Leita í fréttum mbl.is

Var á vaktinni í nótt

Ástandið á minni elskulegustu er bara svipað og síðustu daga nema mér finnst ég sjá að lömunin sé að koma aftur þannig mín ætlar að hitta einhverja lækna uppá spítala á morgun þar sem ég neita að minnka steraskammtinn á miðvikudaginn ef þetta er raunin.  Jú hún er algjörlega orku- og kraftlaus, það er ca klukkutíminn sem hún dugar en svo verður hún að leggjast fyrir og hvíla sig aðeins.  Við kíktum einmitt á jólasýninguna í Smáralindinni áðan og eftir tuttugu mín þá vildi Maístjarnan mín fara því henni leið bara ekkert of vel þarna.  Mikill hávaði og áreiti er eitthvað sem fer ekki vel í hana þannig núna liggur hún uppí rúmi sofandi.

Ég var á vaktinni í nótt með henni og það var ræs um tvö og við fórum þá að sjálfsögðu fram til að fá eitthvað gott í gogginn og svo var horft á teiknimyndir í tvo tíma eða þegar Maístjarnan mín var tilbúin að fara aftur uppí rúm að hvíla sig.

Já þetta eru virkilega erfiðir dagar hjá henni og manni líður ofsalega illa að horfa á hana einsog hún er, hún skilur að sjálfsögðu ekkert í því afhverju henni líður svona.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Blessað barn.

Auðvitað skilur hún ekki upp né niður í þessu.

Vonandi finnst eitthvað sem hentar henni meðan bjúgurinn minnkar

Knús á ykkur

Ragnheiður , 19.12.2010 kl. 18:18

2 identicon

Ég spyr eins og sá sem ekki veit.  Má ekki gefa henni eitthvað til að hjálpa henni að sofa?  Ég hef þurft að taka stera og þá hef ég fengið svefnlyf.  Það er svo mikilvægt í bataferlinu að sofa.  Og mikilvægt fyrir hjálparhellurnar líka :-)

 Ég vil óska ykkur innalega gleðilegra jóla og ekki síst farsældar á komandi ári.  Ég þakka kærlega fyrir mig, það er hvetjandi að sjá hvernig þið takist á við ykkar erfiðleika.

fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 19:02

3 identicon

Æi, elsku telpan og þið öll.  Vona að jólin verði samt sem besta móti hjá ykkur öllum.

Huldis (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 19:03

4 identicon

ég spyr eins og Ragnheiður, er ekki hægt að gefa snúllunni eitthvað til að hvílast.  leiðinlegt að hún geti ekki sofið á nóttunni, og þið líka.

 leiðinlegt að henni líði ekki nógu vel  ég hugsa til ykkar eins og alltaf.

bataknús

Lára Kristín (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 19:34

5 identicon

Vonandi fer þetta erfiða tímabil að líða hjá.  Baráttukveðjur til ykkar, hughrausta fjölskylda.

Anna

Anna Þorgrímsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 21:51

6 identicon

Erfit ,vonandi fer þetta að lagast ,svefn er svo mikilvægur fyrir hennar bata og fyrir ykkur svo að þið getið annast hana og börnin, ég vona að þið hafið góða hjálp.

Baráttu kveðjur Dagbjört

Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 22:42

7 identicon

bænar- og kærleikskveðjur

Aldís (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 23:34

8 identicon

Vonandi fer nú Maístjörnunni þinn að líða betur og þangað til sé hægt að finna eitthvað til að henni líði betur á meðan bjúgurinn fer.

Gangi ykkur vel í baráttunni.

Jóhanna (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 01:24

9 identicon

Greyið litla skottan.  Það er agalegt að geta ekki sofið.  Vonandi finnst einhver bót á því vandamáli...það er ekki ábætandi að vera svefnlaus.

Jólaknús til hennar =)

Ingveldur. (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 01:34

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sendi ykkur orku og batastrauma.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.12.2010 kl. 01:49

11 identicon

Sæl og takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með ykkur. Vona af öllu hjarta að litlu hetjunni batni sem fyrst og að þið eigið getið verið úthvíld og kát á jólunum :) Berglind

Berglind (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 09:36

12 identicon

Litla hetjan og stóra hetjan

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 09:47

13 identicon

Elsku Áslaug og þið öll, eins og alltaf setur mann hljóðan að lesa bloggið þitt, þessar erfiðu aðstæður lítill svefn og stjarnan þreytt og illa haldin og eflaust stöðugar áhyggjur.

En þú jákvæð, dugleg, æðrulaus og yndisleg, einhver sér þér fyrir krafti nú trúlega Guð og englarnir hans, það þarf svo mikið þegar gengur illa.

Sendi ykkur fjölskyldunni allt það besta sem hægt er í hugsun og fyrirbænum frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 09:54

14 identicon

Elsku elsku barnið, og þið öll. Hugsa svo mikið til ykkar. Vona svo innilega að henni fari bráðum að líða betur.

Svandís (ókunnug) (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 11:13

15 identicon

Elsku BROSdúllan,vonandi fer henni að líða betur ,er svo mikið álag lagt á hana og ykkur öll,en vonandi fer henni að líða betur og sofa vel,elsku fjölskylda hugurinn er alla daga hjá ykkur,muna að kveikja á kertinu hennar,baráttu kærleikskveðjur með stóru faðmlagi til ykkar.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 11:41

16 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

knús og kram til hetju mínnar

Guðrún unnur þórsdóttir, 20.12.2010 kl. 11:58

17 identicon

Batakveðjur og knús til hetjunnar minnar. Hugsa daglega til ykkar.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 12:39

18 identicon

Hæ og takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með ykkur áfram.

Ég datt inn á síðuna þína að ég held 2006 og hef fylgst með ykkur síðan. Ég á einmitt stelpu sem er á sama aldri og blómarósin þín. Mér finnst þið búin að standa ykkur alveg rosalega vel í þessari baráttu og ég er viss um að þið eigið eftir að vinna hana á endanum!

Baráttukveðjur og gleðilega hátíð!   

Hildur Arna (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 13:42

19 Smámynd: Elsa Nielsen

Elsku bestu öll. Knús til ykkar!!

Elsa Nielsen, 20.12.2010 kl. 14:55

20 identicon

Kæra fjölskylda, fylgist með baráttu ykkar á hverjum degi.  Megi allt gott vaka yfir ykkur og Maístjörninni ykkar. 

Sæunn ókunnug (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 18:26

21 identicon

Vonandi gátu læknarnir hjálpað Maístjörnunni eitthvað þannig að hún geti farið að sofa eitthvað og notið aðdraganda jóla.

Kveiki á kerti og bið fyrir ykkur - Helga

Helga (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 18:39

22 identicon

Vona að það verði hægt að gefa Þuríði Örnu eitthvað sem hjálpar henni að sofa, þó að það sé ykkur væntanlega líka erfitt að bæta á hana lyfjum.  Svo gengur  steragjöfin vonandi sem fyrst yfir, enda eru það örugglega sterarnir sem halda fyrir henni vöku.

eigið gleðilega jólahátið og gangi ykkur ætið sem best, kveðja Kristín

Kristín (ókunnug) (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 19:29

23 identicon

Elsku stelpan. Sendi ykkur orkustrauma og takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með.  Guð gefi ykkur gleðilega jólahátíð og góð áramót. Kærleikskveðja

Kristín (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 20:03

24 identicon

Elsku Dúllan,

Vonandi líður henni fjótlega betur og fær að sofa og kvílast

Bestu jólakveðjur til ykkar allra.

Kristín Ólafs

Kristín Ólafs (IP-tala skráð) 20.12.2010 kl. 20:31

25 Smámynd: Adda Laufey

Kæra fjölskylda,

þakka ykkur fyrir að leyfa mér að fylgjast mér.vona innilega að skvísunni líði bráðum betur.Gangi ykkur vel á næturvöktunum, tekur örugglega mikið á.Knús á ykkur og hetjuna

Bestu jólakveðjur til ykkar allra.

kv Adda laufey

Adda Laufey , 21.12.2010 kl. 01:41

26 identicon

Já þetta eru erfiðir dagar hjá ykkur. Vona að læknarinir hafi einhver góð ráð! Það er hræðilegt að ná ekki góðum svefni fyrir utan allt annað sem er í gangi. Sendi hlýja strauma á ykkur.

Bylgja (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 07:55

27 identicon

Elsku stelpan... sendi knús og góðar hugsanir til fallegu dömunar.

Linda (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 08:44

28 identicon

Sendi ykkur stórt knús með von um betri líðan hjá ykkur öllum....

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 08:52

29 identicon

Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með ykkur.

Eigið góð jól saman sterka fjölskylda, batnaðarkveðjur :)

Bylgja Dögg (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 09:15

30 identicon

Batakveðjur til litlu hetjunnar

Anna (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 09:51

31 identicon

Tek undir með þeim sem eru að velta fyrir sér svefnlyfjum. Bæði hún og þú verðið að geta sofið. Ég hef líka verið á sterum og þeir "tjúna " mann upp. Væg svefnlyf, róandi lyf eða ofnæmislyf geta unnið á móti. Svefninn er svo mikilvægur.

Elsku þið öll, það er sárt að sjá hvað þið eruð að kljást við mikla erfiðleika. Vonandi náið þið að njóta jólanna samt. Óska ykkur gleðilegra jóla og góðs nýs árs.

Birna

Birna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2010 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband