Leita í fréttum mbl.is

Dagur eitt í sjúkraþjálfun á hestum

Maístjarnan mín fallega og sú allra flottasta er að byrja í sjúkraþjálfun á hestum í dag og hún gæti ekki verið spenntari.  Hún mun vera 2x í viku og ég veit að hún mun njóta þess í botn, ég hreinlega get ekki beðið með að fara með hana á æfingu í dag.  Hún lifir fyrir sjúkraþjálfanirnar sínar. 

Hún var einmitt að byrja í fótolta hjá Stjörnunni en þeir eru með fóbolta 1x í viku fyrir börn með þroskahamlanir og hún byrjar að spurja mig á mánudeginum hvenær hún fari eiginlega næst í fótbolta en hann er á sunnudögum.  Svo er hún farin að æfa sig með boltann hérna heima sem er bara gaman og sýnir okkur allskonar "trix".  Ég tek að ofan fyrir Ýr taugalækni sem átti hugmyndina af þessu enda stór sniðugt og ennþá skemmtilegra fyrir Maístjörnuna mína. 

429031_10150528601529611_599854610_8911328_1870429014_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sko þetta er allt að koma hjá Stjörnunni minni, æfing skapar meistarann.  Svo er hún líka með svo flotta fyrirmynd sem hún lítur mikið upp til og er alltaf tilbúin að sýna henni og kenna fimleika.
428320_10150528606404611_599854610_8911382_1719743202_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Yndislegust.
400533_10150528627369611_599854610_8911513_990926120_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 



Bestu vinkonur og systur.  En það er farið að taka dáltið á að verða bráðum 10 ára gömul og geta ekki alla þá hluti sem 7 ára systir manns getur.  Það er virkilega sárt að sjá þegar það gerist því það verður mikill grátur og særindi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Knús í hús

Sólveig (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 13:00

2 identicon

Þvílík baráttukona, þvílík hetja og þvílíkt yndi þessi stúlka ykkar.  Ég trúi því að það særi að geta ekki allt sem flott systir gerir en það verður bara að einblína á styrkleika hennar og benda henni á þá (ég veit þið gerið það).

Ég er sammála því að þeir sem setja upp námskeið fyrir börn með sérþarfir eigi hrós skilið, auðvitað eiga börn með sérþarfir að geta farið á námskeið eins og hin sem heilbrigð eru.

Gangi ykkur vel og njótið vel

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband