Leita í fréttum mbl.is

Ástandið

Þuríður mín fékk að sjálfsögðu að sofa út í morgun, hún var reyndar ekkert súperhress þegar hún vaknaði en við ákváðum samt að leyfa henni að prufa fara í leikskólann.  Vonandi hressist hún eitthvað við það stúlkan, annars lá hún bara fyrir í gær eða þanga til Linda og Sindri Snær mættu á svæðið þá hresstist stúlkan aðeins við.  Maður sá hana meira að segja brosa, æjhi hún er alltaf svo glöð að hitta uppáhaldin sín. Svo þegar leið á kvöldið byrjaði hún að slappast aftur en það er líka náttúrlega vegna þess hún er orðin þreytt og þá blandast þetta allt saman, hún svaf reyndar mikið í gær sem var kanski líka bara gott.

Læknarnir hennar vilja hitta hana á morgun en það geta verið tvær ástæður fyrir þessum slappleika og að sjálfsögðu mun ég trúa því að ástæðan sé þessi betri en ég ætla ekkert að tala um það fyrr en við erum búin að hitta þá á morgun.  Hjúkkan okkar er eftir að ná í einn lækninn hennar til að ath hvort betri ástæðan sé ekki bara fyrir þessum slappleika.

Annars rauk hitin upp hjá Theodóri mínum í gærkveldi, ég var farin að hlakka til að kíkja aðeins út í dag en það verður víst ekki strax þar sem Skari er að ná í Oddnýju mína á leikskólann en hún er líka komin með hita.  Þannig það er ástand á heimilinu.

Sáum enga krampa hjá henni Þuríði minni í gær sem er frekar gott ekki einu sinni smjöttin svoþað er ennþá betra, svo er eiginlega búið að ákveða að Þuríður mín fari í myndatökur í kringum 20.febrúar.

Farin að sinna veiku börnunm mínum sem þurfa mikla athygli og knús.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ohh já það má segja að það sé ástand á heimilinu :( hafið  það gott í dag og njótið þess að kúra með krílunum já efa það er hægt :)

 koss og knús í kremju

Þórunn Eva (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 11:00

2 identicon

Sendi ykkur mínar bestu kveðjur kæra fjölskylda.

Vona að börnin ykkar fari að hressast, öll þrjú.

Batakveðja, Elsa Lára (sem vinnur með Sessu frænku Óskas)

Elsa Lára (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 11:09

3 identicon

Það er aldeilis ástand. Vonandi að allir fari að hressast.  Gangi ykkur vel og vonandi er þetta að koma hjá henni Þuríði

Petra (ókunnug) (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 11:23

4 Smámynd: Elsa Nielsen

Góðan bata í kotið ;)

Knús frá mér!

Elsa Nielsen, 31.1.2007 kl. 11:48

5 identicon

Bestu óskir um góðan bata hjá börnunum.

Álfheiður (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 13:50

6 identicon

Æji þessi veikindi ekki gott.  Vona bara að þetta vari stutt yfir.  Sendi ykkur baráttukveðjur héðan úr Danaveldi.  Sónarinn verður eftir 5-6 vikur svo ég læt þig vita sem fyrst vínkona;)

kv. vínkonan í Danaveldi

Brynja Kolbrún (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 13:52

7 identicon

Búin að kveikja á kertum fyrir ykkur elskurnar mínar vona svo ynnilega að heisufarið fari nú að batna.það væri óskandi að þið fáið góðar fréttur á morgun þegar þið hittið læknin                             Kveðja til  stórfjöldskyldunar með ósk um góða daga Birgitta

Birgitta Guðnadóttir (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 22:09

8 identicon

Elsku Óskar og Áslaug

Það er misjafnlega mikið á fólk lagt, eins óréttlátt og það nú er. 

Þið eruð hetjur, yndislega samhent og frábærar fyrirmyndir annarra:O)

Hugsum til ykkar á morgun

Kveðja

Helga Unni og co

Helga Jónasdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 23:18

9 identicon

Vonandi góðar fréttir á morgun.

kv Unnur.

Unnur Einarsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 23:26

10 identicon

Sæl Kæra Fjölskylda,

Ég kveikti á kerti fyrir Þuríði á linknum hér til vinstri. Ég sendi ykkur barráttustrauma með von um að hetjurnar ykkar nái sér sem fyrst :) Ég vona innilega að ykkur gangi vel með Þuríði í dag hjá lækninum. Í dag munu straumar mína liggja yfir hafið til ykkar.

Guðrún

Kveðja frá mömmu í Kaupmannahöfn sem fylgist með vegna þess að henni er ekki saman.

Guðrún (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 07:57

11 identicon

Það hljómar ekki vel ástandið á heimilinu núna.  Vonandi fara allir að hressast og höldum í vonina.

Kv. Hrafnhildur Ýr

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband