Leita í fréttum mbl.is

Verum þakklát fyrir ALLT. (breytt)

Núna er ár síðan Maístjarnan mín var svona:
P1015812 [1280x768]

P1015817 [1280x768]
Mér finnst reyndar rosalega erfitt að horfa á þessar myndir og rifja upp þessar minningar en finnst bara nauðsynlegt að sýna hvað við heilbrigða fólkið höfum það gott.
PC315735 [1280x768]
Maístjarnan mín að reyna brosa, en við vöktum hana þarna um kvöldið svo hún gæti fagnað nýju ári með okkur og séð flugeldana þar sem hún er mikil flugeldakona.  Einsog þið sjáið er hún "stút-full" af sterum og þið sjáið líka að hún á erfitt með að brosa vegna lömunar í munni en hún brosir reyndar alltaf með hálfum munni þar sem hún er ennþá að kljást við lömunina.


Hún gat varla hreyft sig vegna mikils bjúgs (þurftum að hjálpa henni í hvert skipti sem hún þurfti að standa upp, snúa sér í rúminu eða bara við hverja hreyfingu, hún var orðin svo loðin í framan vegna steranna, hún var svo kvalin og vanlíðan var svo mikil að hálfa væri miklu meir en nóg.  Þetta er eitthvað sem ég ætla mér ALDREI aftur að upplifa með henni.  Jólin hjá henni í fyrra voru "helvíti" þá meina ég "helvíti".  Við fögnum hverjum degi sem við fáum með börnunum okkar sem er að sjálfsögðu ekki sjálfgefið og æxli Maístjörnu minnar getur "poppað" upp aftur hvenær sem er enda fer hnúturinn aldrei úr maganum það benti heldur ekkert til þess að æxlið var komið aftur upp í maí'10.  Þess vegna er ég heldur ekkert að stressa mig yfir því að íbúðin er ekki skínandi fín um jólin það er nú minnsta "vandamálið", ég tek heldur ekki til í öllum skápum fyrir jólin, pifffhh nenni nú ekki að stressa mig yfir svoleiði smáhlutum.  Það eina sem mér er sama um að börnunum mínum líði vel og fái að njóta jólanna í botn, ég elska að horfa á gleðina hjá þeim sem fylgir þessum tíma.  Þau er nr. 1, 2 og 3.  Gæti ekki verið meira sama þó svo ég finni mér ekki nýja flík fyrir jólin, nota bara gamla fína kjólinn minn sem ég fíla svo vel bara en eina ferðina. Sideways  Stressum okkur nú okkur ekki yfir þessum litlum hlutum sem skipta engu máli, verum bara þakklát fyrir að vera saman.

Ég verð nú líka að birta einni af minni flottustu Maístjörnu og hennar Idolum en þeir voru bingóstjórar uppá Barnaspítala í bingói sem ég hélt þar.  Þið sjáið að sjálfsögðu mikin mun af Stjörnunni minni í dag og fyrir akkurat ári síðan.  Henni líður líka svo rosalega vel miða við allt.
PC203714 [1024x768]

Meira síðar.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

hetjan mín er flottust .knús til ykkar allra

Guðrún unnur þórsdóttir, 22.12.2011 kl. 12:56

2 identicon

Brosandi og svo endalaust dugleg og falleg - þvílík hetja.  Tek ofan fyrir henni   Skil svo vel hvert orð í færslunni þinni - fjölskyldan er svo sannarlega það sem skiptir öllu máli ekki hreinir skápar eða í kjólinn fyrir jólin.  Samveran er það besta - við höngum í náttfötunum yfir hátíðirnar og það að knúsast upp í sófa með nammi og konfekt...það er dásamlegt.

Langar að óska ykkur gleðilegra og góðra jóla og bið guð um að gefa ykkur gott komandi ár sem verður fullt af gleði.  Tendrum ljósin áfram og biðjum bænir 

Jólakærleikskveðja yfir fjöllin 4 barna mamman

4 barna mamman (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 13:26

3 identicon

Sendi ykkur öllum hlýjar jólakveðjur.  Þið eruð svo dugleg öll.

Óska þess að Maístjarnan, Erla-perla og prinsarnir ykkar, ásamt ykkur auðvitað, eigið gleðilega daga framundan og að heilsan verði eins góð og hún best getur orðið.

Jólaknús

Stella Aðalsteinsdóttir og fjölskylda

Stella A. (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 17:11

4 identicon

elsku fallega stelpan mín og þið öll, er svo þakklát fyrir að hafa kynnst ykkur

Stína (Garðars) (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 20:50

5 identicon

Elsku kellingin megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur öllum.

Gleðileg jól

Helga (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 21:24

6 Smámynd: Sveinbjörg M.

Gleðileg jól fallega og ótrúlega duglega fjölskylda og hafið það sem allra, allra best yfir jólin og alltaf

Sveinbjörg María (Óskars og Sigrúnar Birtu frænka)

Sveinbjörg M., 22.12.2011 kl. 22:26

7 identicon

 Gleðileg jól fallega fjölskylda   

Auður Lísa (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 10:52

8 identicon

Kæra fjölskylda!

Má til með að senda ykkur mínar allra bestu jólakveðjur og vonandi verði þessi jól ykkur eins ljúf og hægt er að hugsa sér. Bloggið þitt hefur kennt mér mikið og ég dáist endalaust mikið af því hvernig þið höndlið lífið og því sem það réttir að ykkur (ekki allt samkvæmt óskum!) með bestu jólakveðjum frá Ísó!

Sóley V. Ísafirði (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 12:21

9 identicon

Gleðileg jól kæra fjölskylda

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 23.12.2011 kl. 21:43

10 identicon

Hafið það sem allra best um hátíðirnar kæra fjölskylda.

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 24.12.2011 kl. 14:24

11 identicon

Kæra fjölskylda, ég vona að þið hafið átt yndislega daga núna um jólin.

Munurinn á myndunum af Maístjörnunni  er eins og svart og hvítt.

Hún er mikil hetja. Og vonandi er Blómarósinni líka farið að líða betur.

Hafið það sem best öll sömul.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2011 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband