Leita í fréttum mbl.is

Hausverkur.is

Maður er búin að vera frekar niðurdregin síðustu daga þar sem Maístjarnan mín er búin að vera frekar kvalin í höfðinu og þá fer líka maginn á hvolf og maður fer að ímynda sér að allt sé farið afstað aftur.  Erum að fara uppá spítala í fyrramálið í  mánaðarsprautuna hennar og þá ætla ég að ræða þetta við hjúkkuna hennar og ef hún heldur áfram að vera svona kvalin þá ætla ég að biðja um að flýta myndatökunum hennar sem eiga að vera í lok maí.  Hún er reyndar ekkert rosalega sátt að þurfa að fara í þessa "ógeðslegu" sprautu einsog hún segir hana vera en það bjargar því að hún og ég ætlum að vera með bingó á leikstofunni og ætlar að sjálfsögðu að vera bingóstjórinn en hún elskar að "gefa" og stjórna og ég veit að hún mun njóta þess í botn á morgun.

p3305652.jpg


En hérna er hún með hluta vinningana sem við mætum með á spítalann en Bónus gaf okkur þessa vinninga svo að öll börnin fái vinning þrátt fyrir að fá ekki bingó og svo erum við með stór páskaegg frá Freyju og Kólus en ég er óendanlega þakklát fyrir að þessi fyrirtæki styrktu okkur með þessum flottum vinningum.

Það er alveg endalaust gaman að sjá hvað Maístjörnunni minni finnst þetta gaman og gleðst með öllum sem fá vinning.  Hún vill nefnilega ekkert vera með og reyna vinna bara "gefa".  Bara gaman!!

Gleðilega páska kæru lesendur, njótið!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ææ hvað er leitt að heyra um höfðuðkvalirnar hjá Maístjörnunni,og þeim kvillum sem fylgja með fyrir hana og ykkur...

Það verður stuð hjá ykkur á Bingóinu,og þið mæðgur eruð einstakar að standa fyrir þessu gjöfuga verkefni fyrir blessuð börnin og co...

Megi þið eiga eins góða páska og mögulegt er,þess óska ég..

Kærleikskveðjur..

Halldór..

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 21:05

2 identicon

Hún er svo yndisleg. Guð gefi að hún verði betri í höfðinu. Gleðilega páska elsku fjölskylda.

Kristín (IP-tala skráð) 3.4.2012 kl. 08:12

3 identicon

Bið fyrir því að Maístjörnunni fari að líða betur.  Góða skemmtun á morgun og gleðilega páska.

Trú, von og kærleikur - Helga

Helga (IP-tala skráð) 3.4.2012 kl. 19:33

4 identicon

Gleðilega páska kæra nafna, vona virkilega að maístjarnan þín fái að eiga góða páska, og þið öll að sjálfsögðu, það er ekki skrýtið að þú skulir vera niðurdregin, allt sem á ykkur er lagt. 

bestu kveðjur Áslaug

Áslaug (IP-tala skráð) 3.4.2012 kl. 21:02

5 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

knús til ykkar allra og gleðilega páska

Guðrún unnur þórsdóttir, 4.4.2012 kl. 15:00

6 identicon

Já, sælla er að gefa en þyggja. Leiðininlegt að heyra þetta með höfuð kvalirnar hjá henni.

Gott að fyrirtækin styrktu ykkur. Vona að þið getið notið páskahátíðarinnar.

Gleðilega páska, kæra fjölskylda.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.4.2012 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband