Leita í fréttum mbl.is

Lífið ósanngjarnt

Ég frétti í gær að litli frændi Óskars sem er jafn gamall Oddnýju minni var að greinast aftur með krabbamein og fer að sjálfsögðu strax  í harða lyfjameðferð.  Drengurinn bara rétt að verða þriggja ára og er aftur að greinast einsog maður hélt að þetta væri á uppleið og svo kemur þetta bakslag.  Lífið er ótrúlega ósanngjarnt!!  Mig langar að senda knús til ykkar allra sem tengjast honum, veit að þið lesið síðuna mínaog vonandi verður hann fljótur að jafna sig enda hörkutól þessi drengur einsog hann hefur sýnt og sannað.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Úffff þetta er ömurlegt að heyra um þessi kríli í kringum ykkur :(

Sendi knús á ykkur öll!!!

kv Lilja Kópavogi

Lilja (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 11:42

2 identicon

Já lífið er sko ósanngjarnt, það er ótrúlegt hvað mikið er lagt á lítil börn og fjölskyldur þeirra  Við biðjum fyrir litla frænda okkar um að hann jafni sig sem fyrst, enda hörkutól eins og þú segir Áslaug.

Knús til ykkar allra

Ólöf Inga

Ólöf Inga (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 11:55

3 identicon

oh my :( þetta er ekki að sanngjart en ég óska frænda ykkar alls hins besta og vonandi gengur honum vel koss og knús Þórunn Eva

Þórunn Eva (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 11:58

4 identicon

Mamma var einmitt að segja mér þetta í dag :( En gott að þeir bregðast fljótt við hérna í DK. Ég þakka annars knúsið - og knús á móti

Kv. niðurdregin Súsanna 

Súsanna (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 19:41

5 identicon

Kæra Áslaug, ég kíki hingað inn til að fá fréttir af henni þuríði þinni (eins og ég valdi í skoðanakönnuninni) en langar líka að segja þér að það er líka vegna þess að mér er ekki sama um hana þó ég þekki ykkur ekki neitt. 

En auk þess þá kennir þú manni ótrúlega mikið um lífið og tilveruna og ert sönn hetja í mínum augum.Meiga allir góðir vættir vaka yfir ykkur kæra fjölskylda, kv. Katrín

Katrín (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 20:38

6 identicon

Það er satt. Maður skilur ekki alltaf þennan þarna uppi né hvað þá fyrirætlanir hans með okkur. Vonandi finnum við einhverntíma og sjáum, að það er tilgangur með þessu öllu.

Guð blessi ykkur kæra fjölskylda þessa litla drengs. Ykkur verður bætt á bænalistann minn þar sem Þuríður lítla skipar sinn daglega sess.

Ylfa

ylfa (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband