Leita í fréttum mbl.is

Fullkominn dagur í augum Maístjörnu minnar

Það þarf nú ekki mikið til að gleðja Maístjörnu mína.  Við mæðgur áttum yndislegan dag í gær sem hún fékk alfarið að ráða hvað var gert og jú hennar draumadagur var að fara í sund, útað borða (fá sér franskar) og enda svo í Krónunni.  Þetta er FULLKOMIN dagur í hennar augum, yndislegust!  Við skelltum okkur líka í Kringluna til að reyna finna einhver fín skólaföt en það var eina sem hún bað um var að kaupa nærbuxur og topp.Wink  Auðvidað finnst henni líka gaman að fá ný "gellu"föt en þetta dugar henni.

Hún er dáltið þreytt þessa dagana, liggur t.d. núna uppí sófa og hefur það kósý, segist ekki geta hreyft sig og með hausverk.  Það er oft mjög erfitt að fá hana gera eitthvað, útað labba er eitthvað sem hún "hatar" og er ekki að meika en ég reyni samt að "pína" hana.  Þetta getur oft verið dáltið erfitt gagnkvart hinum, þegar þeim langar að gera eitthvað er Maístjarnan mín kanski ekki að meikaða og taka við samningar við bæði Maístjörnuna mína og hin.

Maístjarnan mín er á leiðinni til ömmu og afa, ætlar að dvelja hjá þeim um helgina sem hún getur ekki beðið eftir.  Blómarósin mín á til með að spurja hvort hin geti ekki líka farið því henni langar dáltið mikið að eiga okkur "ein" í smástund sem ég skil líka mjög vel.

Skemmtileg helgi framundan, Gull-drengurinn okkar er mjög spenntur að fara á sinn fyrsta KR-leik um helgina vill helst fara málaður og í KR-búning.LoL  Hann ætlar líka á Skaga-leikinn í kvöld og þar ætlar hann að klæðast Skaga-búningnum.  Bara flottastur!!

Eigið góða helgi.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegt - góða helgi sömuleiðis.

Kveðja - Helga

helga (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 12:14

2 identicon

Sömuleiðis Áslaug eigið MJÖG góða helgi.

knús til allra frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 15:38

3 identicon

Já hún er yndisleg,það er ekki erfitt að láta Maístjörnuna eiga fullkomin dag:):)

Og ekki verður helgin hér á Skaganum slæm:):)

Að sjálfssögðu fer hann málaður og í KR-búning EN EKKI HVAÐ:):)

Maður fyrirgefur honum alveg að fara í þennann gula búning,en veri hann snöggur úr honum eftir leik,hehe....:):)

Góða skemmtun og KR-helgi...:):)

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 20:06

4 identicon

knús til ykkar, gangi ykkur allt í haginn :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 13.8.2011 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband