Leita í fréttum mbl.is

‎"Ég veit hvað ég vil fá um jólin"

er gjafmildin er svo hrein.
Á óskalistanum er aðeins ósk ein.

Ég veit hvað ég vil fá gefins í ár.
...Mín von er sú óskin rætist brátt.
Ég er pínulítið kvíðin
það er kannski of mikið
sem ég vil fá.
Ég vona ég eigi það skilið
ég skyldi mega dreyma
það megar allir jólunum á.

Já ég á mér bara EINA ósk um jólin og ég vona svo heitt og innilega að hún rætist, jú hún er frekar stór en hún kostar enga peninga.  Það er alveg komin tími til að Maístjarnan mín fái að upplifa veikindalaust líf, það eru komin sex ár síðan hún veiktist fyrst, fimm ár síðan hún fór til Boston í aðgerð og stúlkan aðeins átta ára gömul.  Hún þekkir ekkert annað en veikindi og baráttu, hún á það mikllu meira en skilið að fá að lifa einsog "við eða þú og ég".  Virkilega ósanngjarnt líf. 

Við fjölskyldan erum farin að undirbúa jólin, "hentum" Skara útá pall í dag og hann setti upp jólaseríurnar á pallinn, pöntuðum okkur fjölskyldujólahlaðborðið á Geysi, ætlum að hitta jólasveininn næstu helgi eða þegar Hinrik minn Örn mun halda uppá 2 ára afmælið sitt  og þau eru öll svakalega spennt fyrir næstu vikum enda mikið til að hlakka til sem betur fer.  Við eigum okkar hefðir fyrir jólin og ein af þeim er að fara útað borða á Þorláksmessu og núna pöntuðum við okkur borð á Fabrikkunni sem er okkar uppáhalds staður, jebbs við erum mjög skipulögð á þessu heimili.Grin

Sem sagt margt skemmtilegt framundan sem við getum gleymt okkur íSideways.  Enda færsluna á verðandi afmælisbarni eða litla jólahnoðranum mínum sem var reyndar skráður í des en var eitthvað að flýta sér í heiminn annað en systkin sín.
arsenal_2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Vona og bið að óskin þín verði uppfyllt kæra bloggvinkona. Auðvitað er þetta líka ósk fjölskyldu þinnar, vina og vandamanna og svo okkar allra sem höfum með einum eða öðrum hætti fylgst með hinnu löngu veikindasögu Þuríðar Örnu. BIÐ SVO HEITT AÐ  ÓSKIN RÆTAST.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.11.2010 kl. 18:24

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er hann flottur sá tilvonandi tveggja ára. Það eru bráðin ömmuhjörtu út um allt land sem hafa horft er drenginn.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.11.2010 kl. 18:27

3 identicon

Ég vona að óskin þín rætist núna, þið eigið það skilið. Finnst frábært hvað þið eruð dugleg að gera eitthvað skemmtilegt saman.

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 14.11.2010 kl. 19:42

4 identicon

Ég er þér hjartanlega sammála og óska þess innilega að þið eigið yndisleg og góð jól ÖLL SÖMUL. Vá hvað tíminn líður hratt mér finnst svo stutt síðan Hinrik Örn fæddist. FLOTTUR!!!!

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2010 kl. 20:26

5 Smámynd: Ragnheiður

vonandi rætist óskin, þú hefur vonandi hleypt Skara inn aftur. Drengurinn er yndisfríður eins og þau hin fallegu börnin

Ragnheiður , 14.11.2010 kl. 21:42

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sitji guð englar yfir ykkur

Sigurður Haraldsson, 15.11.2010 kl. 02:32

7 identicon

:) Vá hvað tíminn líður hratt!! Mér finnst svo stutt síðan ég var að fylgjast með þér og þú áttir von á þér :) Ég vona af öllu hjarta að óskin ykkar rætist!

Hulda (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 08:11

8 identicon

Halló elsku fjölskylda....

megi guð og englar vaka yfir ykkur nú og alltaf. Gaman að þið skulið vera byrjuð að setja ljós og frið upp í kringum ykkur. Hugsa til ykkar og  bið fyrir ykkur dag og njótt. Knúsið strumpana ykkar frá mér.

Kveðja Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 23:54

9 identicon

Bið að óskin þín rætist..... kv. Ásdís

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 16.11.2010 kl. 16:59

10 identicon

Ég kveiki á kertum fyrir ykkur öll. Strákurinn litli er svo fallegur:) hann er svo líkur Þuríði finnst mér:)

Auður Brynjólfsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband