Leita í fréttum mbl.is

Illt í hjartanu

Einsog ég hef sagt þá var Þuríður mín súper hress síðustu viku, það var alveg æðislegt að sjá hana en samt var einsog ég gat ekki glaðst í mínu hjarta það var einsog ég væri með allan varan á.  Að sjálfsögðu reynir maður að gleðjast yfir hverjum góðum degi sem við fáum og sjáum hana svona glaða,  hressa og krampalausa en það er samt eitthvað sem ég veit ekki?  En ég veit samt núna afhverju mér líður svona illa í hjartanu, við vöknuðum við geðveikt öskur í morgun í henni Þuríði minni. Í fyrstu vissum ekkert hvað var í gangi, Þuríður mín bara hágrét sem hún er ekki vön og sagðist svo vera svo illt í höfðinu.  Eftir nokkrar mínútur sáum við afhverju hún þjáðist svona, hún fékk svo ótrúlega ljótan krampa.  Hún hreinlega grét við hvern krampa sem hún fékk og sagðist vera svo illt í höfðinu, þið getið ekki ímyndað ykkur hvernig mér leið.  °

Ég hef aldrei séð hetjuna mína þjáðst svona hvað þá kvarta yfir verkjum en það hefur reyndar aukist síðustu vikurnar sem hún hefur kvartað eitthvað.  Kramparnir hennar hafa breyst eða á fimtudaginn byrjuðu þeir að breytast, hún dettur ekki lengur svona niður hún reynir einsog hún getur að halda höfði eða standa uppi og það gengur svona upp og niður.  En svo í morgun voru þeir verstu sem ég hef bara því ég sá hvað Þuríði minni leið illa og þjáðist svona líka, þetta var ömurleg sjón.  Ég líka hágrét með henni og Oddný mín fann líka að það var eitthvað meira en að og vildi knúsa mömmu sína og svo var hann Theodór minn líka farinn að grenja en það má nú reyndar engin gráta í kringum hann, hann finnur til með öllum sem gráta greyjið.  Ég reyni oftast að fela það fyrir krökkunum ef mér líður illa vegna Þuríðar minnar en það var bara ekki hægt í morgun, mér er líka ótrúlega illt í hjartanum mínum.  Það geta að sjálfsögðu verið margar ástæður fyrir því að kramparnir hennar eru farnir að breytast og þær geta verið slæmar og góðar, ég ætla að leyfa mér að trúa því að þær eru góðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

stórt knús á ykkur

Boston (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 14:36

2 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Orð eru svo fátækleg í aðstæðum eins og ykkar fjölskyldunnar. Ég vildi að ég ætti til orð sem virkilega gætu einhverju breytt ennþau á ég ekki til. Ég dáist að tjáningu þinni. Hún hjálpar öðru fólki sem hefur þörf fyrir að tjá sig um erfiðleika í líkum skala og fjölskylda þin er að takast á við. 

Megi allur sá styrkur sem þið þarfnist vera til staðar fyrir ykkur öll á þeim tíma sem þið þarfnist hans mest. 

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 27.1.2007 kl. 17:04

3 identicon

Elsku Áslaug, mér finnst svo leiðinlegt að lesa þessar fréttir,Vona að Guð gefi að trú þín á að ástæðurnar séu að þetta sé að lagast.  Mér finnst lífið eitthvað svo hræðinlega ósanngjarnt að svona lítil ,yndisleg stúlka þurfi að þjást svona.  Ég minnist hennar í bænum mínar og ykkar allra. Guð veri með ykkur.

Þórdís tinna (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 18:53

4 identicon

´ÆÆ hvað það er leiðinlegt að lesa þetta við biðjum fyrir henni/ykkur,biðjum guð og alla hans engla að vernda og passa Þuríði Örnu og hjálpa henni að líða eins vel og hægt er. Innilegar baráttukveðjur Guðrún Bergmann og co.'

Guðrún Bergmann Franzdóttir (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 19:21

5 Smámynd: katrín atladóttir

æææ elsku kellingin hún þuríður:(

ég finn óendanlega mikið til með ykkur elsku vinkona 

katrín atladóttir, 27.1.2007 kl. 19:23

6 identicon

Sæl

Ég er ykkur ókunnug en fylgist með. Hef sjálf gengið í gegnum erfiða tíma í veikindum barns þar sem tvísýnt var um tíma hvort hefðist. Veit hversu erfitt getur verið að halda andliti, sérstaklega þegar önnur  börn eru á heimilinu. Þið eruð greinilega yndislega samhent fjölskylda og ég vona af öllu hjarta að þessi barátta sigrist.

Munið að hamingjan hvílir í núinu og njótið hverrar mínútu sem best.

Kv. GLA 

GLA (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 19:58

7 identicon

Elsku litla sæta frænka. En leiðinlegt að lesa þetta. Vona að henni fari nú að líða betur og myndatakan komi með eitthvað jákvætt eða þá að það verði fleiri úrræði fyrir hana litlu dúlluna. Ég fæ alveg illt í hjartað núna.

Biðjum að heilsa og sendum ykkur styrk til að takast á við allt saman

Ívar, Anna og skvísur (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 20:13

8 identicon

Sæl kæra fjölskylda

Það er engin leið að gera sér grein fyrir því hvað þið eruð að ganga í gengum.  Ég vona að þið fáið stuðning og finnið styrk til að standa undir þessu öllu.  Ég á erfitt með að komast í gegnum miklar martarðir sem sonur minn er með margar nætur, en það kemst ekki nálægt því sem þið upplifið og því get ég ekki ímyndað mér hversu erfitt þetta er fyrir ykkur.

Vil hrósa ykkur fyrir að reyna að fá útrás fyrir tilfinningarnar með því að skrifa hér inn, og einnig fyrir kjarkinn að leyfa okkur öllu þessu ókunnuga fólki að fylgjast með baráttu ykkar.

bestu óskir, k.skj

k.skj (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 21:47

9 identicon

Ekki get ég sett mig í þessi spor þín og ykkar til fullnustu Áslaug mín. Ég get bara rétt ímyndað mér hvað þú ert að ganga í gegn um. Allur þessi sársauki. Það er ekkert verra til en að horfa á litla sakleysingja þjást. Það veit ég. Ég vildi að ég gæti gert eitthvað til að henni og ykkur liði betur  en ég veit að það eina sem hægt er að gera er að fara með bænirnar og trúa á það, að þjáningum ykkar linni fljótt. Mér finnst gott hjá ykkur að deila þessu með okkur hinum. Okkur veitir ekki af því að líta upp úr eigin lítilfjörlegu tilveru af og til og beina fallegum, kraftmiklum hugsunum til litlu manneskjunnar hennar Þuríðar. Mig langar að deila svolitlu með þér sem þú hefur kannski þegar lesið. Það hjálpaði mér á slæmum tíma.

 Loforð Guðs:

Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein,

né blómskrýddir gullstígar alla leið heim.

Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar

á göngu til himinsins helgu borgar.

En lofað ég get þér aðstoð og styrk,

og alltaf þér ljósi þó leiðin sé myrk.

Mundu svo barn mitt að lofað ég hef,

að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.

Elsku Áslaug mín. Ég veit að á svona erfiðum stundum gremst manni út í almættið. Finnst eiginn vera að heyra allar bænirnar, grátinn og áköllin. Það eina sem við getum er að trúa. Vona það besta. En stundum bregst kjarkurinn, styrkurinn hverfurog vonirnar bresta. og þá trúi ég og vona, að í kring um ykkur sé skjaldborg fólks sem elskar ykkur og styður í sorgum ykkar; -og gleði.

Guð blessi ykkur.

Ylfa og fjölsk (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 00:11

10 identicon

Það er svo ofboðslega erfitt að lesa þetta. ég vildi óska að ég gæti borið eitthvað af sársaukanum þínum.  Sendi ykkur alla mína orkustrauma, vonandi verður þetta betra á næstunni

Svava S.S. (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 04:15

11 Smámynd: Elsa Nielsen

Ofsalega er leiðilegt að heyra hvað hún Þuríður litla hetja er að þjást.

Sterkir straumar og endalaust knús til ykkar allra.

Elsa Nielsen, 28.1.2007 kl. 15:39

12 identicon

Elsku Áslaug mín við biðjum fyrir elsku hetjunni henni Þuríði og ykkur líka. Kveðja og knús til ykkar Unnur 

Unnur Einarsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 16:20

13 identicon

Sæl Áslaug, ég er ókunn og þú þekkir mig ekki en við fjölskyldan fylgjumst reglulega með ykkur og biðjum fyrir ykkur á hverju kvöldi, rosalega fannst mér ég finna fyrir sársaukanum þínum í skrifum þínum núna, finn svo til með þér og ykkur, veit ekki hvernig það er að vera í þínum sporum en veit sjálf að ef barnið mitt líður illa eða hefur háan hita þá gerir maður ALLT sem maður getur svo að það líði sem best. Vildi að ég gæti gert eitthvað fyrir ykkur:( finn svo til með ykkur, við biðjum Guð um að gefa ykkur góða og krampalausa daga framundan, að drottinn megi þerra tárin þín og gefa þér aukin kraft á hverjum degi. Hugsa til ykkar. Kærar kveðjur, Nada og fjölskylda.

Nada Sigríður (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 20:49

14 identicon

Elsku fjölskylda.

Ég finn svo til með ykkur. Ég les síðuna ykkar á hverjum degi og bið þess og óska að litla hetjan ykkar nái bata. Ég dáist að því hvað þið eruð yndisleg fjölskylda og hve vel þið standið saman.

Bestu kveðjur, Elsa Lára Arnardóttir og fjölskylda Akranesi.

Elsa Lára (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 21:05

15 identicon

Verð að kvitta núna því ég fer oft inn á síðuna þína til að fá fréttir af ykkur, hvernig ykkur gengur í þessari erfiðu baráttu.  Ég hef fullan skilning á  að þér skuli vera íllt í hjarta þínu og getir ekki ráðið við tárin.þetta er þvílíkur sársauki sem þið eruð að ganga í gegnum  ég finn svo til með ykkur að ég fæ oft sting í hjartað þegar ég les fréttir af ykkur og .Takk fyrir hvað þú ert dugleg að tjá þig og takk fyrir að þú skulir gefa  okkur þann tíma sem tekur að bloga.Ég bið fyrir ykkur og kveikji oft á  kerti .Guð veri ykkur góður.Kveðja til ykkar allra Birgitta                          

Birgitta Guðnadóttir (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 22:04

16 identicon

Elskulega fjölskylda, svakalega var erfitt að lesa þessa færslu og hvað maður finnur til með elsku litlu stelpunni. Hef fylgst með ykkur lengi en ekki dugleg að kvitta en þið eruð í bænum mínum og ég vona svo innilega að litla hetjan nái fullum bata því kraftaverkin gerast. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með baráttunni ykkar Áslaug þið eruð algjörar hetjur. Guð geymi ykkur öll kv Jóhanna

Jóhanna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 22:55

17 identicon

Auðvitað sigrar hún, auðvitað, það er allthægt, þú sást leik íslands við frakka, hugrekki og trú og það er sigur í höfn. Gangi ykkur vel og gráttu bara það léttir á hjartanu og sinninu elskunar. 

Hér lifir á kerti fyrir fallega fjölskyldu með kærleikann að leiðaljósi. Ykkar frænka Sigga Gulludóttir 

Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 23:11

18 identicon

Þetta eru nú ekki góðar fréttir af henni Þuríði, elsku gullinu. Vonandi að þetta sé ekkert slæmt. Held alltaf í vonina með ykkur. Hugsa mikið til ykkar.

Baráttukveðjur Magga K

Magga k (IP-tala skráð) 29.1.2007 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband