Leita í fréttum mbl.is

Gleði gleði gleði

Einsog flestir vita sem lesa síðuna mína þá var brotist inn til okkar í byrjun sumars og ég lýg því ekki en það hefur virkilega tekið á taugarnar.  Ég hef heyrt fólk gera lítið úr þessu en þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þetta er vond tilfinning og þetta hefur reynst verst fyrir Blómarósina mína 8 ára sem svaf inni hjá okkur í allt sumar því hún þorði ekki að vera inní herberginu sínu þrátt fyrir að vera með Maístjörnunni minni  í sama herbergi.  Hún var svo hræddum að þeir myndu birtast þar inni, vill sjálf setja þjófarvarnarkerfið á væntanlega til að vera fullvissum að það sé örugglega á.  Hún fer ekki ein heim einsog hún var farin að geta eða verið ein heima í 10 mínútur eða á meðan ég stökk útí leikskóla að ná í strákana mína.  Hún þarf t.d. að vera öll ljós kveikt inní herberginu þegar hún er að fara sofa og Maístjarnan mín er að sjálfsögðu ekki alveg sátt með það en já þetta hefur tekið á litlu Blómarósina mína.

Ég get ekki farið ein niður í bílageymslu að kvöldi til að snemma morguns, ég á líka erfitt með að fara útí bíl þegar það er farið að dimma.  Já þetta er frekar skítt en ég veit að þetta mun lagast með tímanum.

Í síðustu viku fékk ég símtal frá rannsóknarlögreglunni en hún tilkynnti mér það að hann hefði gefið sér það leyfi að sækja um í líknarsjóð þeirra fyrir okkar hönd og viti menn það var samþykkt svo á föstudaginn mættu þrír af rannsóknarteyminu eða þrír af þeim sem sáu um rannsókn þessa máls og afhentu Maístjörnunni minni 100.000kr ferðastyrk en þeir vilja endilega að við komumst til Spánar næst sumar og þetta væri uppí þá ferð.  Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þetta kom að sjálfsögðu á óvart og hvað við erum endalaust þakklát fyrir þessa fallegu hugsun hjá lögreglunni.  Jú draumur Blómarósar minnar hefur verið í dáltinn tíma að komast til Spánar og þetta er ágætis byrjun uppí þann draum.

Einsog ég hef oft sagt áður þá raðast bara gott fólk í kringum okkur sérstaklega vegna veikinda Maístjörnu minnar og við gætum ekki verið þakklátari en þá vildi ég frekar aldrei hafa kynnst þessu fólki og vissi þá að ég ætti heilbrigt barn og hefði „bara venjulegar áhyggjur“ og drauma sem myndu frekar aldrei rætast.  Ég þrái að sjálfsögðu ekkert heitara en það að hafa aldrei þessar veikindaáhyggjur, vitandi þessi að æxli Maístjörnu minnar getur farið afstað aftur á morgun en svo er víst ekki. 

Alveg yndislegt hvað lögreglan hugsaði fallega til okkar og er að reynir allt til að leyfa okkur að fara til Spánar næsta sumar og það er aldrei að vita að sá draumur rætist.

Hérna er ein mynd af því þegar lögreglan kom heim til okkar og afhenti Maístjörnunni minni styrkinn:

pa127570.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 15.10.2012 kl. 14:01

2 identicon

Yndislegt að lesa þetta ! Vonandi komist þið í Spánarferð á næsta sumri :)

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 15:33

3 identicon

frábært að heyra, gæfan fylgi ykkur ávallt :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 15:42

4 identicon

Þetta er dásamlegt að heyra :) Njótið vel og gangi ykkur allt í haginn í framtíðinni :)

Arna Ósk Harðardóttir (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 16:39

5 identicon

þetta er bara frábært til hamingju, vonandi rætist draumur ykkar allra.

kv gþ

gþ (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 17:08

6 identicon

Dásamlegt, vonandi komist þið til Spánar næsta sumar :)

Guðrún (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 21:56

7 identicon

Mikið er gaman að heyra þetta, ég er viss um að þetta er bara byrjunin og það mun safnast smátt og smátt í þennan sjóð í vetur.....svo er það Spánn næsta sumar.

Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 16.10.2012 kl. 20:36

8 identicon

Njótið.

I.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 16.10.2012 kl. 20:44

9 identicon

Yndislegt að heyra þetta, Innilegar hamingjuóskir með þetta og vona að þið komist til Spánar .. nærsta sumar

vona að blómarósin ykkar jafni sig , veit að ég yrði hrædd svo ég skil hana vel ...

kærleiksknús að austan

Dagrún (IP-tala skráð) 16.10.2012 kl. 23:34

10 identicon

Yndislegt, njótið vel elsku fjölskylda :)

Kristín (IP-tala skráð) 17.10.2012 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband