Leita í fréttum mbl.is

Fjórði dagurinn í röð :(

Maístjarnan mín fékk krampa fjórða daginn í röð í dag.  Doktor Ólafur hringdi í okkur í gær og ákvað að byrja á því að stækka flogaskammtinn hennar svona áður en hann færi að ráðast á sterana þannig núna er hún komin uppí topp á þeim lyfjum.  Ef flogaskammturinn hennar yrði stækkaður aftur þá yrði væntanlega nýjum lyfjum skellt inn, ARGH ég sem trúði því að hún væri hætt að krampa en núna er þetta komið í á hverjum degi.  Auðvidað er hún þreytt og við erum líka þreytt á þessu og þráum ekkert heitara en að henni fari að líða betur. 

Ég trúi því að 12.apríll verði góður en ég var að lesa gamlar færslur og sá að hún fór 12.apríl'07 einu sinni í rannsóknir sínar og þá fengum við góðar fréttir eftir slæmt ár þar á undan þannig við höldum þessum degi áfram sem okkar HAPPA.  Það hefur líka verið HAPPA að við hjónin gerum eitthvað helgina fyrir rannsóknir og við stefnum að sjálfsögðu að halda þeirri hefð, hvort sem það hefur verið "bara" útað borða, bíó, sumarbústaður eða börnin fara öll í næturpössun og við gerum eitthvað rólegt hérna heima.  Kemur allt í ljós!

Það hefur verið yndislega gaman að fylgjast með Maístjörnunni minni síðustu daga en hún hefur verið að máta flíkur sem hún hefur ekki komist í en er farin að komast í þær.  Læsir sig inní herbergi og laumast að velja eitthvað, mátar og kemur svo EITT BROS í framan framm til mín til að sýna mér.  Bara þvílíkur draumur í dós.  Fór t.d. í Justin Bieber bolinn sinn í dag (hennar uppáhald og er nýbúin að fá þennan bol) og var þvílíkt hamingjusöm að sjá að hann næstum því passaði.  Það er alveg endalaust gaman að sjá bjúgun leka af henni svo það væri mikil synd að þurfa stækka steraskammtinn aftur (þannig að bjúgun byrji að safnast upp aftur) svo við höldum í vonina að þess þurfi EKKI.

Blómarósin mín er öll að koma til eftir viku veikindi, fer í skólann á morgun en er ennþá kraftlítil og ekki mikið fyrir matarkyns þessa dagana einsog Maístjarnan mín svo það er mikil barátta á heimilinu að koma mat ofan í þessar tvær.

Núna ætla ég bráðum að fara huga að beddanum þar sem það er ræs 6:20 og beint í ræktina, er bara spennt að mæta og púla aðeins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

knús og kram til ykkar allra

Guðrún unnur þórsdóttir, 22.3.2011 kl. 21:19

2 identicon

Gott að flogalyfin verða aukin en ekki sterarnir. Þá er ég ekki að segja að gott sé að lyfin séu aukin, en hvað á að gera.

Tólfti apríl verður góður og ekkert annað í boði. Frábært að hetja er byrjuð að máta fötin sín.

Hólmfríður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 22.3.2011 kl. 21:54

3 Smámynd: Sveinbjörg M.

Æi hvað er leiðinlegt að lesa hvað maístjörnunni hefur liðið illa og krampað mikið og veikindi hjá blómarósinni :*

Hugsa oft til ykkar hörkuduglegu fjölskyldu og sendi extra góðar hugsanir og enn meiri 12. apríl

Kv. Sveinbjörg - Óskars og Sigrúnar Birtu frænka

Sveinbjörg M., 22.3.2011 kl. 21:56

4 Smámynd: Ragnheiður

Blessað barn.

Um að gera að velja sér góða bjartsýnis og vonardaga og vera dugleg að elska hvort annað.

Þú ert flottust !

Ragnheiður , 22.3.2011 kl. 22:52

5 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Bið fyrir hetjunni...Látum 12 april verða HAPPA já.. Sko skvísuna farin að undirbúa og æfa sig fyrir gellufötin sem þið skvísurnar ætlið að versla í sumar og klæðast:)

 Gott að heyra að Blómarósin sé að braggast,og vona að matarlystin fari líka að koma og þá verða Fimleikarnir teknir með meir en trompi:)

Já púla púla ...er ekkert smá nammi fyrir hvað þú ert dugleg:)

Bestu kveðjur til allra:)

Halldór Jóhannsson, 23.3.2011 kl. 07:20

6 identicon

Bið fyrir ykkur  og hafið það sem allra best

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 12:47

7 identicon

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 16:41

8 identicon

Knús á ykkur kæra fjölskylda og höfum 12 april áfram HAPPA... hef fulla trú á því. Bestu kveðjur, Ella

Ella (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 08:53

9 identicon

Það er alveg sama hvernig vindurinn blæs hjá þér og ykkur þú ert alltaf ENDALUST FRÁBÆR og þið öll.

Hvernig gengur að vakna 6:20?? ég er dauð kl. 8:00, þannig að ég get dáðst að þér alltaf í öllu.

Sendi risaknús í hús

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 10:32

10 identicon

Frábært hjá þér að láta þig hafa það að byrja að æfa enda mun það koma 10 falt til baka í orku og betri líðan andlega og líkamlega. Er einmitt að byrja á þessu sjálf eftir allt of langa pásu og finn mikin mun eftir nokkra daga. Berjumst

Bylgja (IP-tala skráð) 24.3.2011 kl. 13:41

11 identicon

Þið eruð hetjur... vægt til orða tekið,,,

Karen Olsen (IP-tala skráð) 30.3.2011 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband