Leita í fréttum mbl.is

Þreytt Maístjarna

Vávh ég hef ætlað að skrifa hérna fimmtán sinnum í dag en hef bara ekkert að segja nema að Maístjarnan mín er virkilega þreytt og sefur meira og minna allan sólarhringinn.  Reyndi að gleðja sprengjuóða barnið mitt með stjörnuljósi en það virkaði ekki og þá er nú mikið sagt.Frown 

Hérna er ein af Blómarósinni minni á jóladag.
CIMG0087 [1280x768]

...og af henni ásamt íþróttaálfinum sem við hittum á spítalanum fyrir jólin, ekki margir sem fá að fara í splitt með honum hvað þá á mynd.Wink

PC160089 [1280x768]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

knús:*

katrín (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 20:41

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Svo dæmi sé tekið að áhugaleysi sjúklings, þá fæddist FYRSTA ömmubarnið mitt nokkrum dögum eftir að ég fór í heilaaðgerðina 1997 (til að fjarlægja æðagúlp) Maðurinn minn og dóttir mín fóru frá mér um 10 leitið um kvöldið 8 apríl og þá var þá var barnið ekki fætt. Þau sögðust myndu hringja um leið og þau fréttu eitthvað. Nei nei sagði ég, ég heyri það bara í fyrramálið.

Tangdadóttirin var búin að vera á annan sólarhring að fæða og mér var slétt sama (þá).  Manni getur nú blöskrað eigin áhugaleysi, en svona var þetta þá.

Sendi ykkur batakveðjur 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.12.2010 kl. 20:52

3 identicon

Sendi ykkur hlýjar hugsanir. Vona að fallega stelpan ykkar fari að hressast.

Linda (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 21:21

4 identicon

Hugsa til ykkar.

Kveiki á kerti fyrir fallega Maistjörnu

Anna (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 21:36

5 identicon

Kærleiksknús til þín/ykkar

Sigrún og co (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 22:09

6 identicon

Sendi ykkur hlýjar kveðjur. Vonandi fer fallegu stelpunni ykkar að líða betur. Kær kveðja:-)

Auður Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 22:09

7 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Knús í hús.... sprengjuóða skvísan þín verður vonandi á fullu fjöri á gamlá...eins gott að eiga nóg þá..

Er með kveikt á kertum...

kv..

Halldór Jóhannsson, 27.12.2010 kl. 22:11

8 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

knús og kram

Guðrún unnur þórsdóttir, 27.12.2010 kl. 22:32

9 identicon

Vonandi hressist Maístjarnan sem fyrst. Kveiki á kertum fyrir hana. Blómarósin sæt eins og alltaf.

Kærleikskveðjur og knús.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 22:34

10 identicon

Knús á ykkur Áslaug mín, vertu sterk þetta kemur allt saman, hún er svo seig stelpu rófan, ég hugsa til ykkar og hafið það sem allra best

Hulda Whalen (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 22:58

11 identicon

Hugur minn er hjá ykkur duglega fjölskylda

Aldís (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 23:29

12 identicon

Kæra fjölskylda. Mikið ofboðslega vildi ég að ég gæti gert eitthvað til að létta ykkur lífið.  Ég get allavega beðið almættið um kraftaverk fyrir Þuríði Örnu og kærleiksknús til ykkar hinna.  Megi nýja árið færa ykkur góða heilsu, gæfu og gleði. kv. Jóhanna ókunnug

Jóhanna (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 01:23

13 identicon

Knús á ykkur!

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 08:17

14 Smámynd: Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir

Knús og góðar kveðjur.

Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir, 28.12.2010 kl. 09:40

15 identicon

Kærleiks- og batakveðjur til ykkar.

Auður L (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 10:24

16 identicon

Kæra fjölskylda ég sendi ykkur stórt kærleiksknús frá Höfn...Ég vona svo heitt að Þuríði hetju fari að líða betur og geti notið gamlársdags með ykkur öllum við sprengingar og stjörnuljós...

Ég hugsa mikið til ykkar og Áslaug þú ert ótrúlega dugleg stelpa, haltu áfram því að leiðinni að hamingjunni fylgir bæði grátur og hlátur....

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 11:00

17 identicon

Hlýjar kveðjur til Maístjörnunnar og ykkar allra elsku Áslaug og fjölskylda. Hugsa mikið til ykkar og Þuríður er í bænum mínum. Gleðilega hátíð <3

Heiða Ólafs (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 15:02

18 identicon

Knús til ykkar!

Eyja (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 16:39

19 identicon

Það sem Þuríður er að ganga í gegnum og þið fjölskyldan er varla hægt að skilja, þó svo að ég geti sett mig í spor ykkar að einhverju leiti þá vantar alltaf mikið upp á! Maður á það til að væla og skæla út af smámunum og finnast hversdagurinn grár og leiðinlegur á meðan Þuríður og þið þráið hversdaginn. Það að horfa upp á barnið sitt missa þrótt og lífsgleði vegna veikinda er sennilega það erfiðasta sem foreldrar upplifa. En Áslaug, þú veist þetta er bara tímabil og brátt verður hún full af orku aftur, við vitum það og trúum. Enda engin venjuleg stúlka þar á ferðinni með frábært gengi sér við hlið. Sendi hlýja strauma á ykkur.

Bylgja (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 20:18

20 identicon

Æi, blessað barnið!  Hvað á að leggja mikið á litlu telpuna ykkar?  Vona samt svo sannarlega að áramótin verði aðeins betri hjá henni.

Huldís (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 22:06

21 identicon

Knús og kossar.  Hvað getur maður sagt ég vona að Þuríði fari að líða betur hún á það svo sannarlega skilið og þið öll, ég kveiki á kerti og hugsa til ykkar .Ég vona að næsta ár verði betra ég trúi því

kveðja Dagbjört 

Dagbjört J (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 22:27

22 identicon

sendi ykkur fallegar hugsanir.

gþ (IP-tala skráð) 29.12.2010 kl. 14:29

23 identicon

Ég er búin að hugsa svo mikið til hennar Þuríðar síðan ég vaknaði kl,6 í morgunn.Ég vona svo innilega að hún sé að hressast og líði betur,sendi ykkur hugheilar óskir um góða daga framundan.Kær kveðja Sigrún (ókunnug)

Sigrún (IP-tala skráð) 29.12.2010 kl. 16:15

24 identicon

Elsku barnið og þið öll.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 29.12.2010 kl. 17:35

25 Smámynd: Ragnheiður

Ósköp á að leggja mikið á þetta blessaða barn. Sá henni bregða fyrir í fréttunum, bjúgurinn alveg áberandi. Vesalings barnið.

Knús og kær kveðja til þín Áslaug mín. Þú stendur þig óskaplega vel við ómannlegar aðstæður !

Laaangflottasta mamman

Ragnheiður , 29.12.2010 kl. 20:34

26 identicon

Knús til ykkar elsku fjölskylda, þið eruð í bænum mínum, þú ert ótrúlega sterk kona, þetta hlýtur að hafa einhvern tilgang.

Sigríður Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 29.12.2010 kl. 23:16

27 identicon

Knús á ykkur öll

Elín Helga ókunnug (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 10:31

28 Smámynd: Adda Laufey

Sendi ykkur hlýjar hugsanir.gleðilegt ár til ykkar, vona að það verði gott og bjart.

Adda Laufey , 30.12.2010 kl. 11:18

29 identicon

Batakveðjur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 15:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband