Leita í fréttum mbl.is

Svíþjóð - dagur 3 - fyrri færsla dagsins.

Vorum mætt eldsnemma uppá spítala í morgun og undirbúningurinn hófst fljótlega eftir að við komum.

Þuríður mín stóð sig að sjálfsögðu ótrúlega vel í öllu, heyrðist ekki "múkk" í henni þegar hún var sprautuð enda heyrist aldrei neitt í henni þó svo það sé verið að pína hana.  Óskar hefði bara átt að vera þegar hún var svæfð en svo var ákveðið að leyfa okkur þremur að vera sem var að sjálfsögðu æði.  Þó svo þetta sé í "hundraðasta" sinn sem hún er svæfð finnst mér það alltaf jafn erfitt.

Íslenski svæfingalæknirinn mun fylgja okkur í allan dag sem er bara fullkomið og sinnir okkur 150% væntanlega miklu meira en hann á að gera.  Hann var einmitt að hringja í okkur rétt í þessu til að láta okkur vita að það gengur allt vel hjá henni og allt er eftir áætlun.  Mikið hlakka ég til að hitta hana eftir ca tvo til fjóra tíma uppá "vöknun".

Oddný Erla mín á frekar erfitt í kringum allt þetta ferli en hún minnir mig dáltið á sjálfan mig, finnst erfitt að brotna niður fyrir framan aðra og reynir allt sem hún getur að fara ekki að gráta.  Svo þegar við vorum búnar að kveðja Þuríði mína þá ákváðum við að kíkja í h&m sem er hennar uppáhalds búð og er föst við hótelið sem við búum á þessa dagana og kaupa smá gjöf handa Þuríði sinni sem henni fannst ekki leiðinlegt að velja og svo rétt áður en við förum uppá spítala verður kíkt í dótabúðina og keypt eitt "Pet shop" dýr sem uppáhalds dótið þeirra systra og gefið stóru systur þegar hún vaknar.  Oddný Erla litla blómarósin mín er ekki minni hetja en Maístjarnan mín.

Við erum reyndar ótrúlega þreytt, frekar mikið álag en ég og Oddný náum okkur enganveginn niður til að hvíla okkur en það er gott að Skari minn nær því.

Núna ætla ég aðeins að knúsa blómarósina mína áður en við kíkjum í dótabúðina sem er líka föst við hótelið okkar og kaupum eitt stk pet shop dýr.

Skrifa aftur í kvöld og hlakka mikið til að lesa öll kommentin frá ykkur fyrir Maístjörnuna mína.
Knús á ykkur öll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

gangi ykkur ótrúlega vel. ég hugsa til ykkar:*

katrín (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 09:57

2 identicon

Hef fylgst með ykkuur hetjunum um tíma en ekki kommentað lengi  Hugsa til ykkar og bíð spennt heftir frekari fréttum af.  Þetta fer allt vel

Jóhanna Ól (ókuunnug) (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 09:59

3 identicon

Mikið eru þið dugleg og þú Oddný besta systir í heimi og þú Þuríður sterkasta stelpa í heimi. Held að Lína langsokkur ætti að fara vara sig þar sem þú er nú einu sinni í hennar heimalandi :) Þið eruð öll súperhetjur sem mega líka gráta ;) Gangi ykkur vel Bestu kveðjur frá mæðgunum   KNÚSSSSSSS

Magga og Andrea (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 10:11

4 identicon

Gefi ykkur góða strauma.  Gangi ykkur hrikalega vel. Þið eruð ótrúlega dugleg

kv Díana Guðjóns.

Díana Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 10:11

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gangi ykkur vel og hugur minn er hjá ykkur

Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.7.2010 kl. 10:23

6 identicon

Mikið rosalega ertu dugleg og sterk Þuríður og heppin að eiga svona góða litlu systur eins og hana Oddnýju :)

Þið eruð öll hetjur og það er alveg rétt, Oddný er ekkert minni hetja en Þuríður :)

Þetta eru flottar stelpur sem þið eigið og þið standið ykkur rosalega vel :)

Knús

inga - ókunug (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:04

7 identicon

Elsku fallega Þuríður mín sem ert svo sterk og dugleg. Gangi þér vel í dag Hanna frænka hugsar mikið til þín núna og þegar ég vaknaði í morgun að þá kveikti ég strax á kerti fyrir þig dúllan mín....Birgitta Nótt og Dagbjört Líf hugsa líka mikið til þín og eru mikið að spurja hvernig gangi hjá þér í Sviþjóð. Þær senda þér stórt knús elskulegust. Ég er líka viss um að Hanna Vina sé með þér í huganum þó lítil sé ;o) Nú svo má ekki gleyma Munda pung,hann biður að heilsa hetjunni líka. Svo er það Oddný elsku blómarósin okkar. Þú ert sko ekkert minni hetja og ert dugleg að standa með stóru systu. Eins og ég hvísla alltaf að þér dúllan mín að þá ert þú flottust og fínust og við elksum þig mikið sæta ;o) Óskar og Áslaug við sendum ykkur kærar kveðjur og stórt knús. ELSKUM YKKUR ;o)

Hanna og Co (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:24

8 identicon

Þetta á allt eftir að ganga vel hjá ykkur:) Þuríður Arna alltaf jafn dugleg og hörð af sér en munið að tárin eru líka af hinu góða og þau létta mikið á spennunni sem er í kroppnum  og sálinni

Katrín Ösp (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:37

9 identicon

Hugur minn er hjá ykkur kæra fjölskylda. Þið eruð öll engar smá hetjur og ég trúi því að þetta fari vel. Bið fyrir Þuríði, Oddnýju og ykkur hjónum. Gangi ykkur vel :)

Dagbjört ókunnug (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:48

10 identicon

Sendi ykkur alla þá sólargeisla sem til eru í veröldinni.

Guðný þ (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:48

11 identicon

Elsku fjölskylda. Hugur minn er hjá ykkur og ég sendi ykkur allar mínar bestu óskir. Elsku fallega Maístjarna, þú ert algjör hetja og hugrakkasta átta ára stelpa sem ég hef nokkurn tíma vitað um. Gangi ykkur vel!

Anna Lára Steindal (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:50

12 identicon

Kæra fjölskylda, ég er ein af þeim sem fylgist með ykkar baráttu og dáist að því hvernig þið gangið í gegnum erfiðleikana.  Ég sendi ykkur allar mínar bestu óskir og bið almættið um kraftaverk fyrir Þuríði Örnu.

Þuríður Arna og Oddný Erla, þið eruð einstakar perlur og það eru forréttindi að fá að fylgjast með ykkur.

ókunnug (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:52

13 identicon

Kæra fjölskylda,

Gangi ykkur sem allra, allra best í Svíþjóð. Þið eruð öll hetjur!

Bestu kveðjur,

Ragga (systir Birnu)

Ragga (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:02

14 identicon

Duglegu hetjur :) Fylgjumst með úr fjarlægð og sendum strauma.

Kv

Hrund og co.

Hrundski (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:09

15 identicon

Sendi ykkur alla mín góðu strauma. hef fylgst með blogginu ykkar og dáist að ykkur öllum. Kveðja Guðný ókunnug en finnst ég þekkja ykkur svolítið. Ég þekki svolítið að eiga veikt barn. Yngsta stelpan mín er hjartveik. aftur kær kveðja Guðný

Guðný Elísabet Einarsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:09

16 identicon

Elsku Þuríður Arnar,

rosalega ertu nú dugleg og sterk stelpa og mikið ofsalega ertu heppin að eiga svona góða systur eins og Oddný Erla er. Þið eruð báðar mjög heppnar stelpur  að eiga hvor aðra að:)  Ég er viss um að þetta mun ganga vel og þú verður fljót að jafna þig á þessu. Bestu kveðjur til mömmu og pabba sem eru líka svakalega dugleg enda ekkert annað í boði þegar maður á ekkert annað en hetjur!

 Bestu kveðjur úr rokinu á Akranesi, Helga Arnar

Helga Arnar (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:13

17 identicon

Kæra fjölskylda, kveikti á kerti fyrir Þuríði Örnu og sendi góða strauma yfir hafið. Gott að allt gengur vel og er sannfærð um að þetta fer allt vel. Knús á hetjuna og litlu systur hana Oddnýju hún er svo góð systir! Kv. Hulda og fjölskylda.

Hulda SKB mamma (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:24

18 identicon

Elsku þið öll

Mikið er yndislegt að heyra hvað þið virðist vera í góðum höndum og gerið ykkur þetta eins gott og mögulegt er.

Þið eruð öll miklar hetjur, sem svo sannarlega má taka sér til fyrirmyndar.

Hvað varðar MAÍSTJÖRNUNA, bið ég ekki um minna en kraftaverk enda er hún mikið kraftaverkabarn.

Sendi ykkur kærleiks- og fyrirbænakveðjur

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:31

19 identicon

yndislegt að fá að fylgjast með, kærar þakkir fyrir færslurnar. Við sitjum hér í Bandaríkjunum og lesum og hugsum mikið til ykkar og vonum að allt fari eins vel og mögulegt er.  Þið eruð öll þvílíkar hetjur. Baráttukveðjur til Þuríðar!!

Lísumamma (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:57

20 identicon

Já, það eru svo sannarlega forréttindi að fá að fylgjast með ykkur. Sendi ykkur hlýjar hugsanir og góða strauma. Þuríður Arna og Oddný Erla eru svo sannarlega hetjur eins og þið öll. Hugsa líka til strákanna ykkar sem eru pottþétt í dekri hér heima. Þið eruð öll hetjur.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 13:01

21 identicon

Sendi Þuríði hlýjar hugsanir, hún er sko algjör hetja.....

Magga J (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 13:13

22 identicon

Já, þetta eru sterkustu systur í heimi og ekkert smá heppnar að eiga hvora aðra að.  Ekki spilla þessir flottu bræður fyrir og hvað þá að eiga foreldra sem öllu vilja kosta til fyrir hópinn sinn.

fjögurra_dætra_móður (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 13:13

23 identicon

Elsku Þuríður Arna svakalega ertu dugleg! Gangi þér sem allra best í landi Línu Langsokks! Bestu kveðjur til foreldra þinna og flottu systkina þinna. Sendi þér og fjölskyldu þinni mína bestu strauma í allan dag!

ókunnug sem fylgist með. (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 13:23

24 identicon

Gangi ykkur vel í dag.  Þuríður er algjör hetja það sér maður langar leiðir en systir hennar og foreldrar eru líka ótrúlegar ofurhetjur.  Ég veit að Þuríður er örugglega sammála að allar Súperhetjur verða sterkari á að hafa ofurhetjur sér við hlið til að hjálpa og án ykkar væri hún ekki slík súperhetja sem hún er.  Sendi hlýja strauma frá Íslandi.

Ein tveggja barna mamma (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 13:57

25 identicon

Elsku systur.

Hugsa til ykkar. Þið eruð ofurhetjur. Duglegustu systur í öllum heiminum. Knús í hús.

Berglind Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 14:07

26 identicon

Sendum hugrökku Þuríði Örnu batakveðjur og hugsum til ykkar allra.

Kv.

Tómas og Linda.

Linda og Tómas SKB foreldrar (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 14:34

27 identicon

Gangi þér vel í dag Þuríður Arna, þú ert sannkölluð hetja eins systkyni þín og foreldrar.

Sólveig (ókunnug) (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 15:17

28 identicon

Elsku þið öll. Núna er vonandi hetjan vöknuð og búin að sjá allt sem Oddný hefur valið fyrir systur sína. það er svo gaman að lesa og fá að fylgjast með. Þið eruð öll svo dugleg og reynið að hvílast líka það er svo mikilvægt í baráttunni.

Knús og kossar til ykkar, Brynja og co.

Brynja (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 16:01

29 identicon

Sendi ykkur öllum baráttukveðjur, veit að þeta fer allt saman vel, Þuríður Arna er svo mikil hetja að við getum öll lært af henni, hennar bíður eitthvað stórkostlegt, knús til ykkar ótrúlega sterka fjölskylda, kv. Sigga

(þekki ykkur ekkert, hef fengið að fylgjast með ykkur hér, takk fyrir það:)

Sigga (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 16:16

30 identicon

Elsku Þuríður okkar!

Við strákarnir hugsum til ykkar í Svíþjóð.  Við vitum hvað þú ert mikill töffari og snillingur.  Við bræðurnir erum að fara keppa í fótbolta og ætlum að reyna skora mark fyrir þig.  Amma Oddný og Hinrik Örn komu í heimsókn áðan.  Biðjum að heilsa Oddný Erlu baráttukveðjur úr Kópó.

 kv. Linda og strákarnir

Linda og strákarnir (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 16:44

31 identicon

Duglega fjölskylda...

Batakveðjur frá Fróni og baráttukveðjur með framhaldið......þið eruð sannkallaðar hetjur.....

kv Anna

Anna (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 16:56

32 identicon

mikð ertu dugleg Þuríður Arna, ég óska þér góðs bata og vonandi verður þú komin heim að leika sem fyrst. Knúsaðu litlu systur sem er svo dugleg að vera þarna með þér.  guð og lukkan veri með ykkur

Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 17:23

33 identicon

Hæ Þuríður ég held að þú sért duglegasta stelpan í öllum heiminum. Ég veit að Skoppa og Skrítla eru sko rosalega stolltar af þér þú ert svo duglega að reyna að láta þér batna í höfðinu þínu. Gangi þér vel og stórt knús og koss á kinn frá mér. Kv Helga.

Helga ókunnug (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 17:32

34 identicon

Það er yndislegt að heyra að aðgerðin hafi gengið vel, það getur engin sett sig í ykkar spor nema hafa gengið í gegnum svona. Það er yndislegt að sjá systurnar saman, og mér finnst þær ótrúlega duglegar. Ég bið góðan guð að vaka yfir ykkur og gefa ykkur styrk, við Oddnýju Erlu vil ég segja, þú ert ótrúleg systir, og það er gott að þú getir verið hjá Þuríði þinni, mér finnst þú vera mikil hetja, við þekkjumst ekkert kæru frænkur en ég óska þess að allt gangi vel hjá ykkur í Svíþjóð kv María

María Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 01:05

35 identicon

Oh ég var svo mikil klaufi að gleyma því að segja hvað þið hetjurnar eruð heppnar að fá að sjá Línu Langsokk, það eigið þið svo sannarlega skilið :)

María Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband