Leita í fréttum mbl.is

Svíf á bleiku skýji

Helgin var FULLKOMIN í alla staði.  Alveg yndislegast í heimi fyrir okkur að fá að upplifa draum Þuríðar minnar sem var að sjálfsögðu okkar draumur.  Þvílíkt moment þegar sýningin var að hefjast, ég átti rosalega erfitt með mig enda rosalega tilfinning að sjá barnið sitt upplifa sinn stærsta draum.  Ég var með gæsahúð allan þann tíma sem sýning var, Þuríður var eitt bros í framan þegar sýningin var að hefjast og Oddný mín skellihló allan tíman enda var þetta ekkert minni draumur hjá henni.  Já þetta var SNILLD í alla staði!

Við gerðum nokkra aðra hluti á meðan við vorum í London t.d. skruppum við í moll sem heitir Westfield en við lásum að söngkonan Rihanna yrði stödd þar til að kveikja á jólaljósunum og þvílík fagnaðarlæti þegar sönkonan mætti á svæðið.  Rosalega gaman að fá að upplifa svona stemmningu og stelpunum fannst það sko geðveikt.  Kíktum líka í Natural history museum sem var rosalega gaman að sjá, ég ætlaði mér nú að versla jólaföt á stelpurnar mínar í þessari ferð en fann EKKERT sem mér finnst alveg ótrúlegt.  Fötin þurfa greinilega að vera of fullkomin og fást ekki einu sinni í London enda fullkomnar stelpur sem ég áWink.  Eini "hausverkurinn" fyrir jólin og það er að velja fullkomnu jólafötin á stelpurnar mínar enda búin með allt hitt.

Já einsog ég sagði þá var þessi ferð algjörlega FULLKOMIN og ég svíf á bleiku skýji og það verður að sjálfsögðu svoleiðis áfram þó svo ég sé hrikalega kvíðin fyrir morgundeginum en þá fer Þuríður mín í rannsóknir sínar og þá verður segulómað bakið í leiðinni.  Við ÆTLUM okkur að fá bestu fyrirfram jólagjöfin okkar á morgun enda ekkert annað í boði.

Þið megið krossa alla putta og tær og hugsa fallega til Maístjörnu minnar á morgun.

Gleðileg jól.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Áslaug og fjölskylda við sendum ykkur hlýjar kveðjur og biðjum fyrir góðum fréttum, baráttukveðjur Guðrún og co.

Guðrún Bergmann (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 11:25

2 identicon

Frábært að heyra hvað þið skemmtuð ykkur vel!! Yndislegt! kv. Ásdís

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 11:32

3 identicon

Frábært að lesa hvað þetta heppnaðist allt vel

Nú leggjumst við bara öll á bæn og biðjum um bestu útkomuna fyrir Þuríði Örnu.

Baráttukveðja af Skaganum,

Helga

Helga Arnar (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 11:47

4 identicon

Elsku fjölskylda yndisleg helgi að baki ,svo verða bara en yndislegri fréttir úr rannsókninni af BROSdúlluni,baráttukveðjur Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 11:55

5 identicon

Gangi ykkur vel á morgun :-)

Brynja (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 14:14

6 identicon

Við hugsum vel til ykkar allra daga og gerum það líka á morgunn. Yndislegt hvað þið skemmtuð ykkur vel og áttuð góða daga saman. Baráttukveðja :)

Sirrý (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 14:16

7 identicon

Endalaust gaman að heyra af þessu, auðvitað hlaut þetta að verða einmitt svona.

Já það er bara eitt sem má koma út úr rannsókninni og það er gott, þetta álag á ykkur er ekki eðlilegt, endalaus bið, og spenna sem einmitt fylgir biðinni.

Þó það sé lítil huggun þá er öruggt að við öll sem fylgjumst með ykkur fallegu duglegu hetjunum erum með í maganum þar til niðurstaðan liggur fyrir.

Guð gefi að hún verði góð, þess óskar Sólveig með kærri kveðju

Sólveig (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 14:16

8 identicon

Gaman hvað helgin tókst vel. Hugsa til ykkar og bið þess að allt gangi vel á morgun.

Krisín (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 15:11

9 identicon

Frábært að heyra með ferðina ykkar! :)

Bið fyrir ykkur öllum á morgun. Gangi ykkur vel.

Dagbjört ókunnug (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 15:21

10 identicon

Yndislegt að lesa hvað allt var gaman í London.  Hugsa til ykkar á morgun.

Þorgerður (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 15:34

11 identicon

Vona að dagurinn í dag verði sá allra besti. Megi algóður gefa ykkur að svo verði.

Berglind (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 16:03

12 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sigurður Haraldsson, 8.11.2010 kl. 16:55

13 identicon

Yndislegt, fékk gæsahúð við að lesa lýsingarnar, fullkomnar stelpur sem þið eigið! Hugsum til ykkar á morgun og óskum Þuríði góðs gengis á morgun, hún á eftir að massa þetta stelpan!!!

Kveðja úr Mosó

Eyja (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 18:11

14 identicon

Hugsa til ykkar á morgun!

Jenny (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 21:40

15 identicon

Kærleikskveðjur<3

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 21:45

16 identicon

yndislegt að lesa þetta :) hugsum til ykkar á morgun 

kærleiksknús til ykkar :)

Dagrún (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 22:13

17 identicon

Hugsa til ykkar í dag, vona af öllu mínu hjarta að allt komi vel út.

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 07:49

18 identicon

Frábært að sjá að helgin var vel heppnuð hjá ykkur. Hugsa hlýtt til ykkar alla daga, en extra mikið í dag.!!!! Gangi ykkur vel, ekkert annað í boði.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 08:20

19 identicon

Yndislegt að heyra hvað þið áttuð frábæra ferð saman,

Það á allt eftir að ganga vel í dag, eins og þú segir þá er ekkert annað í boði.

Edda Bjork (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 08:43

20 identicon

Hér er allt í kross fyrir góðu gengi og ekki laust við að það sé hnútur í mallanum líka :-S Vona svo heitt og innilega að allt komi vel út hjá ykkur og sendi ykkur alla mína orkustrauma.

Mikið var gaman að "heyra" hvað það var gaman hjá ykkur um helgina.

Knús og kærar kveðjur til ykkar allra!!!

Begga Kn. (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 12:19

21 identicon

Yndisleg helgi að baki greinilega :)

Hugsa svo mikið til ykkar í dag!! Knús og kram!

Lilja ( ókunnug ) (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 12:43

22 identicon

Gaman að ferðin var ánægjuleg.

Læt ljós skína í dag fyrir ykkur. Vona að allt gangi eins vel og áverður kosið.

Dagný Gísladóttir (ókunnug) (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 13:21

23 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er ég glöð fyrir ykkar hönd með hvað helgin hefur verið frábær. Sendi ykkur kærleiksríkar hugsanir

Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.11.2010 kl. 14:47

24 identicon

Hugsa til ykkar... og rakst á þetta lag...

http://www.youtube.com/watch?v=sm5Xv4T1uzw&feature=related

Svandis Ros (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 17:24

25 identicon

Fékk tár í augun að lesa þetta og sjá. Vona heitt og innilega að þið fáið jólagjöfina ykkar uppfyllta. Knús á ykkur og sætu stelpuna ykkar.

Katla (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 22:10

26 identicon

Frábært að ferðin tókst vel. Og gangi ykkur vel :)

Helga ókunnug (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 22:50

27 identicon

Gott að heyra að ferðin tókst vel, krossa putta fyrir hetjunni og ykkur öllum, kærleiksknús

Sæunn ókunnug (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 01:05

28 identicon

Bið fyrir ykkur öllum . Knús...

Soffía (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 10:45

29 identicon

Yndislegt hvað ferðin tókst vel hjá ykkur um helgina, ég er líka mamma mia aðdáandi , er núna með hugann við rannsóknirnar og vona að Guð gefi að þær verði eins og best verður á kosið.

Bestu kveðjur til ykkar allrar fjölskyldunnar og spec til Hetjunnar ykkar.

Ragna (ókunnug).

Ragnhildur Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband