Leita í fréttum mbl.is

26.maí'10

Hittum okkar verðandi skurðlækni í gærmorgun ásamt læknaliðinu okkar og það er ákveðið að Maístjarnan mín fer í sýnistökuna miðvikudaginn 26.maí.  Þetta er kanski ekkert rosalega stór aðgerð en allar svona aðgerðir eru mjög áhættusamar og líkur á blæðingum enda er verið að fara í gegnum mjög erfitt svæði.  En ég ber 100% trausts til skurðlæknisins en mér kvíður óendanlega fyrir þessum degi.  Aðgerðin sjálf mun bara taka ca hálftíma en ferlið í kringum þetta er frekar langt.

Það mun taka ca viku að fá úr sýninu og þá verður ákveðið strax hvað það verður gert í framhaldinu en það kemur þrennt til greina en samt fannst mér á læknunum að það væri meira eiginlega tvennt en það er lyfjameðferð, geislar í Svíþjóð eða stór skurðaðgerð og fjarlægja æxlið en það er ekkert endilega það besta í stöðunni svo ég legg að sjálfsögðu allt mitt traust til læknanna og þeir ákveða hvað verður best fyrir Maístjörnuna mína.
Þuríður Arna 1
Hérna er hún að knúsa Hring sem tók afmælissöngin fyrir hana uppá spítala.

Maístjarnana mín átti frábæran afmælisdag, kíkti aðeins á leikstofuna uppá spítala og var þar leyst út með gjöfum, horfði á blómarósina sýna í Laugardalshöllinni og mikið rosalega var hún flott.  Svo enduðum við fjölskyldan ásamt ömmum, öfum og systir minni og fjölskylduá Fabrikkunni.  Bara fullkomin dagur og Maístjarnan mín ásamt hinum sofnuðu glöð í hjarta sem og ég gerði líka.

Yndisleg Hvítasunnuhelgi framundan, endalausar veislur, bíóferðir, sund, æfingar og og og og ég veit ekki hvaðW00t.  Það er aðeins léttara yfir mér í dag en síðustu daga kanski bara hvað dagurinn í dag var yndislegur og það er svo gott að gleyma sér með fólkinu sínu þess vegna ætlum við líka að hafa helgina "pakkaða" af skemmtilegheitum.  Ég VERÐ að geta gleymt mér svo ég sekk mér ekki einhver "leiðindi".

Eigiði góða helgi kæru lesendur......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú endar pistilinn þinn svo fallega, ég ætla að deila með þér hugtaki sem ein vinkona mín notar ópast þessa dagana - Látum hverjum degi nægja sína hamingju 

Góða helgi kæra fjölskylda og gangi ykkur vel  

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 09:38

2 identicon

Kæra fjölskylda, eigið yndislega "pakkaða" hvítasunnuhelgi. Sendi ykkur orkustrauma, sem ég get vel ímyndað mér að ykkur veiti ekki af þessa dagana.
Gangi ykkur vel með framhaldið!!!

Kv. frá ókunnugri Beggu

Berglind (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 09:49

3 identicon

Elsku þið öll

Það er svo gott að finna að þú  Áslaug ert svolítið glöð núna, og ert að reyna að vera í núinu, sem getur verið svo endalaust erfitt.

Eins er frábært að heyra hvað dagurinn var góður hjá ykkur, Þuríður litla sem sagt orðin það hress að hún gat notið hans í botn og eins og áætlað var.  Bara æði.

Já sömuleiðis njótið helgarinnar endalaust vel.

Kærleikskveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 10:03

4 identicon

Gott að heyra að þér líður aðeins betur  og greinilega frábær helgi framundan.  Það er svo gaman að hafa eitthvað til að hlakka til sérstaklega í aðstæðum sem þessum hjá ykkur.Góða skemmtun og Guð veri með ykkur

Kristín (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 10:19

5 identicon

Innilegar hamingjuóskir með 8 ára Maístjörnuna ykkar.

úff, já ég þekki það af eigin reynslu, hvað það skiptir miklu máli að hafa eitthvað fyir stafni svo maður detti ekki niður í einhverjar þungar og erfiðar hugsanir. Ég sé að þið eruð svo dugleg að gera eitthvað skemmtilegt með börnunum ykkar og þið Óskar verðið líka passa upp á ykkar tíma saman. Eigið góða helgi öll sömul.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 11:31

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Nú er planið komið og þá er viss spenna frá, en önnur ný kemur í staðinn. Bið almættið að vaka yfir öllum sem koma munu að meðhöndlun á Maístjörnunni og hafa englana með í ferlinu frá uppkafi til enda   

Frábært að afmælisdagurinn var svona skemmtilegur. Eigum öll góða helgi.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.5.2010 kl. 16:40

7 identicon

Njótið helgarinnar kæra fjölskylda.  Frábært að afmælisdagurinn var skmmtilegur, enda eigið þig svo einstaka fjölskyldu.

Þorgerður (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 18:34

8 identicon

Gott að heyra í þér hljóðið í dag Áslaug.

Eigið yndislega helgi öll saman

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 18:43

9 identicon

Góða helgi kæra fjölskylda!

Æðislegt að lesa um afmælisdaginn hennar Þuríðar Örnu.

Þórunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 23.5.2010 kl. 08:06

10 identicon

Þú endar pistilinn þinn svo fallega, ég ætla að deila með þér hugtaki sem ein vinkona mín notar ópast þessa dagana - Látum hverjum degi nægja sína hamingju 

Góða helgi kæra fjölskylda og gangi ykkur vel  

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 23.5.2010 kl. 13:52

11 Smámynd: Ragnheiður

góða helgi elskurnar - gott að sjá að andlega hliðin hefur aðeins þokast upp. Þetta eru erfið spor. Þú ert dugleg kona og mikil mamma

Ragnheiður , 23.5.2010 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband