalaust sterkur fyrir Stjörnuna mína.  Passa sig að gráta ekki fyrir framan hana sem hefur verið mjög erfitt og ekki alltaf tekist, æji þetta er búið að vera alltof erfitt en bara að horfa á hana í dag er stórkostlegt hún á eftir að gefa mikið af sér þegar hún verður eldri þessi stúlka enda laaaaang flottust.  Annars er komin staðfest dagssetning á næstu rannsóknum hjá Stjörnunni minni en það verður 11.maí.

Af mér að frétta er bara sæmilegt, er búin að hitta gigtarlækni og er búin að gefa mér smá greiningu en ég segi bara um það allt þegar það er komið úr blóðprufunum.  En ég er komin á lyf sem minnkar verkina og leyfir mér að sofa almennilega enda finn ég líka alveg að verkirnar hafa minnkað.  Þetta er allt að koma en ekki hvað?

Skemmtileg páskahelgi framundan og margt skemmtileg að gera þessa helgina einsog t.d. BORÐA MIKIÐ og óhollt áður en alvaran byrjar í Crossfitinu.

Eigið góða helgi og njótið hennar í botn einsog við ætlum að gera en ekki hvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

   Gleðilega páska, kæra fjölskylda.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 14:48

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég fæ reglulega svona léttar ritstíflur og þá er ekki annað í stöðunni en að taka pásu. Gleðilega páska

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.4.2010 kl. 21:19

3 identicon

Gleðilega páska elsku fjölskylda og hafið það alltaf sem best

Kristín (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 13:23

4 identicon

Gleðilega páska - og endilega njótið þeirra!

Jónína (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband