Leita í fréttum mbl.is

VARÚÐ - mont dagsins!

Ég get montað mig endalaust af börnunum mínum enda aðeins of stollt af þeim og skammst mín ekkert fyrir það og ætla mér ekkert að hætta að monta mig af þeim.

Í þetta sinn ætla ég aðeins að monta mig af Blómarósinni minni sem var að keppa á sínu fyrsta FSÍ-móti í fimleikum í gær og stúlkan kom heim með eitt gull og tvö brons.  Langar að sýna ykkur myndband af gull-æfingum hennar:


Hún er ótrúlega dugleg í öllu sem hún gerir - stendur sig rosalega vel í skólanum og þar eru bara tíur, hún hefur mikin metnað í öllu, vill vera best í öllu og stundum þurfum við foreldrarnir aðeins að "róa" hana niður, hún sýnir engum neitt nema hún viti að það sé fullkomið hjá henni, hún æfir fimleika alla daga og finnst það æðislegt, ef hún er ekki á æfingum er hún að gera æfingar hérna heima.  Hún er ótrúlega feimin og lokuð en fimleikarnir hjálpa henni mjög mikið í því - því henni finnst fátt skemmtilegra en að sýna sig fyrir öðrum þó svo hún opni sig ekki fyrir hverjum sem er eða tali við hvernig sem er af fyrra bragði.  Þrátt fyrir að vera aðeins átta ára þá er hún einsog 15 ára í þroska - búin að þurfa þroskast aðeins of hratt vegna veikinda Maístjörnurnar.  Hún ber mikla ábyrgð gagnkvart henni, stundum of mikla, hefur ekki fengið að njóta þess að vera barn.  Hætti t.d. of snemma (af mínu mati) að leika sé rmeð dót eða rúmlega 6/7ára gömul.  

En ég er ótrúlega stollt af þessari stelpu og elska hana meira en allt.
Hérna eru tvær af henni frá mótinu:
p2038339.jpg



















p2038306.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott gullstelpa sem þú átt. Til hamingju með hana :-)

Anna (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 10:07

2 identicon

Yndisleg daman. Þú og þín fjölskylda megið svo sannarlega vera stolt þið eruð einstök.

Þorgerður (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 10:13

3 identicon

Glæsilegt hjá Blómarósinni ykkar ! Hjartanlega til hamingju með hana :)

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 11:28

4 identicon

Glæsileg, algjör stjarna! Til hamingju með hana. :O) Fullt af kærleik til ykkar.

Edda Hlíf Hlífarsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 12:11

5 identicon

Til hamingju með þessa flottu stelpu

Margrét Snorradóttir (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 15:19

6 identicon

Mikið rosalega var þetta flott hjá henni :)

Hanna (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 17:58

7 identicon

Þau eru bara æðisleg börnin þín og þú mátt vera stolt af þeim öllum með tölu

fjögurra_dætra_móðir (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 19:34

8 identicon

Ekkert smá flott hjá Blómarósinni. Þú mátt sko alveg monta þig af börnunum þínum, það er bara ekki hægt annað.

Þau eru öll sömul frábær, hvert á sínu sviði. Til hamingju með þau!

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 21:14

9 identicon

Hér er líka síðbúinn afmæliskveðja til Gulldrengsins ykkar. :)

Sólveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2013 kl. 21:18

10 identicon

Mikið er þetta flott hjá henni.  Viltu óska henni til hamingju með þessar glæsilegu æfingar.

 Kveðja - Helga

Helga (IP-tala skráð) 5.2.2013 kl. 17:14

11 identicon

Haltu endilega áfram að vera svona stolt af þessum elskum, þú hefur svo sannarlega ríka ástæðu til þess!  Gangi ykkur svo ofboðslega vel í rannsóknunum sem eru framundan     KNÚS í hús.

Ásdís (IP-tala skráð) 5.2.2013 kl. 23:24

12 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Vá hvað Blómarósin ykkar er flott!!! Til hamingju með hana ..:)

Já..þið getið svo sannarlega verið stolt af börnunum ykkar öllum..þau eru dugnaðarforkar..fallegir og sterkir einstaklingar og miklar hetjur..og það þakka þau klárlega flottu foreldrunum sínum sem gera allt til þess að búa þau vel undir lífið sjálft og eru þeirra klettar í ólgusjó lífsins..

Gangi ykkur áfram vel. og takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með Maistjörnunni og hennar baráttu og sigrum. Takk takk..:)

Bergljót Hreinsdóttir, 6.2.2013 kl. 18:13

13 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Furðulegt það er ekki einasti karlfuskur sem nenir eða er er alveg sama um þessa ungu stúlku og hennar stórkostlega árangur.

Heldur er það allt konur sem að bjóða stúlkuni til hamingju með árangurin.

Ég ættla að verða fyrsti og kanski eini karlfuskurinn sem skrifar athugasem við þennan pistill.

Til hamingu með verðlaunin unga mey og meigi þú fá mörg flerri.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 10.2.2013 kl. 02:28

14 identicon

Til hamingju með flottu stelpuna ykkar ;)

Kristín (IP-tala skráð) 11.2.2013 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband