Leita í fréttum mbl.is

Maginn að fyllast af kvíða.

Sex dagar í næstu (9.júní) rannsóknir hjá Maístjörnunni minni og maginn er að fyllast af kvíða svo það er eins gott að næstu dagar verða "pakkaðir" af einhverjum skemmtilegheitum svo maður geti aðeins gleymt sér. 

Henni líður alveg ágætlega þannig séð, borðar reyndar lítið sem ekkert, húðin farin að þurkast upp vegna þess, oft frekar þreytt enda er svefninn ekkert sérlega góður hjá henni, hún er oftast vöknuð kl sex á morgnanna og stundum fyrr svo foreldrarnir eru oft með bauga niðrá háls.  Það tekur oft á að vakna kanski kl 4:30 á nóttinni og Maístjarnan sko ekki tilbúin að fara sofa aftur því það er komin dagur, auðvidað heldur maður það þegar það er bjart úti.  Ég lýg því ekki en ég þrái alveg stundum meiri svefn.  Kramparnir eru þarna ennþá en hún fékk t.d. einn krampa áðan og það var bara einsog hún væri blindfull, ofsalega skrýtið því ég hef aldrei séð hana hrikalega valta eftir krampa en fór svo stuttu síðar að leika við systir sína og nágranna.  Sterarnir eru ennþá að leka af henni, tekur sinn tíma en hún er farin að geta klætt sig nánast í öll "gömlu" fötin sín og það er líka svo gaman að geta bara valið "eitthvað" úr fataskápnum hjá henni.  Fólki bregður samt ennþá þegar það sér hana, kinnarnar eru smá bólgnar en mér finnst hún líta svo vel út og er nánast orðin að Þuríði ef þið vitið hvað ég meina, svo það er eins gott að það sá hana ekki þegar hún var sem verst en þá var hún líka óþekkjanleg og meir að segja okkar nánasta þekkti hana ekki þegar það kom til okkar í heimsókn.

Það er greinilegt að það er farið að hægjast virkilega mikið á vextinum hennar þar sem Blómarósin mín er að stinga hana af og hún er nú tveimur árum yngri og frænka hennar sem er þremur árum yngri er að ná henni svo mér finnst það megi alveg fara grípa inní.  Erum að fara hitta einn af okkar læknum sama dag og rannsóknir hennar verða og ræða þetta við hann.  Við vonumst að sjálfsögðu líka til að hitta doktor Ingvar sem er hennar helsti sérfræðingur í hennar veikindum veit mest og best og hvað eigi að gera  fyrir hana sama dag og rannsóknirnar verða.

Já maginn er orðinn fullur af kvíða sem mun breytast eftir þann 9.júní þá verður bara eintóm gleði og gott sumar framundan.

Enda færsluna mína á flotta matjurtagarðinum okkar, við fjölskyldan fengum okkur eitt stk svoleiðis fyrir sumarið, svo er ég komin með jarðaberja-, tómata- og paprikuplöntur/tré hérna heima og er mega spennt að sjá afraksturinn af því.
P6029093 [1280x768]
Garðurinn góði.
P6029066 [1280x768]
Systrunum finnst þetta ekki leiðinlegt en þarna liggja kartöflurnar okkar verðandi.Smile

Góða helgi allir og innilega þakkir fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið sent mér/okkur.
XOXO

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

Gangi ykkur vel í þessu stóra verkefni ykkar og í matjurtagarðinum líka :) Þetta VERÐUR GOTT sumar . bestu kveðjur.

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 3.6.2011 kl. 21:11

2 identicon

Guð gefi ykkur styrk og lækningu

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.6.2011 kl. 21:32

3 identicon

Ég skil alltof sjaldan eftir kvitt, en geri það núna. Ég dáist að dugnaðinum þínum. Gangi ykkur vel í verkefnunum sem framundan eru.

kv

Dagný

Dagný (IP-tala skráð) 3.6.2011 kl. 21:33

4 Smámynd: Ragnheiður

Gangi ykkur vel, ég skal hafa hnútinn með þér Áslaug. Við viljum góða niðurstöðu - það er klárt mál.

Þú ert yndisleg mamma, dugleg og sterk.

Gangi ykkur vel með matjurtagarðinn :)

Ragnheiður , 3.6.2011 kl. 21:35

5 identicon

Lýst vel á matjurtagarðinn ykkar, vona að hann gangi vel :)

Eins vona ég að það gangi vel 9.júní

Ég veit þú hefur heyrt þetta óteljandi sinnum ... en þú ert svo ótrúlega dugleg! Knús á þig!

Guðrún ókunnug (IP-tala skráð) 4.6.2011 kl. 07:07

6 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

flottur garðurinn .en gangi ykkur vel 9 júni og ég mun hugsa til ykkar

Guðrún unnur þórsdóttir, 4.6.2011 kl. 17:35

7 identicon

Gott að hafa nóg að gera....en skil vel að þetta er erfitt.  Ég er handviss um að 9. júní verður góður dagur.

Hef ykkur í bænum mínum

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 4.6.2011 kl. 17:52

8 identicon

Krossa alla putta og tær fyrir ykkur þann 9.júní og bið þess að þið fáið góðar fréttir og getið átt yndislegt, frábært og skemmtilegt sumar. Sendi ykkur öllum orkustrauma og góðar hugsanir.

Þóra (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 10:36

9 identicon

Flottur matjurtagarður hjá ykkur. Og ég er handviss um að 9.júní verður góður dagur hjá ykkur og þá fer að hlýna og sólin skín ykkur til heiðurs.

Farðu vel með þig, Áslaug. Hafið það öll sem best, alltaf!

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 13:06

10 identicon

Sendi góðar 9 Júni kveðjur til ykkar..

Palli&Sinfó gíra ykkur/okkur svo upp fyrir sumarið 11 Júní,get varla beðið:):):):)

Kærleikskveðjur..

Halldór.

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 14:02

11 identicon

Guð gefi ykkur styrk þessa daga og alla daga. Gangi ykkur vel.

Kristín (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 18:05

12 identicon

Gangi ykkur rosalega vel þann 9. júní.....

kv Anna

Anna (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 18:18

13 identicon

við hugsum til ykkar 9 júni einsog hina dagana , flottur garður er ekki enþá búin að koma mér í þetta og ætti það verið þetta árið .

var að lesa fyrri færslu þina , og fékk hroll , við förum alltof sjaldan til læknis það er rétt hef fengið skammir fyirr það ,

Farðu vel með þig Áslaug  :)

Sendi ykkur kærleiksknúskveðjur úr sveitinni

Dagrún (IP-tala skráð) 5.6.2011 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband