Leita í fréttum mbl.is

Bið og aftur bið

Í öllu þessu "ferli" þá er biðin lang erfiðust, maður er alltaf að bíða.  Það er ógeðslega erfitt að þurfa bíða núna eftir niðurstöðum sýnistökunnar og hvað verður gert næst?  Erum við að fara út fyrir klakan með Maístjörnuna mína eða verðum hérna heima með hana í meðferð?  Við vitum alveg hverskonar æxli þetta er en við vitum ekki tegundina og læknarnir þurfa að vita það til að vita hvernig meðferð hún eigi að fara í.  Já það er vont að bíða.  Þetta nagar mann að innan.

Maístjarnan mín er ágætlega hress, bara sama sagan hún reynir að forðast sólina eins mikið og hún getur, ef það eru mikil læti eða mikið af fólki er hún ekki að fíla.

Enda færsluna mína af Blómarósinni minni henni Oddnýju Erlu og mömmupungnum Hinrik Erni sem er orðinn leikskólastrákur.
P5298583

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sendi þolinmæði og æðruleysi  - falleg systkyn

Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.6.2010 kl. 09:17

2 identicon

Alltaf jafn falleg börnin ykkar Áslaug mín.

Gaman væri að sjá þau "live" 

Sendi þér og ykkur kærleiks og þolinmæðiskveðju (úff ég að senda þolinmæðiskveðju) það er nú eitthvað bogið.  Ekki sú þolinmóðasta, og örugglega ekki í þínum aðstæðum.  En ég geri það samt þú þarft svo mikið á því að halda.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 2.6.2010 kl. 09:57

3 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 2.6.2010 kl. 13:11

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Sendi ykkur gott faðmlag..

Halldór Jóhannsson, 2.6.2010 kl. 20:07

5 identicon

Bið góðan Guð að létta ykkur biðina.

Jónbjört Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 13:30

6 Smámynd: Adda Laufey

hugsa til ykkar

Adda Laufey , 3.6.2010 kl. 13:45

7 identicon

Kærleikskveðja til ykkar.

Þorgerður (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 19:30

8 identicon

Sendi ykkur mínar allra bestu kveðjur og bið góðan guð að vera með ykkur.....Dáist að styrk þínum og æðruleysi  Áslaug þú ert hetja.

Hjördís Blöndal (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 21:34

9 identicon

hugsum til ykkar

Risaknús kveðja að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 21:48

10 Smámynd: Ragnheiður

Hugsa til þín og sendi þér þolinmæði - líka hvíld og ró.

Ragnheiður , 4.6.2010 kl. 10:18

11 identicon

Bið fyrir hetjunni minni á hverjum degi og sendi ykkur ljós og kærleika.Langar að fara að hitta ykkur elskurnar þegar tími finnst og vonandi getur Diddan hitt okkur líka.Ást og kærleikur frá töffaranum

Björk töffari (IP-tala skráð) 8.6.2010 kl. 00:24

12 identicon

Kæra fjölskylda!!!
Langar bara til að senda ykkur knús og hlýjar kveðjur!!!
Gangi ykkur sem best með HETJUNA YKKAR!!!

Kv. frá DK

Berglind (IP-tala skráð) 8.6.2010 kl. 05:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband