Leita í fréttum mbl.is

Gull-drengurinn minn

Langaði að birta nokkrar af Gull-drengnum mínum sem er með ofsalega veikt hjarta þessar vikurnar, sofnar grátandi og er farinn að vakna líka grátandi.  Veit ekki alveg hvað við getum gert fyrir hann greyjið?  Sem betur fer hefur hann fótboltan til að gleyma sér í en honum finnst hann æfa heldur lítið (2x í viku) og getur ekki beðið eftir hverri æfingu.  Hann á sér draum að spila með Arsenal og KR í framtíðinniWhistling  og að sjálfsögðu að fara á Arsenal-leikWink .
P7210773 [1024x768]
Hérna er drengurinn að reyna við heimsmetið í planki en það er 60 mín en hann gat heilar 2 mín.
P7210779 [1024x768]
Einbeitingin var mikil enda ÆTLAÐI hann sér að slá met Gilz sem var tvær og hálf mínúta sem hann gerir bara næst þegar hann reynir þetta.Grin
P7210769 [1024x768]
Gull-drengurinn nýkominn af fótboltaæfingu, já maður getur orðið heldur betur skítugur að vera alltaf skorandi.Happy
P7150480 [1024x768]
Síðustu helgi kíktum við norður til ættingja og að sjálfsögðu urðum við að stoppa í jólahúsinu, drengurinn fer sko ekki úr fótboltabúningnum enda ELSKAR hann allar gerðir af búningum.  Við megum ekki fara inní íþróttaverslun án þess að hann "suði" um nýjan búning.InLove
P7150425 [1024x768]
Svo er ein að lokum af þeim bræðrum, staddir á Ólafsfirði í svaka stuði.Heart

Eigið góða helgi, við ætlum að reyna njóta hennar í botn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann er nú ekkert smá vel gerður þessi ungi maður (eins og reyndar öll börnin ykkar)! Gaman að sjá hvað hann er alltaf duglegur en leiðinlegt að honum skuli líða svona illa, karlanganum:O( Frábært að þið skulið skemmta ykkur svona vel, endilega haldið áfram að njóta ykkar í fríinu:o)

Ásdís Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2011 kl. 14:38

2 identicon

Gull-drengurinn ykkar er hörkuduglegur og flottur strákur eins öll systkinin.

Sá feðgana einmitt á vellinum þar sem Skagamenn gerðu góða ferð í borgina og unnu 6- 0. Til lukku!!!! Og ekki orð um þennan leik meir! 

Góða helgi, kæra fjölskylda.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2011 kl. 14:53

3 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 22.7.2011 kl. 20:02

4 Smámynd: Ragnheiður

yndislegi gaurinn, það erspurning hvað er best að gera fyrir hann þessa elsku. Ekki er gott að honum líði svona illa skinninu.

Hann verður seinna mikill fótboltakappi, það sé ég og hann heldur með Arsenal eins og maðurinn minn, það gera bara góðir menn líka

Ragnheiður , 23.7.2011 kl. 15:10

5 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Eins gott að fara(REYNA:)) koma sér í mjúkinn hjá Gulldrengnum....til að eiga séns að sitja í heiðursstúkunni hjá Arsenal og síðar STÓR-liðinu KR:):)

Er ekki tilvalið að fara á leik kringum OL í London nk sumri... og þá sér fimleikastjarnan líka hvernig þær bestu eru í Fimó áður en hún slær þær allar út síðar, enda verður hún best í heimi:):)

Megi hann sem og þið öll finna leið til að líðan í ykkar hjarta verði betri...

Arsenal&KR kveðjur....

Halldór Jóhannsson, 24.7.2011 kl. 12:20

6 identicon

Fallegur drengur, reyndar öll gullfalleg.

Ég var úti að hjóla og ég sá stelpuna (ekki elstu heldur hina) og eldri strákinn úti í fótbolta, alveg gullfalleg :)

Alda (IP-tala skráð) 24.7.2011 kl. 22:00

7 identicon

ohhhh snillingurinn minn, knús á hann :*

ella (grænu deild) (IP-tala skráð) 29.7.2011 kl. 21:34

8 identicon

Sæl Áslaug.

Ég les alltaf reglulega síðuna þína þó svo að ég sé ekki alveg nógu dugleg að kvitta.

 Ótrúlega flott og dugleg börn sem þið eigið. Þvílíkt ríkidæmi. 

Það er örugglega ofboðslega erfitt að horfa upp á stóru systir sína þegar hún finnur til og verður sjálf hrædd, maður getur ekki reynt að setja sig í þeirra spor. 

Maður sér svo vel í gegnum skrifin þín hvað þið eruð rosalega dugleg að halda vel utan um öll börnin ykkar og styðja þau í því sem þau eru góð í. 

Þar sem þið eruð í skb vitið þið sjálfsagt af starfsemi Ljóssins. Ég er iðjuþjálfi og var í verknámi þar og datt í hug þegar ég las um Gull-drenginn þinn, aðstandenda námskeið sem er á þeirra vegum fyrir börn http://ljosid.org/content/view/26/42/ 

Þarna fá börnin að vera þau sjálf og vinna á sínum forsendum en sjá engu að síður að þau eru ekki ein í þessari stöðu, það eru fleiri börn að kljást við þessa erfiðu reynslu. 

Eins og ég segi að þá vitið þið sjálfsagt af þessari starfsemi en ég ákvað samt að senda ykkur linkinn.

Bestu kveðjur

Valgý Arna

Valgý Arna (IP-tala skráð) 31.7.2011 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband