Leita í fréttum mbl.is

Einu sinni var...

Fyrir þremur árum var dag-lyfjaskammtur Maístjörnu minnar þessi:
lyf
Í dag er hann "bara" bláu töflurnar og þessar tvær hálfu, þvílíkur munur en hún tók þennan skammt einsog ekkert væri og þurfti ekki einu sinni vatn með og þarf þess heldur ekki í dag.  Þennan skammt af töflum ætlum við ALDREI aftur að sjá, það náttúrlega kraftaverk að stúlkan er "bara" á einu flogalyfi en á þessum tíma var hún á fjórum tegundum.

Hún er ágætlega hress, reyndar farin að þreytast smávegi og við þurfum að vekja hana orðið á hverjum morgni til að fara í skólann sem er mjög óvenjulegt þar sem hún er vön að vakna kl ca sex á hverjum morgni.  Hún "rotast" líka alltaf á slaginu átta og sefur í 11 tíma.  Hún er ekki lengur að meika fimleika-tímana sína, vill samt alltaf fara en meikar svo ekki að gera neitt þannig það er kanski kominn tími á að hvíla þá í smá tíma? 

Hérna er ein af þeim systrum í lokin fyrirutan leikhúsið í London strax eftir sýningu:
IMG_4211


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi, hvað þær eru alltaf yndislegar báðar tvær!  Vonandi fer þreytan að kveðja Þuríði svo hún geti notið lífsins eins og hún á að geta gert.  Knús í kotið,  Ásdís

Ásdís (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 21:03

2 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir komuna mín megin Áslaug mín. Vonandi hverfur þessi þreyta um leið og bjúgurinn í æxlinu hennar. ..við viljum bara góðar fréttir !!

Knús á ykkur öll

Ragnheiður , 18.11.2010 kl. 21:53

3 identicon

Kraftaverkahetjan ykkar<3

Það er nú í lagi að hvíla sig aðeins á sportinu...

Falleg mynd<3

Kveðja...

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 23:57

4 identicon

Yndisleg mynd af sætu systrunum. Óska þess að þið eigið notalegar stundir núna á aðventunni og að jólin verði ykkur góð, kæra fjölskylda.   Góða helgi!!!

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 08:28

5 identicon

Risa knús í hús, alltaf sömu snillingarnir þar.

kærleikskveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 11:41

6 identicon

Vá hvað hún er dugleg að taka töflur lita hetjan þín. Flott mynd af systrunum :)

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband