Leita í fréttum mbl.is

Hún á afmæli í dag....

Elsku bestasta og flottasta Þuríður Arna mín er 9 ára í dag. Heart

Þuríður Arna mín er sú sem ég lít mest upp til, hún er þvílíkur nagli, endalaust fyndin, mikill húmoristi, dýrkar og dáir systkin sín, hún samgleðst ÖLLUM ef vel gengur hjá þeim, finnur til með þeim sem líður illa, elskar að "rífast" við afa sinn Hinrik, stendur með sínu fólki, elskar að vera innan um krakka, að gefast upp er ekki til í hennar orðabók og hún er sú ALLRA ALLRA skemmtilegasta og fallegasta 9 ára stelpa sem ég þekki.  Systkin þín eru líka óendanlega stollt af þér.

Elsku bestasta og flottasta Maístjarnan mín hjartanlegar hamingjuóskir með daginn, sem fékk þvílíka draumavinkvenna-afmæli á miðvikudaginn.  Varst bingó-stjóri og stjórnaðir því svona líka vel enda ekki við neinu öðru að búast.  Þú  hefur gengið í gegnum alltof erfiða hluti í gegnum ævina og ég ætla rétt að vona að þú þurfir ekki að upplifa neitt meira slæmt um ævina þú átt svo miklu meira betur skilið.

Ég veit að þú og Blómarósin okkar eigið eftir að skemmta ykkur endalaust vel í veislunni sem þið fáið í kvöld. Grin Elskum þig MEST í heimi.
P5188351 [1280x768]
Hérna er ein af hópnum sem mættu í veisluna til Maístjörnunnar minnar, þetta eru bekkjarsystur og nágrannar.  Ég er að segja ykkur það hún HEPPNUST í heimi að eiga svona góða að.  Þessar stelpur hafa ALDREI strítt henni, gert grín af henni vegna steranna (þegar útlit hennar breyttist mjög hratt en auðvidað brá þeim mikið), í tímum fær hún sína athygli (í tjáningu) og aldrei dettur þeim í hug að hlæja að henni ef hún kemur ekki orðunum rétt "útur sér".  Við gætum ekki hugsað okkur betri bekkjarfélaga eða vinkonur, flottastar!!
P8012247 [1280x768]
Hérna eru þær systur í Stokkhólmi síðasta sumar eða þegar Maístjarnan mín lagðist undir "gamma"hnífinn og auðvidað breyttum við leiðinlegri og erfiðri ferð í skemmtilega og kíktum í tívolíið en hún er rosaleg tívolí"kerling".  Besti í heimi að vera með henni í tívolíið og heyra hana skella uppúr og garga af spenning.
P6109154 [1280x768]
Í gegnum veikindin sín hefur hún kynnst ofsalega skemmtilegu, góðu fólki með yndislega sál sem eru alltaf tilbúin að leyfa henni að hitta sig bara að henni líði sem best.  En leikonan Vigdís gunnarsdóttir sem leikur t.d. hana Höllu Hrekkjusvín hefur veitt Þuríði minni mikla athygli eða alveg síðan í nóv'05.

Já afmælisbarnið hefur kennt okkur hinum hvað heilsan er okkur mikilvæg og að horfa alltaf á björtu hliðarnar í lífinu þó svo það sé stundum erfitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Þuríður Arna til hamingju með flotta daginn þinn :)

Auður L (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 08:02

2 identicon

Elsku Þuríður Arna

Innilega til hamingju með daginn þinn, ég vona að þú njótir hans með fjölskyldu og vinum.

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 08:09

3 identicon

Innilega til hamingju með daginn flotta stelpa og flotta fjölskylda :-)

Elísabet (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 08:47

4 identicon

Elsku Þuríður Arna. Til hamingju með afmælið og góða skemmtun í dag.

Kristín (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 08:49

5 identicon

Til hamingju með flottu stelpuna! ;)

Hildur (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:00

6 identicon

Til hamingju með ofurhetjuna!

Helga (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:07

7 identicon

Til hamingju með afmælið Þuríður Arna :) þú ert algjör hetja:)

Ellen (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:29

8 identicon

til hamingju með flottustu maistjörnuna hún er bara lang flottust
og hún er sko heppnust i heimi með vinkonur

ástarkveðja Þórunn Helga

Þórunn helga garðarsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:36

9 identicon

Til hamingju með daginn öll sömul.  Falleg færsla hjá þér, full af kærleik og ást.  Þið eruð óendanlega heppin að eiga öll hvort annað.  Guð gefi ykkur góða daga, alla tíð.

Tendra ljósin.

kærleiksknús 4 barna mamman

4 barna mamma (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:37

10 identicon

Húrra !! Afmælisknús til flottustu 9 ára stelpu í heimi

Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:45

11 identicon

Til hamingju með 9 ára afmælisdaginn þinn Þuríður Arna  
Njóttu dagsins þú flotta stelpa !!

Afmælisknús

Sigrún og co (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 09:56

12 identicon

Hjartans kveðjur til ykkar allra en þó fær hún Þuríður Arna Maístjarna alveg sérstakar afmæliskveðjur með daginn og megi allar stjörnur og rósir senda ykkur góða strauma.

kv gþ

gþ (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 10:22

13 identicon

Til hamingju með maístjörnuna þína

Marta Sigurjónsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 10:38

14 Smámynd: Edda Sigurdís Oddsdóttir

Til hamingju með 9 ára afmælið og yndislegt að heyra hvað það safnast gott fólk í kringum ykkur!!

Njótið dagsins (og allra annarra daga) í botn!

Edda Sigurdís Oddsdóttir, 20.5.2011 kl. 10:54

15 identicon

Til hamingju með afmælið Þuríður Arna og gangi þér vel sem og ykkur öllum! Þú ert hetja!

Dagbjört ókunnug (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 11:35

16 identicon

Innilega til hamingju með fallegu, duglegu hetjuna þína :)

Guðrún ókkunug (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 11:48

17 identicon

Innilega til hamingju með afmælið flotta stelpa.

Sigríður (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 12:17

18 identicon

Elsku fallega duglega Þuríður Arna og öll þín fjölskylda, sem er svo óendanlega stolt af þér og öllu því sem þú gerir fyrir þau öll.

Ég sendi þér hjartans hamingjuóskir með afmælið og bið Guð að gefa þér góða heilsu og allt það besta sem til er í heiminum.

Þess óskar Sólveig

Sólveig (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 13:13

19 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

til hamingju með afmælið elsku hetjan mín og njótu dagsins

Guðrún unnur þórsdóttir, 20.5.2011 kl. 13:15

20 identicon

Innilega til hamingju með afmælið skvísa, þú ert langmesta hetja sem ég veit um :)

Maja (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 14:03

21 Smámynd: Ragnheiður

til hamingju með afmælið Þuríður Arna. Njóttu dagsins í botn :)

Ragnheiður , 20.5.2011 kl. 14:19

22 identicon

Til hamingju með afmæli hetjunnar :)

Ingibjörg Þórdís (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 16:04

23 identicon

Innilega til hamingju með fallegu og duglegu stelpuna ykkar, táraðist bara við að lesa þetta, njótið dagsins og kvöldsins :)

Lilja (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 16:07

24 identicon

Innilegar hamingju óskir með flottustu stelpuna. Theodór hlakkaði mikið til að fara að halda uppá afmælið hennar. Þið eruð heppin að eiga svona flott börn og þau eru öll svo miklir vinir. Eigið frábæran afmælisdag með öllu ykkar fólki.

kv. Ella

Ella (grænu deild) (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 16:48

25 identicon

innilega til hamingju með flottu stelpuna ykkar, guð og gæfan fylgi ykkur og að allt gangi vel, ljúfar kveðjur og góðar óskir

Didda ókunn (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 17:19

26 identicon

Innilega til hamingju með afmælishetjuna þína, hún er alveg yndisleg :)

Kn.

Elín :)

Elín (ókunnug) (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 17:44

27 identicon

Elsku besta fallega Þuríður!

Til hamingju með afmælið þitt <3

Vonandi verða fleiri tívolíferðir hjá ykkur ;)

Kveðja,

Dísa í Svíþjóð

Svandís Rós Þuríðardóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 19:27

28 identicon

Innilegar hamingjuóskir með hetjuna ykkar 

 kv.Hildur

Hildur Halldórsdóttir (ókunnug) (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 20:15

29 identicon

Hjartanlega til hamingju með afmælið ,frábæra

hetja.Gangi þér vel áfram elsku litla frænka.Ég er svo

stolt að við skulum vera skildar.Þú ert svo einstök

elskan.

Knús til systkyna þinna og foreldra.

Kær kveðja.

Halla.

Halla (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 20:24

30 identicon

Til hamingju með daginn Þuríður Arna

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 20:29

31 identicon

Til hamingju með árin 9 elsku Þuríður og fjölskylda :)

Tinna Ósk Björnsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 22:55

32 identicon

Til lukku með fallegu stelpuna þína.

kv.María

María Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 23:08

33 identicon

Til hamingju með afmælið, fallega Maístjarna!

Anna Þorgrímsdóttir (IP-tala skráð) 20.5.2011 kl. 23:33

34 identicon

Elsku besta Þuríður Arna, fallega hetjan okkar allra. Innilegar hamingjuóskir með 9 ára afmælið þitt. Guð gefi þér góða heilsu.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 00:05

35 identicon

Til hamingju með daginn þinn flotta duglega stelpa, kæra fjölskylda til hamingju með duglegu stelpuna ykkar

Hafey (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 09:27

36 identicon

Innilega til hamingju með afmælið fallega blómarós :)

Sigrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 11:36

37 identicon

Hjartanlegar hamingjuóskir með afmælið elsku fallega Þuríður Arna hetjan mín

Þú ert langfallegasta og flottasta 9 ára stelpan sem ég "þekki" og vonandi hefur dagurinn þinn verið þér sem yndislegastur elskan mín

Kæru foreldrar, innilega til hamingju með fallegu stúlkuna ykkar, bestu kveðjur og faðmur til ykkar allra

Sigga (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 13:01

38 identicon

TIl hamingju með daginn Þuríður Arna!!

Ingibjörg Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 15:52

39 identicon

Elsku duglega stelpa, til hamingju með daginn þinn, njóttu hans því hann er þinn

Álfhildur (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 19:31

40 identicon

Til hamingju með litlu hetjuna, hún er flottust! Kv. Ásdís

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 19:59

41 identicon

Elsku Þuríður Arna og fjölskylda!  Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn í gær!  Ég veit að þú hefur átt ógleymanlegan afmælisdag með frábæru fjölskyldunni þinni.  Þið eruð sannarlega öll rík að eiga hvert annað að.  Ofboðslega falleg færsla hjá mömmu þinni!

Kossar og knús, Ásdís

Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2011 kl. 22:25

42 identicon

Kæra þuríður Arna..og fjölsk..Innilega til hamingju með afmælið þitt..Þíð eruð rík að eiga svona yndislega fjölskyldu þú og systkyni þín.Guð veri með ykkur öllum og verndarengillinn þinn Þuríður er alltaf hjá þér...með ósk um allt það besta...og knús í hús kveðju...Hrafnhildur...

hrafnhildur Jóhannsd (IP-tala skráð) 22.5.2011 kl. 17:19

43 identicon

Innilega til hamingju með afmælið þó seint sé :)

Berglind (IP-tala skráð) 22.5.2011 kl. 21:34

44 identicon

Innilegar (síðbúnar) hamingjuóskir með afmælið Þuríður og fjölskylda. Það er alltaf yndislegt að lesa allan kærleikann útúr skrifunum á síðunni, þið eruð heppin að eiga hvert annað að!

Laufey (ókunnug) (IP-tala skráð) 23.5.2011 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband