Leita í fréttum mbl.is

Gamanmyndir

Eitt það mikilvægasta sem við gerum er að taka myndir af börnunum okkar og safna í bankann okkar enda eigum við tugi þúsunda mynda af þeim og þá er ég ekkert að ýkja.  Myndavélin okkar er nánast alltaf með okkur ef við erum að gera eitthvað en fyrir ca þremur vikum fórum við til þeirra í Gamanmyndum og fengum myndirnar frá þeim í dag og þetta er með þeim bestu myndum sem ég hef nokkurn tíma litið á.W00t   Ástæðan er náttúrlega einföld, jú þeir hefðu ekki geta fengið fallegri fyrirsætur sem elskuðu að láta taka myndir af sér.  Við fengum um 40 unnar myndir frá þeim en einhver hundruð óunnar og svona án gríns þá er Maístjarnan mín hlæjandi á þeim ÖLLUM, það er alveg yndsilegt að sjá hvað hún er kát og hvað henni fannst þetta gaman.  En ég ætla að byrja á því að sýna ykkur nokkrar af Maístjörnunni minni og ef þið eruð heppin fáiði líka að sjá nokkrar af hinum á næstu vikum. 

Ég hreinlega skil það ekki afhverju þau eru ekki komin með módelsamning útí heimi eða að fólki hneykslist á því að mig langi í það fimmta enda þau allra fallegustu.  Jiiidúddamía!!Shocking
Gamanm_KJ_100816_5077_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5135_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5214_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5274_brt [1280x768]

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegt að sjá Maístjörnuna svona líka káta. Falleg stelpa eins og þau öll systkinin. Bíð spennt eftir að sjá myndir af hinum fallegu börnunum ykkar.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 7.9.2010 kl. 20:42

2 identicon

Frábærar myndir :-)  Gaman að fá að sjá.

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 7.9.2010 kl. 20:51

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Virkilega flottar myndir af fallegum börnum

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.9.2010 kl. 22:00

4 identicon

Vá þvílík fegurðardrottning!

Eyja (IP-tala skráð) 7.9.2010 kl. 22:04

5 identicon

Kæra fjölskylda. Langaði bara að segja ykkur að við fylgjumst alltaf með blogginu þínu og sendum hlýjar og góðar óskir frá okkur hér á Greinó þótt við sjáum hana ekki lengur hlaupandi á göngunum. Ofsalega skemmtilegar og fínar myndir. Gangi ykkur allt í haginn nú og ævinlega, kveðja, María

María Játvarðardóttir (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 14:04

6 identicon

ÆÐISLEGAR myndir....já, endilega sýna okkur fleiri...svo falleg börn :) En það er greinilegt að hún er snilldar fyrirsæta!

Sirrý (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband