Leita í fréttum mbl.is

Bæði gleði og dapurleiki smita út frá sér. Hverju dreifir þú?

Ég fór í síðasta prófið mitt á laugardaginn eða réttara sagt seinna prófið mitt og að sjálfsögðu mun ég ná, er búin að fá einkunnina fyrir fyrra prófið sem ég að sjálfsögðu brilleraði í en ekki hvað. (nía sem sagt)  Ég ætlaði að taka mér pásu í sumar frá skólanum en svo hef ég ákveðið að taka tvær greinar í fjarnámi og þær tengjast svona meira í heilbrigðisgeiran en mig langar dáltið að blanda náminu mínu við það svo er aldrei að vita með framhaldið.  Ég útskrifast vonandi um áramótin eða þanga til annað kemur í ljós.

Ég er byrjuð í Crossfit sem er alveg geggjað þá meina ég geggjaðslega erfitt og gaman, ég er gjörsamlega búin eftir hvern tíma og ég finn alveg mun á mér bæði líkamlega og andlega.  Ég hef reyndar alltaf vitað að hreyfingin er minn besti sálfræðingur en það hefur bara verið svo erfitt að koma sér afstað en svo fékk ég smá "spark í rassinn" og þarf ég að vera í svona föstum tímum svo ég skrópi ekki.  Tímarnir mínir eru kl sex á morgnanna þannig það er ræs hjá mér 5:30, jú það er dáltið erfitt að koma sér framúr svona snemma en alveg yndislegt að byrja daginn svona snemma. Ég finn líka hvað líkaminn minn er frekar slappur, vantar rosalegan styrk í hann og hann er alveg búinn eftir þessa tími en hausinn á mér getur samt miklu meira þar að segja þolið en ég verð víst að vera þolinmóð því þetta kemur, áðuur en ég veit af verð ég farin að taka þátt í þrekmeistaranum, NOT!!

Ég er komin á lyf við gigtinni sem eru að gera góða hluti, ég get allavega farið að nota hendurnar mínar án þess að vera kvalin og vonandi get ég farið að prjóna á ný.  Þannig ég get setið á pallinum í sumar og prjónaðWink

Hinrik minn er kominn inná leikskóla um miðjan ágúst svo mín ætlar sér að fara vinna þá en ekki hvað??  Jú það verða mikil viðbrigði en mikið hlakka ég til.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þú ert frábær og dugmikil eins og þú hefur alltaf verið frá því ég fór að blogga við þig. Þú hefur svo auðvitað verið það alla tíð.

Hverju dreyfir þú spurningin er frábær og ég tel mig dreyfa jákvæðni í kring um mig, svona oftast að minnsta kosti.

Mér finnst hrunið jákvætt á þann hátt að nú skapast einstakt tækifæri til að byggja heilbrigt og heilsteypt samfélag.

Þau stjórnvöld sem eru við völd núna eru einnig líkleg til að gera það á nótum hins mannlega sem er auðvitað algjörlega nauðsynlegt.

Rannsóknarskýrslan er að því leiti jákvæð að hún sýnir okkur svo vel hvernig ekki á að gera og hvað var gert skakkt.

Hún er skólabók um þjóðfélag.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.4.2010 kl. 11:18

2 identicon

Hæ Áslaug mín.........hvernig eru þessir tímar?Mig langar svo að fara í ræktina,,en vantar smáspark eins og þú talar um...heyri í þér með þetta elskuleg og gleðilegt sumar á línuna.love

Björk töffari (IP-tala skráð) 22.4.2010 kl. 05:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband