Leita í fréttum mbl.is

Framhaldið ákveðið...

Fundur á morgun með teyminu okkar.

Nenni engan veginn að blogga hérna, fæ lítið sem ekkert útur því lengur.  Mig langar bara að Maístjarnan mín verði heilbrigð og þurfi ekki að kveljast meira.  Mig langar að vera þessi "venjulega" mamma og argast útí kreppuna, Icesave, stjórnmálamenn einsog flestir (margir) Íslendingar en þá er margt mikilvægara í lífi mínu en að argast útí það allt saman.
P6139350 [1280x768]
Einsog þessir tveir Ofur-töffarar Hinrik Örn minn og Theodór Ingi minni, þvílíkir snillingar.
P6139362 [1280x768]
Eða yndislegu blómarósirnar mínar.  Myndirnar voru teknar á rúntinum okkar um Suðurlandið á sunnudaginn við eitt blómatýnslu-stoppið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sendi ykkur hlýjar hugsanir og styrk, gangi ykkur vel á morgun. Yndislegar myndir af fallegu börnunum. 

Anna (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 15:26

2 identicon

guð veri með ykkur, gangi ykkur vel á morgun og alltaf, sæt,sæt börn.

Didda ókunnug (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 16:20

3 identicon

Gangi ykkur vel á morgun, hugsa til ykkar.

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 20:32

4 identicon

Yndislegar myndir af yndislegum börnum.

Gangi ykkur sem best á morgun og vonandi fáið þið svör sem leiða til lausna.

kveðja, Kristín

Kristín (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 21:07

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Guð veri með ykkur

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.6.2010 kl. 21:24

6 identicon

Kæra fjölskylda. Ég þekki ykkur ekki, en langar að senda ykkur hlýjar kveðjur og mun krossa putta og kveikja á kerti, með einægri von um að þið fáið góðar fréttir á morgun.

Eygló (ókunnug) (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 21:50

7 identicon

Gangi ykkur vel á morgun, jafnt sem aðra daga. Flottar myndir af fallegu börnunum ykkar. :)

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 22:12

8 identicon

Elsku fjölskylda,

Langaði að senda ykkur styrk og hlýhug. Gangi ykkur vel í dag

Agnes (ókunn) (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 08:59

9 identicon

Yndisleg börn sem þið eigið, bið góðan guð um að þið fáið góðar fréttir, kv María Ó.

María Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 09:03

10 identicon

Mig langaði að senda ykkur styrk og hlýhug.  Þið eruð ótrúlega rík að eiga þessi fallegu og duglegu börn. Ekki má gleyma að minnast á ykkur hjón þið eruð ofboðslega sterk og samhent og saman hafið þið þurft að takast á við hluti sem enginn öfundar ykkur af. Þið haldið fast utan um hvort annað og börnin ykkar og það skilar sér þegar erfiðleikarnir herja að.  Sendi ykkur hlýja strauma og kveiki á kerti fyrir Þuríði.

Sigrún (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 09:27

11 identicon

Gangi ykkur allt í haginn!!!
Sendi ykkur hlýjar hugsanir og styrkjandi strauma, sem koma vonandi að góðum notum...

Kv. frá DK

Berglind (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 09:28

12 identicon

Gangi ykkur rosalega vel í dag. Læknarnir velja pottþétt bestu lausnina fyrir Þuríði og það er ekki langt í það að þú verðir "venjuleg" mamma. Búin að kveikja á kertinu hennar á síðunni og hér heima líka.

Sirrý (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 10:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband