Leita í fréttum mbl.is

Blogg-leiði

Gleðilegt árið kæru vinir!!

Ég er komin með mikinn blogg-leiða og er ekki alveg að nenna skrifa hérna en ákvað að skrifa nokkrar línur til að láta vita af okkur.

Maístjarnan mín er alltílagi, stundum erfitt að átta sig á líðan hennar því stundum er hún ofsalega óhamingjusöm og erfið í skapi og hina stundina súper kát.  Hef samt smá áhyggjur af henni útaf sjóninni sérstaklega - sem hefur versnað dáltið mikið en það getur líka verið að geislarnir eru að skemma eitthvað hjá henni sem kæmi að sjálfsögðu ekki á óvart.  Erum á leiðinni uppá spítala í mánaðarsprautuna hennar og þá fáum væntanlega að vita rannsóknardaginn hennar sem á að vera í febrúar.

Stutt og laggott í dag - enganveginn að nenna þessu langar bara að loka þessu kafla og fara hugsa um eitthvað annað skemmtilegra.

Þanga til síðar - veit reyndar ekki hvenær.......
423364_10151234977249611_194928952_n.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Ein af Maístjörnunni minni með nýju gleraugun sín - en það þurfti að rífa af mér báða handleggina fyrir þau þrátt fyrir góðan afslátt í búðinni.  ....frábær þjónusta sem ég fékk hjá þeim í Optical Studio í Smáralindinni, mæli hiklaust með þeim ef þið viljið fá góða þjónustu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara skrifar þegar þér hentar,ekki "stressuð" yfir okkur...

Hugur minn og hjarta er alltaf nálægt ykkur,með von um betri tíð..

Kærleikskveðjur.

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 11:48

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.1.2013 kl. 12:54

3 identicon

flott elsku stelpan, stóórt knúús og hlýjar kveðjur, gangi ykkur allt vel og þér á meðgöngunni :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 14:06

4 identicon

Elsku Áslaug, allar mínar bestu óskir til ykkar.

Þorgerður (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 14:36

5 identicon

Gott að heyra frá ykkur, og takk fyrir fallegt jólamyndband og gangi ykkur allt í haginn, kveðja gþ 

gþ (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 14:46

6 identicon

Gott að heyra af ykkur, vonandi gengur allt vel og meðgangan að sjálfsögðu líka.  Aldrei nein lognmolla í kringum ykkur

Knús í hús.

Ásdís (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 17:14

7 identicon

Gleðilegt ár Áslaug og fjölskylda :-)

Ég skil vel með þennan bloggleiða og í raun ættir þú ekki að blogga nema þú hafir gaman að því.  Ég verð samt að segja....maður er búinn að fylgjast með ykkur svo lengi að ég verð öll óróleg ef það kemur ekki blogg í langan tíma og svo verður maður alltaf jafn feginn þegar bloggið kemur (það eru sem betur fer oftast góðar (ekki vondar) fréttir).

Núna finnst mér gott að heyra að Maístjarnan hefur það oftast gott.  Hún er orðin svo stór að það getur alveg verið eðlilegt að hún sé stundum ekki hress....sérstaklega af því að hún er að átta sig betur á ástandinu sínu en skilur það kannski ekki alveg.  Ég á einn einhverfan og það kom tímabil sem var mjög erfitt (hann var oftar erfiður í skapinu), hann var þá að átta sig á ástandinu en skildi það samt ekki alveg. Núna er hann 11 að verða 12 ára og er að öðlast meiri skilning auk þess sem hann sættir sig meira við sínar aðstæður og þá er hann um leið þægilegri í skapinu. 

Þetta er vonandi bara eitthvað svona sem er að "bögga" hana.

 Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 18:14

8 identicon

....ég gleymdi að segja hvað hún er flott með nýju gleraugun....algjör pæja :-)

Kv. Helga

Helga (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 18:15

9 identicon

Bloggar bara þegar andinn kemur yfir þig ;) Ég hugsa alltaf fallega til ykkar og sendi hlýja strauma. Kærleikskveðja.

Edda Hlíf Hlífarsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2013 kl. 17:58

10 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 11.1.2013 kl. 20:35

11 identicon

Hugsa oft til ykkar og vona að öllum líði sem allra best.

Jólamyndbandið var yndislegt. 

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.1.2013 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband