Leita í fréttum mbl.is

Þetta VERÐUR góður dagur.

Er á leiðinni á fund uppá spítala að hitta sérfræðinginn okkar sem er nota bene í sumarfríi.  Við ÆTLUM að fá GÓÐAR fréttir, það er ekkert annað í boði og svo ætlum við að fagna góðu fréttunum og fara öll fjölskyldan (mínus Hinrik) á Pál Óskar og sinfó á morgun.  Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað börnin eru spennt en litli mömmupungsinn hann Hinrik minn er ótrúlega fúll að fá ekki að sjá goðið sitt, ok ég er smá svekkt að hafa ekki keypt miða handa honum líka fyrir nokkrum mánuðum því hann grenjaði úr sér augun þegar hann heyrði að við værum að fara sjá "Óskar" (hann kallar hann Óskar) en ekki hann.

Ég er gjörsamlega að deyja úr stressi er með gubbuna í hálsinum en einsog ég sagði þá ÆTLUM við að fá góðar fréttir og halda uppá þær á morgun með Páli Óskar goðinu OKKAR og sinfó í Hörpunni.

Skjáumst næst með GÓÐAR fréttir.
Enda færsluna af mömmupungsanum mínum sem verður í pössun á morgun hjá afa Hinrik.
IMG_4556


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

mig vantar orð akkúrat núna til að hughreysta ykkur, en það þarf ekki alltaf mörg orð til að tjá hugsanir sínar.

kv gþ

gþ (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 10:16

2 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 10:22

3 identicon

Bið fyrir ykkur.

 Kv.

VS

Vigdís (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 10:34

4 identicon

Úff gangi ykkur vel.

Jóhanna (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 10:38

5 identicon

Knús á ykkur og ég vona svo innilega að fréttirnar verði góðar.

Linda (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 11:23

6 identicon

Krossa putt og kveiki á kerti

Helga

Helga (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 11:39

7 identicon

Já þið fáið góðar fréttir ekkert annað í boði fyrir svona frábæra fjölskyldu og frábæra mömmu sem heldur svo vel utan um börnin sín aðdáunarvert...Allar mínar góðu óskir ykkur til handa. kær kveðja

Hrafnhildur Jóhannsd (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 11:44

8 identicon

Elsku Áslaug. Búin að hugsa mikið til ykkar og biðja fyrir hetjunni, við þekkjumst ekkert, en ég fylgist með ykkur. Kær kveðja, Inga.

ingibjorg kr. einarsdottir (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 13:05

9 identicon

Ég óska ykkur alls hins besta  og ég veit að þið fáið góðar fréttir. Skemmtið ykkur mikið og vel á morgun í Hörpunni.

kv ÁEH

Álfhildur (IP-tala skráð) 10.6.2011 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband