Leita í fréttum mbl.is

Þetta mjakast í áttina....

Þegar við komum með Maístjörnuna mína hingað á 22E þá talaði hún nánast ekkert, lá bara hálfmeðvitunarlaus, var með upp og niður, með lungabólgu, ónæmiskerfið eitthvað brenglað og þurfti að sofa með súrefni fyrstu nóttina þar sem hún mettaði svo illa.

Á hádegi í gær ákvað Maístjarnan mín að taka súrefnið af sér, nennti þessu ekki lengur og mettunin fór strax að hækka hjá henni, fór aðeins að spjalla meira og meir að segja þegar Blómarósin mætti á svæðið seinni partinn fór hún að hlæja sem var það yndislegasta sem ég sá og heyrði.  Brosti líka þegar Oddný systir mín mætti með glimmer-perlur handa henni og svo amma Oddný með nokkrur prinsessu-perlu-form, jiiiii hvað það var gaman.

Hún er öll að mjakast í réttu áttina, farin að spjalla meira, ennþá úthaldslaus, var að reyna perla með allt nýja perludótið en þarf að hvíla sig eftir ca tvær perlur, hún er líka með mikin skjálfta í höndunum svo það reynir líka á allar fínhreyfingarnar, hún er reyndar ennþá með niður og var rosalega kvalin í maganum í gærkveldi en sofnaði eftir verkjastillandi.  Hún er ennþá að fá sýklalyf í æð, vökva ásamt fleiru til að hækka gildin hjá henni (man aldrei hvað þetta heitir).

Núna er hún að heimta hamborgara hjá pabba sínum þar sem henni finnst spítalamaturinn frekar vondur sem ég skil mjög vel, þannig núna ætlum við mæðgur að senda eiginmanninn að kaupa svoleiðis handa okkur.  ...sem sé matarlystin er líka að mjakast í áttina, já ég trúi því að helgin verði bara GÓÐ hjá okkur sem við ætlum að eyða í að horfa á "strákana okkar" verst að það er ekki stöð2sport hérna á 22E en það er verið að reyna redda því en ekki hvað.  Förum bara í málið!!

Eigið góða helgi, við ÆTLUM að hafa okkar GÓÐA.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En frábærar fréttir!

Æðislegt að fá hamborgara go að horfa á "strákaana okkar" ;)

Gott að heyra að allt sé á uppleið.

Eigið þið GÓÐA helgi!

KV. Arna

Arna Ósk (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 11:07

2 identicon

Frábært að heyra að allt sé í rétta átt. Njótið þess að borða hamborgarana og svo að eiga góða helgi ;0)

Kv. Kristín

Kristín (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 11:23

3 identicon

Gott að heyra að þetta er allt að koma.

Kv. Hrund

ps. Nú langar mig svo í hamborgara arrgg :) - góða helgi og áfram Ísland!!!

Hrundski (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 11:27

4 identicon

Frábærar fréttir, þessi stelpa er ekkert blávatn! Áfram Þuríður Arna!

Knús á ykkur með von um áframhaldandi gott gengi!

Orkukveðja

Hulda. 

Hulda SKB mamma (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 11:36

5 identicon

Allt á uppleið eins og vænta mátti, bara bestust mestust..

Hrönn. (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 11:36

6 identicon

FRÁBÆRT að heyra að allt sé á réttri leið vonandi heldur það þannig áfram :) Get rétt ímyndað mér hvað það hefur verið gaman að sjá hana hlæja og brosa aftur, það hefur verið yndislegt:)

 Vona að stöð 2 sport komi inn svo þig getið horft á leikinn, myndi án efa gera dvölina aðeins skemmtilegri :)

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:14

7 identicon

Frábært að allt sé á uppleið. Maístjarnan er bara snillingur. Greinilegt að þær systur eru miklar vinkonur. Perlan kann greinilega inná systur sína.

Góða skemmtun að horfa á handboltan. Guð veri með ykkur.

Risa knús og batakveðjur. Linda Birna.

Linda Birna (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:25

8 identicon

Gott að heyra að hún skuli vera að braggast, þessi stúlka er bara eitt kraftaverk, hugur minn er hjá henni. Knús. Margrét (ókunnug)

Margrét (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:35

9 identicon

Yndislegt að lesa.  Eigið góða helgi kæra fjölskylada.

Þorgerður (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:44

10 identicon

Æi hvað það er nú gott að heyra að hún er öll að koma til og vonandi eigið þið öll góða helgi :)

Edda (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:52

11 identicon

Gott að þetta er allt að koma. Það reynir mikið á lítinn kropp að fá svona hrikalega magapest með háun hita, en nú er hún að koma til og það er dásamlegt. HELGIN VERÐUR GÓР!!!!    

Hólmfríður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:54

12 identicon

Frábærar fréttir.  Trúi því að helgin verði góð og þetta sé allt á uppleið hjá ykkur.  Njótið helgarinnar

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:55

13 identicon

En yndislegt að heyra að hún sé að skána og frábært að heyra með matarlistina :)

Vonandi tekst að tengja sportið ekki annað hægt en að horfa á strákana okkar :)

Risa bataknús til ykkar, þið standið ykkur svo ótrúlega vel!

Lilja (Ókunnug) (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:55

14 identicon

Nú kemur þetta og gott að heyra að daman vilji hammara :)  Við skulum áfram biðja og tendra ljósin allir saman nú því það hjálpar.  Vona að þið náið að hvíla ykkur og ég bið guð að gefa ykkur áfram betri daga fallega fjölskylda :)

með kærleikskveðju 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:55

15 identicon

En frábært að heyra að allt gengur betur !! :)

Njótið hamborgaranna og vonandi fáiði stöð2sport svo þið getið fylgs með :)

Hlakka til að heyra fleiri góðar fréttir, bataknús á ykkur duglega fólk :)

Svala (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 12:57

16 identicon

Æðislegar fréttir.......bara yndislegt......

Gangi ykkur áfram vel og AUÐVITAÐ þurfið þið að geta fylgst með strákunum okkar

kv Anna

Anna (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 13:27

17 identicon

Mikið er ég glöð að heyra að allt er á uppleið....það er amk byrjunin!

Við hugsum áfram til ykkar. Eigið góða helgi :)

Sirrý (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 13:43

18 identicon

Agalegt að heyra hversu veik stelpan ykkar er en gott að heilsan er á uppleið. Vona að hún fái fulla heilsu fljótt og örugglega. Gangi ykkur vel, batakveðjur og góða handboltahelgi!

Kveðja Íris í DK

Íris (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 13:46

19 identicon

Þessi færsla gleður mitt litla hjarta. Nú horfi ég á skjáinn í gegnum gleðitár. 

Vonandi verður Maístjarnan fljót að ná sér, hún gerir það eins og henni einni er lagið.

Eigið góða helgi öll sömul.

Áfram Ísland!! 

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 13:52

20 identicon

Gott að heyra að litla óútreiknanlega stúlkan sé að mjakast í rétta átt:) Hún er svo dugleg..og krúttlegt að vilja bara hamborgara, ekki neinn spítalamat:)

Eigið góða helgi kæra fjölskylda:)

Kristín (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 13:55

21 identicon

Frábærar fréttir.  Vonandi verður helgin enn betri

Jóna (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 14:11

22 identicon

Yndislegt að heyra. Eigið góða helgi!

Sissa (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 14:16

23 identicon

Gaman að heyra að henni líður betur,Góða helgi:=)

Anna Lilja Valsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 14:34

24 identicon

Yndislegt að heyra að Þuríði líði betur Bið fyrir ykkur sendi ykkur ljós og kærleika 

BryndísJ (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 15:14

25 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

frábært að henni liður betur .eigið þið góða helgi

Guðrún unnur þórsdóttir, 14.1.2011 kl. 15:17

26 identicon

Húrra húrra,  þetta eru fréttir dagsins.

Auðvitað væri toppurinn ef Ísland vinnur í dag.

En elsku þið öll eigið góða helgi og njótið hamborgarana.

með kærleikskveðju frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 15:21

27 identicon

Elsku fjölskylda, mikið hugsa ég nú til ykkar á þessum erfiðu dögum og hugsa hve dugleg þið eruð. Frábært að heyra að Þuríði líði betur og ég vona heitt og innilega að helgin verði notaleg í alla staði fyrir ykkur öll.  Mér líst ferlega vel á hamborgara og HM, það er nú snilldarhugmynd hjá hetjunni stórt knús á hana frá mér og mínum::))

Áslaug (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 15:35

28 identicon

gott að heyra að henni líður örlítið betur :)  

hér er slóð þar sem hægt er að horfa á handboltann í gegnum netið ef það gætið gengið :)

http://www.livehandball.tv/page/Home/0,,13467,00.html

Anna Kristín (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 16:00

29 identicon

Þessi stelpa er hetja og þið öll.

Kv gþ

gþ (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 17:10

30 identicon

Gott að heyra að hún sé á uppleið, hún er kraftaverkastelpa og kemur tvíefld til baka!

Eyja (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 17:48

31 identicon

Kraftaverkastúlkan flotta<3

Þær systur eru EINSTAKAR saman:):):)<3<3<3<3.

Oddný Erla er ER SVO MIKIL og STÓR PERLA í að létta lífið hjá hetjunni og öðrum í kring<3<3<3<3<3<3..

Með fullri virðingu fyrir öðrum...

Eigið góða helgi yndislega fjölsk<3.

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 18:27

32 identicon

Yndislegt að heyra að hún sé á batavegi,,    hún er algjör hetja og þið öll.  Eigið góða helgi og frábært að hún sé að fá matalyst.

Rakel (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 18:32

33 identicon

Mikið er ég glöð að heyra að Maístjarnan sé á batarvegi, hún er náttúrulega ótrúleg þessi stúlka og Oddný Erla yndisleg systir.  Mikið eru þær heppnar að eiga hvor aðra að.  Vonandi eigið þið góða helgi og komist sem fyrst heim.

Trú, von og kærleikur - Helga

Helga (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 19:13

34 identicon

Ég hugsa stanslaust til ykkar og aðalega maístjörnunnar. Allt auka sem ég hef sendi ég til hennar kæra Áslaug :)

Rakel Sara Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 01:05

35 identicon

Æðislegt, gott að eiga svona ákveðna unga dömu;o) 

Góða helgi og góða skemmtun yfir boltanum!

Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 01:57

36 identicon

Frábært að heyra að hún sé að á batavegi,þið eigið alveg svakalega sterka stelpu sem virðist rífa sig upp úr öllu sem er lagt á hana,sendi mínar bestu batakveðjur.

Herdís Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 11:06

37 identicon

kæra fj . Enn havð ég er glöð að lesa þetta ,nú kemur þetta allt saman ég trúi því    góða helgi

kv. Dagbjört

Dagbjört Jakobsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 12:42

38 identicon

Æðislegt að litla skottinu líði betur, vonandi fer allt upp á við núna.

Ég verð svo ótrúleg mikill vælukjói þegar ég les bloggið þitt, tárast yfir ölllu.

Knús, kossar og góðar hugsanir til ykkar.

Linda (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 14:26

39 identicon

Gangi ykkur vel áfram duglega fjölskylda. 

Sæunn ókunn (IP-tala skráð) 15.1.2011 kl. 16:53

40 identicon

Dásamlegar fréttir !

Vonandi heldur batinn áfram og matarlistin að aukast :o)

Knús á ykkur kæra fjölskylda.

Jóhanna.

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir. (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 01:17

41 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Knús í hús

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.1.2011 kl. 03:44

42 identicon

Gangi ykkur áfram vel og megi hetjunni batna sem fyrst.  Vona að það sé búið að koma HM á 22E

Berglind (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 08:52

43 identicon

Hugsa fallega til ykkar og sendi hlýja strauma :O)

Edda Hlíf Hlífarsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2011 kl. 10:44

44 identicon

Ég vona að Þuríður fari að fá betri heilsu og umfram allt gleðina sína aftur....Það er það erfiðasta sem hægt er að hugsa sér er að horfa upp á börnin sín í vandræðum. Stórt knús á ykkur duglega fjölskylda og megi árið 2011 verða heillaríkt....

Ragnheiður Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 18.1.2011 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband