Leita í fréttum mbl.is

Örlítið af Maístjörnu minni....

Maístjarnan mín er ofsalega þreytt þessar vikurnar - þarf orðið að leggja sig á daginn og er samt sofnuð snemma á kvöldin þannig ég get alveg viðurkennt það að ég hafi pínu áhyggjur af henni enda búin að panta tíma fyrir hana hjá doktor Ólafi, er ekki alveg vissum að ég vilji bíða með rannsóknir frammí ágúst ef hún heldur svona áfram.  

Ég vaknaði t.d. í morgun við geðveik öskur en þá var hún að fá stóran krampa (tvo í röð) og varð svona líka hrædd.  HELV.... krampar alltaf hreint - nýbúið að stækka lyfjaskammtinn hennar, frekar erfitt að halda þeim niðri.

Hún bíður annars spennt eftir því að komast í sumarfrí en það eru bara þrír dagar eftir af skólanum og mikið rosalega ætlum við að njóta þess í sumar.  Stefnan tekin á að fara í annað umhverfi og leyfa henni að slappa af sem mest (og hinum líka) - erum komin með bústað í viku en það elskar hún.

Hún mun skipta um skóla í haust og fara í Klettaskóla sem hún er ROSAlega spennt fyrir - held að það verði bara góðar breytingar fyrir hana.  Eignast vini og finna að hún er sterk í einhverju.

Örlítið "update" af minni flottu Maístjörnu sem er nánast alltaf hamingjusöm þrátt fyrir allt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Eins og vanlega er ALLT gert til að létt henni lífið - skil vel að þú viljur flýta rannsókninni <3

Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.6.2013 kl. 14:02

2 identicon

Bara snilld að skipta um skóla,og frábært að hún er ROSAlega spennt fyrir því.

já elsku hetjan mun(vonandi) njóta sín þar,hefur mikið að gefa þessi flotta stúlka ykkar með nærveru sinni..

Njótið þess að skipta um umhverfi...það er hollt og gott.

Góðar óskir kæru vinir..

Halldór Jóh. (IP-tala skráð) 2.6.2013 kl. 15:07

3 identicon

knús og kram til ykkar og góðar óskir :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 3.6.2013 kl. 07:56

4 identicon

Góðar óskir til duglegu Maístjörnunnar og ykkar allra. Hafið það sem best og njótið sumarsins :)

Kristín (IP-tala skráð) 3.6.2013 kl. 18:05

5 identicon

Vonandi fer sumarfríið vel með hana og ykkur öll. Hugsa hlýlega til ykkar <3

Maja (IP-tala skráð) 3.6.2013 kl. 21:16

6 identicon

Elsku fallega hetjan ! vá hvað ég dáist að henni og ykkur :) leitt að heyra með alla krampana, vonandi kemst hún að í rannsóknum fljótlega. Og innilega til hamingju með 11 ára afmælið hennar um daginn :) og innilega til hamingju með fallega nafnið á litlu snúllunni ykkar - dásamlegt að öll systkinin hafi fengið svona flott hlutverk í skírninni :)

stórt knús á ykkur ! 

Sigrún Helgadóttir (IP-tala skráð) 4.6.2013 kl. 20:04

7 Smámynd: Guðrún unnur þórsdóttir

Guðrún unnur þórsdóttir, 5.6.2013 kl. 23:49

8 identicon

hæhæ bara rétt að kíkja .. vona að allt sé í lagi með Maístjörnuna ykkar og hún komist í rannsókn sem fyrst .

 Til hamingju með nafnið á litlu prinsessuni ..

 kærleiksknús að austan :)

Dagrún (IP-tala skráð) 12.6.2013 kl. 17:42

9 identicon

Leiðinlegt að heyra af krömpunum og þreytunni, vonandi kemst hún að í rannsóknum fljótlega, það er alltaf betra að vita hver staðan er.

Ég hef hins vegar fulla trú á baráttustyrk hennar og hef alltaf haft. Ég hef þó lagt það í vana minn, síðan ég fór að fylgjast með ykkur fyrst, að kveikja á kerti fyrir hana og fara með stutta bæn þegar ég skoða kirkjur á ferðalögum mínum erlendis.  Ég kveikti á einu í kirkjunni í Trier núna 30. maí sl.

 Trú, von og kærleikur - Helga

Helga (IP-tala skráð) 12.6.2013 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband