Leita í fréttum mbl.is

Blómarósin mín

Blómarósin mín er búin að æfa fimleika í ár og fimleikar eru eitt af því sem hefur hjálpað henni mest í að "gleyma sér".  Hún er að hálfan sólarhringinn og fær engan veginn leið á því að æfa sig, ég hélt að hún myndi kanski byrja kvarta undan verkjum og þreytu núna í haust þegar hún fór að æfa 4x í viku tvo tíma í senn en NEI hún má sko ekki missa af æfingu þó svo hún sé hálf lasin þá kemur það ekki til greina.  Hún hreinlega elskar fimleika og það hneykslast margir á því að við skulum "láta" hana æfa svona mikið aðeins sex ára gömul, við látum hana ekki gera neitt og hún er ekki neydd í að gera eitthvað sem henni langar ekki.  Ég er ótrúlega stollt af þessari stelpu einsog öllum hinum þremur en hún hefur þurft að vera í baráttunni með systur sinni alveg frá byrjun og þekkir ekkert annað en hún hefur fimleikana sem hjálpa henni mest til að gleyma sér og mér finnst það alveg frábært.  Ef hún fengi að ráða þá væri hún væntanlega á æfingum alla daga, reyndar æfir hún sig alla daga en þá er ég að meina með þjálfaranum sínum.  Maístjarnan mín lítur líka ótrúlega mikið upp til hennar og það hjálpar henni líka rosalega mikið því líkaminn hennar hefur styrkst rosalega mikið eftir að hún byrjaði í sínum fimleikum því henni langar svo rosalega mikið að vera einsog "litla" systir.

Hérna er smá myndband af Blómarósinni minni gera pínu æfingar:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá hvað hún er flott fimleikastelpa..

Ég kenndi fimleika í mörg ár og sé að hún er ekkert smá efnileg :)

Linda ókunnug (IP-tala skráð) 19.9.2010 kl. 21:43

2 identicon

Váá hún er ekkert smá efnileg, þetta ung og ekki búin að æfa lengur en í ár! ;)

Hanna ókunnug (IP-tala skráð) 20.9.2010 kl. 09:10

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Úbbs,ertu þú líka með í þessum æfingum:):):)

Ekki amalegt að sjá tilvonandi Em-Hm-meistara með meiru:)

Hef heyrt að Rússarnir séu alltaf að njósna:)

Vera fyrirmynd systur sinnar og hjálpa henni í að styrkjast,nr 1 eru þær góðu stundir þarna saman sem veikindin "gleymast"aðeins..Bara frábært...

Fór sjúkraþjálfari hetjunnar ekki á atv.l.bætur eftir að Fiml.drottingin tók starfið af henni,hehe:):)

Fimleikarnir eru henni ær og kýr,og bara yndislegt að blómarósin fær smá útrás og getur einbeitt sér að sjálfri sér...

Ætla ekki að reyna herma eftir henni:):)

Góðar kveðjur..

Halldór Jóhannsson, 20.9.2010 kl. 17:57

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Flott fimleikastelpa

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.9.2010 kl. 17:58

5 identicon

Vá hvað hún er dugleg :) upprennandi fimleikastjarna. Gott að hún getur gleymt sér í þessu. Gangi ykkur vel

Anna Kristín (IP-tala skráð) 20.9.2010 kl. 23:20

6 identicon

Ekkert smá flott fimleikamær þarna á ferð :-)

Væri alveg til að geta smá af þessu heheh...

Begga Kn. (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 08:23

7 identicon

Vá :) Ekkert smá flott stelpan eins og öll ykkar börn! Þvílíkur kraftur að geta lyft sér svona upp á höndunum!!Vonandi heldur hún þessu áfram.

Hulda Magg (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 11:11

8 identicon

Ég er búin að sjá hana á æfingum og dáðst af henni hvað hún er dugleg og efnileg. Algjör fimleikasnillingur hér á ferð :)

Sirrý (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 18:15

9 identicon

Langflottust :)

Sóley fimleikaþjálfari (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 18:23

10 identicon

Efnileg og flott stelpa :)

Kristín (IP-tala skráð) 22.9.2010 kl. 20:14

11 identicon

Blómarósin ykkar MJÖG EFNILEG, glæsilegt hjá henni.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2010 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband