Leita í fréttum mbl.is

Óskar skrifar

Ákvað að setja nokkrar línur hér inn.  Okkar versti óvinur (biðin) er enn að angra okkur.  Fórum á fundinn í morgun en niðurstöðurnar frá myndatökunni eru óljósar (mjög óljósar).  Þær gætu verið góðar en þær gætu líka verið mjög slæmar.  Læknarnir ætla að skoða þetta betur í dag og eigum við að hitta þá aftur seinnipartinn.  Vonandi heyrið þið aftur frá okkur í dag eða kvöld - vonandi með góðu fréttirnar.

Kveðja
Óskar Örn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

Hugsa til ykkar, gangi ykkur sem allra best.

Gerða Kristjáns, 21.2.2007 kl. 11:07

2 Smámynd: Þórunn Eva

hugsa ógó mikið til ykkar elskurnar og gangi ykkur ofsalega vel koss og knús og risa knús öllu heldur

Þórunn Eva , 21.2.2007 kl. 11:29

3 identicon

Kæra fjölskylda, Guð veri með ykkur í biðinni og vonandi fáið þið góðar fréttir.Ég kveiki á kerti og hugsa til ykkar.

Kveðja Elín.

Elín (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 11:35

4 identicon

Knús á ykkur....hugsa til ykkar og vona að það veðri góðar fréttir í dag

Melanie Rose (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 11:56

5 identicon

Sendi ykkur öllum stóóóórttt knús, hugsa stíft til ykkar..

Lilja Kópavogi (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 12:14

6 identicon

Hugsa mikið til ykkar og sendi ykkur allan minn styrk

Þóra (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 12:18

7 Smámynd: Adalheidur Palsdottir

Hæ þið. Mikið skil ég ykkur vel...þessi biðtími er bara leiðinlegur og erfiður og stressandi. Mun fylgjast með í dag og krossa fingur.

Knus og kram

Aðalheiður, Davíð og Björk

Adalheidur Palsdottir, 21.2.2007 kl. 12:55

8 identicon

Úff.... Þetta er ekki auðvelt. Þið hetjur verðið núna eflaust að taka á honum stærsta ykkar. Ég sendi ykkur allar mínar bænir og góðu hugsanir í dag.

Vona að útkoman verði eins góð og mögulegt er þegar ég kíki hér inn fyrir háttinn. En nú ætla ég að fara og kveikja á keri fyrir Þuríði litlu.

ylfa (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 13:09

9 identicon

Vona að biðin verði ekki löng og allt fari á besta veg. Sendi ykkur mínar bestu óskir og kveðjur.  Ókunnug MK

MK (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 13:33

10 identicon

Gangi ykkur vel í biðinni og við biðjum fyrir ykkur

Halldóra (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 13:45

11 identicon

Hugsum til ykkar!

Katrin Ösp og Ólöf Alda (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 13:58

12 identicon

Vonandi færa læknarnir ykkur góðar fréttir á eftir. Biðin er erfið. Guð og gæfan fylgi ykkur.

Álfheiður (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 14:02

13 identicon

Er hér inn og út í dag að bíða eftir fréttum. Eins og mér líður (ókunnugri manneskjunni) þá get ég ekki ímyndað mér hvernig ykkar líðan er við að bíða svona. Ég vona það besta og bið fyrir ykkur.

Ólöf (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 14:27

14 Smámynd: Kolgrima

  Bið og vona af öllu hjarta að fréttirnar verði góðar

Kolgrima, 21.2.2007 kl. 14:34

15 identicon

Ég bið og vona að fréttirnar verði góðar, ég get ekki ýmindað mér hvernig ykkur líður, ég er ykkur blóáokunnug en samt með kvíðahnút í maganum yfir hvernig fréttirnar verði.  ég kveikti á kerti og bið fyrir ykkur kæra fjölskylda.

Áslaug

áslaug (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 15:06

16 identicon

Mikið vildi ég óska þess að guð bænheyrði okkur núna og færði ykkur góðar fréttir af henni Þuríði ykkar, elskulega fjölskylda megi ykkur ganga allt í haginn. Kveiki á kerti fyrir ykkur, ég held það veiti ekki af að senda ykkur birtu og hlýjar bænir. Höldum áfram að biðja og vona

kona að norðan (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 15:31

17 identicon

Ég vona svo innilega að þið fáið góðar fréttir í dag, ef einhver á það skilið þá eruð það þið og hún Þuríður litla.

Gangi ykkur rosalega vel og þið eruð öll í bænum mínum.

Kveðja

ein ókunnug 

Berglind Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 15:32

18 identicon

Bless this Little Child, Lord!

Lord, look down from heaven above

And touch this special child with love

Protect and guide this little one

Till each and every day is done.

Remind us often that it's true:

This little life is a gift from You.

A miracle You've sent our way!

Lord, bless this child today. 

Trúum á kraftaverk! 

Katrín Ösp og Ólöf Alda (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 16:33

19 identicon

Kæra fjölskylda við sendum ykkur hlýja strauma og vonum að fréttirnar verði góðar....Þið eruð alltaf ofarlega í huga okkar og við kveikjum á kertum fyrir litlu fallegu Þuríði Örnu

 Guð veri með ykkur.

Kær kveðja Helga Björg og co..

Helga Björg, Óskars og Sigrúnar Birtu mamma (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 17:48

20 identicon

Elsku fjölskylda hef hugsað til ykkar svo mikið í allan dag og held því áfram gangi ykkur vel.

kv. Inga

Inga Birna (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 18:44

21 identicon

Vona heitt og innilega að þið fáið góðar fréttir

Kveðja

Alma Hönnuvinkona

Alma (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 19:08

22 identicon

Þetta er líklegast í 25. skiptið sem ég lít hér inn síðan um hádegið  Alltaf með hnút í maganum en samt von í hjartanu, ykkur til handa. Best að kveikja á einu eða tveim kertum og spenna greiparnar betur saman !!

Ylfa Mist (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 19:27

23 identicon

Vonadi fengu þið góðar fréttir.

En ég vil senda ykkur stórt knús

Og þið eruð í bænum hjá mér.

Hulda Klara (ókunug) (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband