Leita í fréttum mbl.is

...

Ég er oft búin að ætla koma hingað og "drita niður" nokkrum línum en ég er bara búin að vera gjörsamlega tóm og er en reyndar.  Það er mikill kvíði í gangi vegna verðandi rannsókna, Maístjarnan mín kvartar undan verkjum í baki og neitar að sofa í rúminu sínu þar sem henni finnst það vont.  Við erum nýbúin að kaupa rúm handa henni svona "fullorðins" þar sem Hinrik mínum vantaði nýtt fyrir sig, keyptum það reyndar "bara" í Rúmfatalagernum ódýrt og fínt en hún er engan veginn að fíla það svo kanski á endanum þarf hún eitthvað fullkomnara og dýrara, veit það ekki?  Það á að segulóma bakið á henni um leið og höfuðið (9.nóv)vegna þess hvað hún kvartar mikið sem er ekki eðlilegt.

Allir hressir og kátir, leikhús-helgi framundan þar sem við fjölskyldan ætlum að skella okkur öll saman.  Hinrik minn á leiðinni í sína aðra leikhúsferð og ég hlakka mikið til að sjá hvernig hann verður í þessari ferð.  Styttist líka hratt í draum Maístjörnu minnar sem ég get hreinlega ekki beðið eftir.   ....sem betur fer eru líka skemmtilegir hlutir framundan svo maður getur aðeins gleymt sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

 hugsa alltaf til þín og þinna

Ragnheiður , 29.10.2010 kl. 16:58

2 identicon

Úff.. leiðinlegt að heyra að hún sé með verki í bakinu :(

vona að þið náið að gleyma ykkur aðeins yfir skemmtileguhlutunum og að þú náir að hvíla þig aðeins þó það sé erfitt:)

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 29.10.2010 kl. 19:19

3 identicon

Fylgist alltaf með blogginu þínu og hetjulegri baráttu ykkar.

Krossa fyrir ykkur alla fingur og vona að þið fáið góðar niðurstöður þann 9.nóv.

kv

ókunnug.

Helga (IP-tala skráð) 29.10.2010 kl. 21:24

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Verum bjartsýn - góða helgi

Hólmfríður Bjarnadóttir, 29.10.2010 kl. 22:08

5 identicon

Eigið góða helgi!

Vona svo innilega að þið fáið góðar niðurstöður eftir segulómunina!

Þórunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 30.10.2010 kl. 20:35

6 identicon

Það er eins og alltaf Áslaug, maður fyllist endalausri aðdáun við að lesa línurnar þínar.

KJARKUR VONIR TRÚ er það sem einkennir þig en samt ótti sem sannarlega er ekki skrýtið, en við trúum og treystum að okkar stúlka sé ekki með mein í baki og sæki í mömmu og pabbarúm af góðum og gildum ástæðum og noti nýja rúmið sem ástæðu.

Þið og ÞÚ eruð endalaust frábær.  Ég sendi til ykkar allt það besta og fallegasta sem hægt er að senda í línum til ykkar allra,  engla og kærleikskveðjur

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 1.11.2010 kl. 10:13

7 identicon

Mikið fær maður stóran hnút í magann við að lesa þetta allt Áslaug, svo að ég get vel skilið að ykkar kvíðahnútur sé stór.

Krossa líka fingur fyrir ykkur og vona og bið um góðar niðurstöður úr rannsóknunum á HETJUNNI MIKLU :-)

Hlakka líka til að heyra/lesa um draum skvísunnar.

Hafið það sem allra allra best!!!

Kærar kveðjur frá DK

Begga Kn. (ókunnug) (IP-tala skráð) 1.11.2010 kl. 12:32

8 identicon

Guð veri með ykkur kæra fjölskylda í hetjulegri baráttu ykkar.

Sæunn ókunnug (IP-tala skráð) 1.11.2010 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband