Leita í fréttum mbl.is

Yndislegri páskahelgi að ljúka og staðfestar fréttir.

Við vorum að renna í sveitina en við eyddum páskahelginni í sumarbústað í Húsafelli sem var alveg yndislegt.  Ætla bara að leyfa myndunum að tala sínu máli frá helginni:
P4016943 [1024x768]
Oddný Erla mín slappaði líka af á leiksvæðinu úti.
P4047023 [1024x768]
Gengið mitt var ótrúlega ánægt með páskaeggin sín.
P4047142 [1024x768]
Theodóri mínum var svo heitt í bústaðnum þannig hann ákvað að kæla sig niður í snjónum enda veitti ekki af.
P4037012 [1024x768]
Þuríður Arna mín skemmti sér svakalega vel í snjónum.
P3316844 [1024x768]
Hinrik minn Örn var líka kátur í bústaðnum.
P4016895 [1024x768]
Það þarf mikið til að Þuríður Arna mín fari að gráta þegar hún meiðir sig og ef það kemur fyrir þá hefur hún virkilega meitt sig einsog á þessari mynd.

Staðfestar fréttir eru að Þuríður Arna "stjarna" mín fer í rannsóknir sínar 11.maí og ég veit að mikill kvíðahnútur mun myndast hjá mér þanga til.  Jú aðrar staðfestar fréttir að mín ÆTLAR að fara vinna í haust því ég er að sjálfsögðu búin að ákvað að það kemur allt gott úr rannsóknum hennar "stjörnu" minnar en ekki hvað, við förum ekkert að breyta úr vananum.  ....er strax farin að hlakka til.  Jú ég svo tvær greinar eftir að skólanum mínum sem ég mun útskrifast um jólin nk og er strax farin að reyna ákveða hvað ég ætla að læra næst í fjarnámi eða kvöldnámi.  Bara gaman!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Frábærar myndir af hópnum ykkar, saman og sitt í hvoru lagi. Mér líst auðvitað vel á að þú sért að fara vinna í haust.

Þó ég sé ekki kulvís, þá verð ég að segja að Theodór er mikil hetja að skella sér í snjóinn. Ég fæ bara léttan hroll.

Það er ekki oft sem hún er ekki með brosá andlitinu sínu hún Þuríður, enda mikið hörkutól eftir alla sína reynslu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.4.2010 kl. 22:23

2 identicon

Frábærar myndir,yndislegar fréttir og við verðum að fara að hittast...finnum tíma sem fyrst með Diddunni að sjálfsögðu og elskulegu hetjunni minni henni Þuríði.Knús til ykkar allra,þið eruð æðisleg

Björk töffari (IP-tala skráð) 6.4.2010 kl. 20:20

3 identicon

Frábærar myndir.  Greinilega góð helgi.

Þorgerður (IP-tala skráð) 8.4.2010 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband