Leita í fréttum mbl.is

Smá fréttir...

Elsku besta og flottasta Maístjarnan mín er farin að mæta klukkutíma á dag í skólann.  Henni finnst það æði en hún er líka algjörlega búin á því eftir þennan klukkutíma.  Hún er ennþá ofsalega þreytt, hún þolir lítið áreiti einsog um helgina vorum við með afmæli og hún lokaði sig bara af inní herbergi þegar hún var búin að fá nóg eða vildi fá hvíld frá hávaðanum.  Það fer ofsalega í hana að geta ekki gert sömu hluti og hún gat fyrir tæpum tveim mánuðum og verður ofsalega leið yfir því sem ég skil fullkomnlega.  Ég er líka ofsalega leið og sorgmædd að horfa á líðan hennar í dag, hún getur ekki mætt í fimleikana sína þar sem henni vantar sérstaklega kraftana í fæturnar en ég veit samt að hún er velkomin hvenær sem er.  Hún kvartar dáltið undan verkjum og það er ofsalega erfitt.

Líðan hennar er allur uppá við en samt langt í land, höfum ekki tekið eftir neinum krömpum síðan í síðustu viku.  Rannsóknir hennar eru svo á þriðjudaginn 1.febrúar og kvíðin er MIKILL hjá mér.

Stutt í þetta sinn enda engin orka til staðar, nýti hana alla í bestu og flottustu börnin mín.  En Blómarósin mín þarf virkilega mikið á mömmu sinni á að halda þessar vikurnar, það eru mjög svo erfiðir dagar hjá henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sendi mínar bestu hugsanir og allan þann styrk sem ég á

lilja (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 16:51

2 identicon

Æi elsku kellingin...hugsa mikið til ykkar..og já það styttist í þennan stóra dag og að sjálfsögðu sendi ég sterka strauma til ykkar..

Kristín (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 17:12

3 identicon

Knús og hlýjar hugsanir til ykkar flotta fjölskylda

Jóhanna G. Ól (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 18:32

4 identicon

Mikið er hún dugleg hún Þuríður Arna og gott að heyra að allt sé í áttina.  Ég sendi ykkur hlýgjar hugsanir og allan þann styrk sem ég á til.  Mun biðja fyrir ykkur 1. febrúar....gangi ykkur vel.

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 19:34

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Frábært að þetta er allt upp á við - mikið skil ég hana vel með hávaða áreytið

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.1.2011 kl. 20:50

6 identicon

Mikið er ég glöð að sjá bloggið opið hjá þér Áslaug, hef fylgst með því svo lengi og gott að vita að allt er í rétta átt hjá henni Þuríði Örnu ofurhetju...Sendi ykkur svo sannarlega hlýjar hugsanir og Guð veri með ykkur.

Kveðja Elín.

Elín (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 20:56

7 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Sendi engla og bænir og bið um að rannsóknirnar verði jákvæðar og á hraðri leið til bata...Þú veist þið getið..viljið og skuluð...gangi ykkur sem allra best..:o)

Bergljót Hreinsdóttir, 26.1.2011 kl. 22:56

8 identicon

Já vonadi fer leiðin að fara uppá við. Kæri Guð viltu gefa þessum ofurhetjum orku til að takast á við dagana. Svo væri lika gott að fá að hvílast þegar á að hvilast.

Berglind (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 23:23

9 identicon

Algjörlega sammála Elínu hér að ofan, hef verið mikið að hugsa til ykkar undanfarna daga. Óska ykkur áfram alls hins besta og held áfram að senda alla mína strauma til ykkar.

Ragnhildur, ókunnug (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 23:30

10 identicon

Ég trúi því að nú fari þetta að koma allt saman, Þuríður fari að hressast og líða betur og þið öll.  Þið eruð öll ótrúlegar hetjur.

Þórleif (IP-tala skráð) 27.1.2011 kl. 06:12

11 identicon

Elsku duglega Áslaug, sendi þér krafta í kögglum bæði fyrir þig og Stjörnuna, já og auðvitað fyrir alla í hópnum.

Það er yndislegt að heyra að Stjarnan er upp á við og getur farið aðeins í skólann.

Mér verður oft hugsað til þess hversu rosalegan kraft þarf til að klára dagana þína, litla Þuríður þarf þig 100% og öll hin líka 100% og svo er eins og þú hefur sjálf sagt hjónabandið sem þarf líka 100% en má auðvitað minnka á tímabilum.  Þetta gerir 500%, þannig að miðað við hvað þú ert sterk bjartsýn og yndisleg manneskja í þínum aðstæðum, þá hefur þér verið gefið eitthvað sérstakt af Guði sem þú nýtir nú. Ég veit líka að þú ert ekki ein í þessu og hefur fyrst og fremst Skara og svo auka bakland, en samt.

Sendi þér og öllum þínum kærleikskveðju og óskir um að Stjarnan rísi áfram upp og hafi ALLSEKKI VERKI.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 27.1.2011 kl. 10:00

12 identicon

Hugsa mikið til ykkar, þið eruð alveg ótrúleg!

Sissa (IP-tala skráð) 27.1.2011 kl. 11:15

13 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 27.1.2011 kl. 14:10

14 identicon

Mikið er hún dugleg og þið öll  ekki gleyma því . verð með ykkur í bænum mín og sendum sterkar og góðar hugsanir .

með kærleiksorkukveðju að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 27.1.2011 kl. 14:50

15 identicon

sendi hlýja strauma til ykkar

Bylgja (IP-tala skráð) 28.1.2011 kl. 07:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband