Leita í fréttum mbl.is

"afi þú átt að hætta reykja svo þú fáir ekki krabbamein einsog ég"

Þessa setningu sagði Maístjarnan mín við afa sinn í vikunni og ég held að afi hennar hafi tekið þetta til sín. Hún er mikið farin að að spá mikið í reykingar og hvað þær geta gert manni og auðvidað hefur afa stelpan áhyggjur af honum.  Hún elskar meir en allt að vera ein með afa sínum Hinrik því hún veit að hún fær allt hjá honum eða það sem hún vill, laumar oft tásunum til hans til að fá nudd og hún veit líka að það er rólegast hjá honum.  Oft þarf hún bara að komast í burtu af heimilinu í rólegheitin hjá afa sem hún nýtur í botn - fá að ráða fjarstýringunni og láta hann snúast í kringum sig.

Síðustu dagar eru búnir að vera frekar rólegir en Maístjarnan mín er búin að vera kvarta smávegis undan hausverk og mér finnst það alltaf óþægilegt og vont þrátt fyrir að það þurfi ekkert að merkja nema kanski mikið álag á lítinn kropp.  Rannsóknirnar hennar eru 8.maí og auðvidað er kvíðinn mættur á svæðið.

Maístjarnan mín er farin að telja niður dagana í afmælið sitt og farin að vakna fyrir allar aldir á morgnanna því hún er svo spennt en hún á samt ekki afmæli fyrr en 20.maí - verður samt með veislu í næstu viku með systir sinni sem á afmæli á mánudaginn.  Hrikalega gott að geta gleymt sér í veislu-undirbúningi og horfa á hana ljóma alla daga því hún er svo spennt.

Eigið góða helgi en mín nýtur sín núna í afmælis-undirbúningi sem ég elska - veit ekki margt skemmtilegra en halda uppá afmæli barnanna minna.


Langar að enda færsluna á mynd af þeim bræðrum en svona sofnuðu þeir eitt kvöldið í vikunni, held að það sé ekki margt yndislegra en þetta enda ekki hægt að biðja um meiri kærleik á milli þeirra bræðra:
p4215839.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ómetanlegt að eiga góða afa og ömmur. Yndisleg mynd af bræðrunum. Góða helgi.

Steinunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 11:39

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Afar og ömmur eru mikil auðlind - það eru barnabörnin okkar líka :)

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.4.2012 kl. 14:14

3 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 27.4.2012 kl. 14:57

4 identicon

Þetta er toppurinn á lífinu, börnin okkar og þeirra vellíðan.

Knús í hús.

Solveig (IP-tala skráð) 28.4.2012 kl. 00:24

5 identicon

En yndisleg mynd af þeim bræðrum :o) Og gott að Þuríður skuli vera svona heppin með afa sinn sem og alla aðra í kringum sig!

Ásdís (IP-tala skráð) 28.4.2012 kl. 09:50

6 identicon

Yndisleg mynd af bræðrunum. Þetta er svo fallegt.

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2012 kl. 10:33

7 identicon

Æðisleg mynd af bræðrunum :)

Freydís (IP-tala skráð) 8.5.2012 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband