Leita í fréttum mbl.is

Silfurkonan mín

Blómarósin mín var að keppa um helgina og ég fæ aldrei nóg af því að monta mig af börnunum mínum, hver fær nóg af því?  En hún varð í öðru sæti og hérna eru tvær flottar af henni:
PB273433 [1024x768]

PB273435 [1024x768]
Ath hvort þetta væri ekki alveg ö-a ekta silfur.

Við mæðgur skelltum okkur svo á konfektnámskeið í vikunni og skemmtum okkur rosalega vel en draumur Blómarósar minnar er að vera kokkur eða bakari.  Þegar hún sá að Jói Fel væri að byrja aftur í vikunni trylltist hún af kæti en hún missir ekki af einum matreiðsluþætti í sjónvarpinu og situr svo yfir mér þegar ég er að baka eða elda.  Ætli ég leyfi henni ekki að hjálpa mér að hnoða í eitt stk lagtertu í vikunni.

En hérna eru nokkrar frá námskeiðinu okkar mæðgna:
PB233219 [1024x768]
Maístjarnan mín einbeitt í konfektgerðinni.
PB233220 [1024x768]
Blómarósin mín stollt með molana sína.
PB273386 [1024x768]
Litli snillingurinn minn, húmoristi og Gull-drengur Theodór Ingi.  Alltaf tilbúinn í smá fíflalæti.
PB273347
Sjarmatröllið mitt í myndastuði líka.
PB273480 [1024x768]
Draumavinna Maístjörnu minnar er að verða bingóstjóri en henni finnst miklu skemmtilegra að stjórna bingóinu en að vera með.

Allir eru annars hressir, hlökkum mikið til desembermánaðar sem verður sá allra besti sem við höfum upplifað.  Mikill spenningur hjá öllum fyrir jólunum og ég finn hvað ég er orðin spennt, ekkert stress fyrir rannsóknum eða neitt.  Bara að njóta þess að vera til og skemmta okkur saman.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegar myndir - njótið vel :-)

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 13:19

2 identicon

Það er ekki hægt annað en dáðst að því hvað þú ert frábær MAMMA. Þú heldur svo vel utan um ungana þína Áslaug og það er svo gaman að sjá síðuna þína. Þau eru svo sérstök hvert á sínu sviði þið eruð svo sannarlega rík að eiga þessa gullmola!! Gangi ykkur allt í haginn Stella

Stella Markúsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 16:34

3 identicon

Kristín (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 20:51

4 identicon

Já einmitt, njótið desember í botn

Eina sem mér dettur í hug að gæti skyggt á er gítarinn góði hans Hinriks, þ.e ef tónleikahaldið verður stöðugt, eins og gjarnan er fyrir jólin

Desemberknús frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 13:23

5 identicon

Gleymdi að senda hamingjuóskir til blómarósarinnar og ykkar.

Sólveig (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 13:24

6 identicon

Fjórir litlir gimsteinar.

kv gþ

gþ (IP-tala skráð) 30.11.2011 kl. 14:52

7 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 30.11.2011 kl. 17:15

8 identicon

Til hamingju með þau öll , öll svo yndisleg börnin ykkar , eru ekki allir komnir í jólafíling , loksins eru jólaljósin að koma sér upp úr kössunum hér í sveitinni , allt að hafast :) meira segja á að setja eina séríu út  handa kindunum svo þær komist í jólastuð :)

jólakærleikskveðjur  að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 3.12.2011 kl. 00:07

9 identicon

Til hamingju Blómarós:)

Já ekki má gleyma Bingóstjóranum:)

Það hressir bætir og kætir að skoða þessar myndir og lesa síðuna:)

Njótið aðventunnar í leik og starfi og ekkert stress:)

Eruð einstök:)

Halldór Jóh (IP-tala skráð) 3.12.2011 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband