Leita í fréttum mbl.is

:(

Þá er búið að leggja Maístjörnuna mína inn, hún er meðal annars komin með lungabólgu og fullt meira, æji allt annað hvort of lágt eða of hátt....  Hún er komin með vökva, sýklalyf og eitthvað annað lyf í æð, ég á bara erfitt með að meðtaka þetta allt saman sem læknirinn er að segja við okkur að ég læt bara Óskar minn um það.  Hún er búin að fara í fullt af rannsóknum og þær halda bara áfram.

Hún er ógeðslega slöpp, hefur varla sagt orð í tvo sólarhringa, reyndar brosti hún aðeins í dag þegar Blómarósin okkar kíkti á hana og var að fíflast aðeins í henni.  Hún liggur bara fyrir og það er ömurlegt að horfa á hana, er búin að vera dáltið kvalin, borðar ekkert og sefur ofsalega mikið.  Já mér líður líka ömurlega en við erum í góðum höndum hérna uppá 22E og treystum okkar fólki fullkomnlega til að láta henni líða betur.

Hér ætlum við mæðgur sem sagt að kúra saman í nótt og vitum ekkert í hvursu margar nætur enda liggur okkur ekkert á, ég fer ekki héðan fyrr en ég fæ Maístjörnuna mína tilbaka enda veit ég líka að við fáum ekkert að fara neitt fyrr en henni fer að líða betur.

Þigg allar góðar hugsanir frá ykkur.... Takk fyrir öll fallegu kommentin sem þið hafið skrifað til mín/okkar hér á síðunni minni.

XOXO


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku þið,það er erfitt að reyna að setja sig í ykkar spor,finn svo til með ykkur,en sendi ykkur alla mína mestu strauma og ósk um að BROSdúllan rísi hress frá þessum viðbótum sem eru lagðar á hana og ykkur, veit hún gerir það,baráttu og kærleikskveðjur.Hrönn.

Hrönn (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 19:46

2 identicon

Sendi ykkur mínar bestu kveðjur og góða strauma, kveiki á kerti fyrir Maístjörnuna, bæði hér heima og á kertasíðunni.

Magga Jóna (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 20:30

3 identicon

*knús*

hugsa til ykkar.

Anna Jóh (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 20:35

4 identicon

Stórt bataknús til fallegu Maístjörnunnar, hún mun hrista þetta af sér. Hugsa til ykkar og sendi hlýja strauma.

Vigdís (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 20:51

5 identicon

Hugsa sterkt til ykkar, knús og kossar á ykkur öll :*

Dagný (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 20:55

6 identicon

Hef ykkur í bænum mínum. Kveiki á kerti og hugurinn er hjá ykkur. Sendi mína bestu strauma.

Kærleikskveðjur

Kristín Hannesdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 20:57

7 identicon

Sendi ykkur mínar bestu hugsanir kæra fjölsk... bið þann sem öllu ræður að sýna Maístjörnunni hlýju , kærleika og síðast en ekki síst  Bata.

Megi þið vera umvafin ljósi kærlieika og ástar- knús og kram 

Sigríður K Dagbjartsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 20:58

8 identicon

Gangi ykkur vel, ég sendi hlýjar hugsanir.

Kristín (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:03

9 identicon

Sendi allar mínar bestu hugsanir til ykkar og kveiki á kerti,

Vonum að hetjan þín fái að fara heim sem fyrst

kærar kveðjur

Áslaug (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:07

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Nú verður að senda ykkur extra stórann skammt af kærleika - orku og bata. Guð veri með ykkur öllum og því fólki sem er að hjálpa henni Þuríði

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.1.2011 kl. 21:19

11 Smámynd: Halldór Jóhannsson

ÉG bið "þig þarna uppi" sem öllu ræður að sýna hetjunni miklu henni Þurðíði Örnu miskunn og losa hana undan (ÖLLUM)ÞESSUM ÞJÁNINGUM sem hún er búin að ganga í gegnum nær allt sitt líf...

Hvað ætlar þú að leggja mikið á barnið meir og fjölsk. hennar?

Hver er tilgangurinn?????

BIÐ ÞIG að færa þjáningarnar af henni,YFIR Á MIG fullorðinn manninn,einbúann..

Hún á skilið að fara lifa sem heilbrigðustu lífi.

Ég vil gera allt til þess að hún þjáist minna þessi elska<3

Hjálpaðu mér við það...

Elsku fjölsk..er nær alltaf með kveikt á kertum og hugsa mikið til ykkar<3

Knús og kærleikskveðja.

Halldór.

Halldór Jóhannsson, 12.1.2011 kl. 21:27

12 identicon

Sendi ykkur mínar fallegustu hugsanir og baráttustrauma:-)

Valgerður(mollí) (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:29

13 identicon

Elsku fjölskylda, stórt kærleiksknús til ykkar.

Sæunn (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:34

14 identicon

Elsku Áslaug og fjölskylda.....

...sendi ykkur hlýjar hugsanir og baráttukveðjur í þessu erfiða ástandi sem nú varir. Þið eruð öll svo endalaust dugleg.  

Gangi ykkur sem allra best og hugsið vel um hvort annað. 

Kærleiksnús

Anna 

Anna (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:39

15 identicon

Sendi ykkur hlýja strauma og fallegar hugsanir og óska þess að Maístjarnan ykkar fái skjótt bata. Ég kveiki á kertum á hverju kvöldi fyrir hana og alla aðra sem þurfa að þjást.

Kærleikskveðja frá Eddu

Edda (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:40

16 identicon

Elsku fjölskylda

 Sendi ykkur batastrauma og bið til "hans" þarna uppi að taka þessar kvalir í burtu frá henni Þuríði ykkar ! Þetta er sko löngu komið gott !

 Hér logar kerti eins og flest önnur kvöld fyrir Maistjörnuna og ég hugsa til ykkar.

Kv. Sara Björk

Sara Björk (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 21:56

17 identicon

Hugsa fallega til ykkar, vonandi fer allt uppá við sem fyrst :)

Kv Svanhildur lesandi

Svanhildur (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:00

18 identicon

Kæra Áslaug og fjölskylda.

Ömurlegt að heyra þessar fréttir af Maístjörnunni. Gott að eiga þessa frábæru lækna sem hjálpa henni að líða vel. Hún hristir þetta vonandi fljótt af sér eins og hún hefur alltaf gert. Hef ykkur í bænum mínum og sendi ykkur risa knús og batakveðjur. Guð veri með ykkur elskurnar.

Kær kveðja Linda Birna.

Linda Birna (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:01

19 identicon

Risa knús og batakveðjur til ykkar.

Kveðja Bylgja Dögg

Bylgja Dögg (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:04

20 identicon

Endar nú dagur, en nótt er nær, 
náð þinni lof ég segi, 
að þú hefur mér, Herra kær 
hjálp veitt á þessum degi 

Vertu nú yfir og allt um kring 
Með eilífri blessun þinni 
Sitji Guðs englar saman í hring 
Sænginni yfir minni. 
(Sigurður Jónsson frá Prestshólum)

Bið guð að gæta ykkar og sendi ykkur kærleikskveðju.

4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:11

21 identicon

Sendi ykkur mínar allra bestu með ósk um að þið komist sem fyrst heim. kv.Bryndís

Bryndís Baldvinsd. (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:17

22 identicon

Elsku fjölskylda.

Þessi fallegi texti færir mér alltaf aukinn kraft og vissu um að aðrir bera áhyggjurnar fyrir mig.

Svo endalaus ótti

við allt sem er

og alls staðar óvini að sjá.

Veðrin svo válind

og víðáttan grimm,

ég vil flýja í skelfingu frá.

Í tíma og rúmi

töfraoðin mín

og tilbrigðin hljóma svo blíð.

Líst ekki að ljúga

mig langar að trúa

að ég hafi alla tíð...

verið umvafin englum

sem að vaka hjá

meðan mannshjörtun hrærast

þá er huggun þar að fá.

Þó að vitskert sé veröld

þá um veginn geng ég bein

því ég er umvafin englum

aldrei ein - aldrei ein.

Hugsa til ykkar og sendi allar mínar bænir til þess sem öllu ræður. Megi hann hjálpa Maístjörnunni sem aldrei fyrr !!

Hulda Proppé (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:21

23 Smámynd: Adda Laufey

Adda Laufey , 12.1.2011 kl. 22:27

24 identicon

Æ... ekki gott að heyra þetta. Ég kveiki á kerti fyrir ykkur og vona að henni fari að líða betur. Þetta eru jú meistarar sem vinna þarna á spítalanum okkar sem betur fer. Baráttukveðjur til ykkar allra.

Kv. Ella

Ella (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:28

25 identicon

Elsku fjölskylda. Ég bið og vona að Þuríður jafni sig fljótt og að þjáningum hennar og ykkar fari að ljúka endanlega. Sendi allar mínar bestu hugsanir og styrk til ykkar duglega fjölskylda.

Bestu kveðjur.

Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:29

26 identicon

Æi litla snúllan... gott að vera í góðum höndum og best að hafa mömmsu hjá sér.

Kveiki kerti fyrir Maístjörnuna!

Kærleiks- og batakveðjur

Guðrún Helga (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:30

27 identicon

Hjartans fjölskylda.

Þið eruð í huga mínum .. Óskyljanlegt hvernig hægt er að leggja svona mikil veikindi  á saklaust barn .. Þið eruð svo dugleg og flott fjölskylda .. Kveiki á kertum og sendi fallegar hugsanir til ykkar..!

Anna Jóna (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:31

28 identicon

Elsku Áslaug og fjölskylda.   Sendi kærleikskveðju og ljós á litlu hetjuna ykkar og bið fyrir ykkur öllum.

Kveikti á kertum fyrir hana Þuríði Örnu og bið um styrk ykkur til handa í þessari erfiðu baráttu.  Kærar kveðjur,

Stella A.

Stella A. (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:35

29 identicon

Elsku þið öll.

Sendi ykkur allar mínar hlýjustu og bestu hugsanir.

Hér hef ég kveikt á kerti fyrir ykkur hetjurnar.

Kærleiksknús.

Jóhanna.

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir. (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 22:52

30 identicon

Bið og vona að elsku Maístjörnunni fari að líða betur.  Sendi ykkur hlýjar hugsanir og baráttukveðjur.

Anna Þ (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 23:00

31 identicon

Sendi ykkur hlýjar kveðjur duglega fjölskylda,

kveiki á kerti fyrir Maístjörnuna

Anna (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 23:12

32 identicon

Elsku litla dúllan, leiðinlegt að lesa svona fréttir. Treystum því að hún sé í bestu fáanlegu höndum þarna á spítalanum. Er alltaf að hugsa til ykkar og sendi sterka strauma og baráttukveðjur héðan frá norð-austurlandinu.

Kristín (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 23:19

33 identicon

Kæra fjölskylda.

Mikið finn ég til með ykkur en sem betur fer eigum við góða lækna sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hjálpa Þuríði litlu.  Vonandi getið þið sofið vel:o)

Ég hugsa til ykkar á hverjum degi og vona bara að þetta fari að verða búið.

Knús á ykkur öll

Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 23:32

34 identicon

Guð geymi ykkur fallega fjölskylda. Knús

Raggý flugmaður (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 23:52

35 identicon

Æjæjæj, ekki gott að heyra með elsku maístjörnuna!! Batakveðjur, knús og kossar, ég sendi ykkur fallegar hugsanir, vonandi verður hún fljót að hrista þetta af sér!!

Gígja (IP-tala skráð) 12.1.2011 kl. 23:52

36 Smámynd: Ragnheiður

elskurnar mínar

hjartans knús og batakveðjur héðan. Þið eruð í mínum bænum

Ragnheiður , 13.1.2011 kl. 00:03

37 identicon

Gangi ykkur rosalega vel í baráttunni. Þið eruð búin að standa af ykkur ýmis áhlaup og ég hef fulla trúa á því að þið gerið það.

Vonandi fer núna að birta hjá ykkur eins og sólinni, að það rólega birti verulega og að vorið farið að koma til ykkar.

Baráttukveðjur til Maistjörnunnar.

Jóhanna (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 00:05

38 identicon

Hugsa til ykkar. Vonandi hressist hún fljótt. Kveðja Selma

Selma Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 00:40

39 identicon

Sendi Þuríði litlu alla mína krafta og hlýju strauma í von um að það hjálpi eitthvað. 

Batakveðjur

Ingveldur (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 01:00

40 identicon

Ó hvað það er leiðinlegt að heyra þetta :/ vonandi fer henni að líða betur mjög fljótlega.  Hugsa til ykkar!

Baráttu og batnaðarkveðjur frá mér og mínum

Sigrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 01:56

41 identicon

Sárt að heyra hvað hún er lasinn maístjarnan ykkar, ég bið góðan guð að gefa henni styrk og kraft, og ykkur fjölskyldunni sendi ég hlýja strauma og kveiki á kerti fyrir ykkur, kv María Ó.

María (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 02:33

42 identicon

Mikið er ég leið, alveg með kökk í hálsinum.  Ég sendi ykkur allan minn styrk og strauma og hef ykkur í bænum mínum.

Trú, von og kærleikur - Helga

Helga (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 06:49

43 identicon

hugsa fallega til ykkar. Vona að maístjarnan fari að hressast. Knús til ykkar

Lóa (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 08:27

44 identicon

Kæra fjölskylda!

Sendi ykkur allar mínar bestu óskir um betri líðan fyrir ykkur öll. Þið eruð í góðum höndum á barnaspítalnum en það er kannski ekki staðurinn sem maður vill vera á!  Gangi ykkur vel í baráttunni!

Sóley V (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 08:29

45 identicon

Hugsa til ykkar, vonandi komist þið heim sem fyrst!

Þorbjörg Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 08:39

46 identicon

Kærleiksknús á ykkar kærleikslús elsku Óskar og Áslaug. Hugsa til ykkar fallega fjölskylda.

Gangi ykkur vel og ég treysti á að það verði allt í lagi.

sigga gulludóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 08:40

47 identicon

Sendi ykkur allar mínar hlýjustu og bestu hugsanir.

Guð verði með ykkur fallega fjölskylda

Kveðja Agnes

Agnes Linda (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 08:50

48 identicon

Sendi Þuríði Örnu og ykkur öllum allan þann styrk og kraft sem mér er unnt og vona að hún hressist fljótt.

Álfheiður (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 08:53

49 identicon

Mikið óskaplega er erfitt að lesa hvað Maístjörnunni líður illa og maður fær stóran sting í hjartað.  Hugsa til ykkar og kveiki á kerti fyrir ykkur.   Trúi því að hún komist heim aftur fljótlega en þið eruð líka í góðum höndum á sjúkrahúsinu.

Sendi ykkur stórt knús og góða strauma

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 09:15

50 identicon

Sendi batastrauma á litlu stjörnuna!

Valdís (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 09:18

51 identicon

Elsku Áslaug mín og fjölskylda

Sendi alla mína krafta og orku sem ég hef til að láta Þuríði minn batna

kveðja

Ása

Ása (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 09:20

52 identicon

Aj, litla músin.

Sendi batakvedjur... vona svo sannarlega ad solin fari ad skina.

Svandis Ros (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 09:49

53 identicon

Hugsa hlýtt og sterkt til ykkar og bið fyrir elsku duglegu Þuríði.

Heiða Ólafs (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:06

54 identicon

Æjj elsku stelpan. Sendi ykkur risastórt knús og hlýjar hugsanir - vona að daman komist aftur heim fljótlega

Tinna (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:32

55 identicon

Æ elskurnar mínar....þið eruð í mínum bænum...En maístjarnan á eftir að koma aftur sterk og falleg....Knús á ykkur öll

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:33

56 identicon

Æ elsku snúllan og þið öll ! Búin að kveikja á kerti fyrir ykkur og sendi risastórt bataknús   Veit að þið eruð í góðum höndum á BSH.

Jóhanna G. Ól (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:41

57 identicon

*KNÚS* og batastraumar til litlu stjörnuna.

Auður Lísa (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 10:48

58 identicon

Ohhh... mikið hrikalega finn ég til með Maístjörnunni, fæ alveg sting í hjartað við tilhugsunina um það sem verið að leggja á þennan litla kropp.

Hafið það sem best í sjúkrahúsvistinni!!!

Sendi sko alveg fullt af orku- og kærleiksstraumum til ykkar...

Kv. Begga

Begga Kn. (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 11:02

59 identicon

Elsku þið öll, endalausar fyrirbænir og kærleikskveðjur til ykkar.

Já auðvitað eruð þið á besta stað í þessum erfiðu aðstæðum, þetta bara verður að lagast.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 11:03

60 identicon

vonandi hressist hún fljótt unga hetjan, baráttukveðjur til ykkar

Hafey (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 11:21

61 identicon

kæra fjölskylda sendi ykkur hlýjar hugsanir, ljós og kærleika.. Guð veri með ykkur....

Bryndís J (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 11:27

62 identicon

Vonandi hristir elsku litla hetjan þetta af sér fljótt. Ég kveiki á kerti og bið fyrir ykkur.

Matta (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 11:40

63 identicon

Mér er illt í hjartanu, mig skortir orð, ég sé ekki í gegnum tárin.

En ég hugsa endalaust hlýtt til ykkar, kæra fjölskylda.

Guð veri með ykkur.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 11:46

64 identicon

 Elsku fjölskylda.. Mig skortir orð! Það sem er lagt á elsku Maístjörnuna og ykkur  

Hugur minn er hjá ykkur og kveikt á kerti. Guð veri með ykkur

Anna Heiður (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 12:10

65 identicon

Elsku Áslaug og Óskar.

Baráttukveðjur til ykkar og litlu hetjunnar hennar Þuríðar Örnu. Þessa dagana kveiki ég á kerti fyrir hana daglega og sendi ykkur góða strauma. Veit að þið eruð í góðum höndum á BSH.

Vona heitt og innilega að hún nái sér á strik.

Hulda SKB mamma (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 12:52

66 identicon

Hugsa til ykkar. Knús.

Ingigerður Tómasdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 13:13

67 identicon

Guð blessi ykkur og styrki

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 13:13

68 identicon

Sendi batnaðarstrauma og knús, vona að henni fari að líða betur :)

Sandra (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 13:32

69 Smámynd: Sveinbjörg M.

Æi, hvað er leiðinlegt að heyra þetta

Sendi RISA, RISA knús á flottustu maístjörnuna og ykkur öll og sendi enn sterkari hugsanir til ykkar

Sveinbjörg M., 13.1.2011 kl. 13:39

70 identicon

Kæra fjölskylda

Baráttukveðjur til ykkar alllra, þið eruð ótrúlega sterk fjölskylda.  Sendi Maístjörnunni hlýja strauma og með ósk um að hún fari að ná betri heilsu.  Hún er svo mikil hetja í mínum augum og hún svo heppin að eiga góða foreldra og svo blómarósina ykkar.  Það má ekki gleyma því hvað hún er að standa sig vel.  Með ósk um að þið farið að eiga betri daga.  Njótið þess að vera saman.

Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með ykkur. 

Kveðja Þórdís

Þórdís (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 13:43

71 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 13.1.2011 kl. 14:20

72 identicon

Baráttukveðjur til ykkar, kæra fjölskylda!

Sissa (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 15:29

73 identicon

baráttukveðjur til ykkar og ég kveiki á kerti hand henni

Marta Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 15:33

74 identicon

 Knús og batnaðarkveðjur á ykkur, það er alveg ótrúlegt hvað á lítinn kropp er lagt, vonandi fer líðanin að verða betri og bjart yfir ykkur. Það er alveg ótrúlegt hvað þið gangið vel í gegnum þessar erfiðu raunir og haldið alltaf fast í bjartsýninga, gangi ykkur áfram vel í þessari baráttu sem er með öllu móti óskiljanleg að þurfi að hanga svona fast í ykkur.

Hugsa til ykkar á hverjum degi og kíki oft á bloggið

kv. Helga og börnin 3

Helga Kristín (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 16:24

75 identicon

Bið og vona að Maístjörnunni ykkar fari að líða betur. Sendi ykkur hlýjar hugsanir og baráttukveðjur.

Elva. (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 16:49

76 identicon

Ég sendi ykkur fjölskyldunni allar mínar bestu óskir.  Það er gott að vita af dóttur ykkar í góðum höndum þegar hún er svona lasin.  Vonandi fer þetta að fara uppá við aftur sem fyrst.  Hún er lánsöm að eiga ykkur öll að.

 kveðja

fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 16:49

77 identicon

Þetta er bar ömurlegt að heyra!  Hvað á að leggja mikið á þennan litla kropp?  Ég vona svo innilega að henni fari nú að líða aðeins betur.  Batakveðjur úr Grafarvoginum.

Huldís Þorfinnsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 16:50

78 identicon

Æi en ömurlegt.  Vona að hún hristi þetta af sér fljótt og vel.  Góðan bata

Kristín (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 16:52

79 identicon

Elsku fjölskilda .vonandi fer majstjörninni að batna ég kveiki á kerti bæði heima og á síðunni og hugsa og bið fyrir ykkur

kv. Dagbjört J

Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 16:54

80 identicon

Knús á ykkur:)

Steina (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 18:29

81 identicon

Elsku besta Áslaug.

Fallegt bréfið frá vinkonu þinni og ég tek ofan af fyrir þér og henni.

Mínar bestu, langbestu, kveðjur til ykkar allra.

xxx

Hanna

Hanna (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 19:16

82 identicon

Þið eruð alltaf í mínum bænum kvölds og morgna og ég sendi ykkur hlýjar kveðjur.

Anna (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 19:38

83 identicon

Elskurnar

Njótið þess að vera saman og megi sá almáttugi vaka yfir ykkur öllum.

Karen Malmquist (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 20:57

84 identicon

þið eruð í mínum bænum...

ingileif Finnbogadóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 21:46

85 identicon

Hugsa til ykkar. Megi Maístjarnan ná bata sem allra fyrst og vonandi er hægt að láta henni líða sem best.

kærar kveðjur

Kristín

Kristín (ókunnug) (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:03

86 identicon

Sendi batakveðjur og knús á ykkur öll.  Vonandi fer henni að batna sem fyrst.

Kristín Valdemars (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:22

87 identicon

Vonandi hressist hún fljótt, ég kveiki á kerti fyrir hana .

Jenný (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:34

88 identicon

Sendi ykkur mínar bestu hugsanir og óskir um góðan bata.

kær kveðja. Maja

María Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:38

89 identicon

Stórt bataknús á litlu hetjuna, vonandi nær hún sér fljótt upp úr þessu.  knús í hús

Guðrún ( boston ) (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:44

90 identicon

Sendi ykkur orkustraum og kærleiksljós með ósk um góðan og skjótan bata til Maístjörnunar og ykkar elsku Áslaug, Óskar og fjölskylda. Bestu óskir um góða helgi, ég kveiki á kerti og bið fyrir ykkur.  Knús á stórfjölskylduna .

Orkukveðja Birgitta

Bigritta (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 22:49

91 identicon

Sendi ykkur góðar óskir og strauma, kveiki á kerti fyrir Maístjörnuna þína.

Dísa (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 23:15

92 identicon

Sendi ykkur góða strauma. Vonandi að það fari að birta til hjá fallegu stúlkunni ykkar.

Kærleikskveðjur

Hjördís

Hjördís Eleonora Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 23:46

93 identicon

Hugsa til ykkar,og vona að litlu prinsessunni fari að líða betur.Bestu kveðjur til ykkar allra, Bára

Bára Pálsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 00:11

94 identicon

Baráttukveðjur

Guðrún Hauksdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 00:13

95 identicon

Við hugsum til ykkar og sendum góða strauma, megi henni batna sem allra fyrst og komast heim til ykkar.

Kærleikskveðja

Sigurða (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 00:33

96 identicon

Elsku þið öll.

Kom hér inná og vonaði svo heitt að væru komnar góðar fréttir af Maístjörnunni ykkar.

Þíð eruð í bænum mínum og ég hef kveikt á kerti fyrir ykkur.

Kærleikskveðjur og knús.

Jóhanna.

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir. (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 00:49

97 identicon

ÆJ, ég var að vonast eftir betri fréttum :(

Ég hugsa til ykkar og vona að litla skottan hressist sem fyrst!

Baráttukveðjur

Sóley

Sóley (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 01:17

98 identicon

Hugsa til ykkar og kveiki á kerti fyrir Maístjörnuna.

Kærleikskveðja 

Ólöf

Ólöf (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 08:25

99 identicon

Sendi ykkur elskulega fjölskylda mínar bestu kveðjur og hlýjar hugsanir , vona að litlu Þuríði Örnu fari að líða betur . Kveiki á kerti fyrir ykkur .

Hjördís Blöndal (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 08:40

100 identicon

Elsku fjölskylda, kíkti hér inn og vonaði svo innilega að góðar fréttir væru komar af maístjörnunni ykkar! Vonandi fer henni að líða betur, hugur minn er hjá ykkur:) Þú ert svo sterk kæra Áslaug, vona að þú vitir að þú ert algjör hetja í mínum huga.

Kærastar kveðjur til ykkar frá mér.

Helena

Helena, Reykjavík (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 08:48

101 identicon

Búin að kveikja á kerti fyrir Maístjörnuna þína

Ekki gleyma að rækta þig þrátt fyrir mikil veikindi hjá hetjunni þinni!

Baráttukveðjur, Margrét

Margrét (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 09:39

102 identicon

Sendi ykkur hlýjar hugsanir

Anna Kristín (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 10:22

103 identicon

Guð gefi henni bata og ykkur öllum betri líðan

Guðrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband