Leita í fréttum mbl.is

Smá update

Fyrir einhverjum vikum ætlaði ég að fara monta mig á því að það væru liðnir heilir 23 dagar frá síðasta krampa en það var eitthvað sem sagði mér ekki að gera það því daginn eftir byrjaði Maístjarnan mín að krampa og svo leið rúm vika þanga til næst.  ARGH!!  Ég lýg því ekki en það er ofsalega erfitt og sárt að horfa uppá hana í krampa því hún er svo hrædd og farin að öskra úr sér lungun þegar hún fær þá og maður getur ekkert gert fyrir hana nema vera til staðar og haldið í hendina hennar.  Ofsalega erfitt! 


Hún er nú samt búin að vera ágætlega hress í sumar - auðvidað koma dagar sem hún vill bara liggja og hvíla sem hún fær að sjálfsögðu. Hún er dugleg að kúpla sig útur hávaða og ef hún þreytt að leika þá fer hún bara inní herbergi og lokar sig af - hún finnur alveg þegar hún þarf hvíldina sem er gott.

Maístjarnan mín er að byrja í nýjum skóla í haust eða Klettaskóla sem við erum ofsalega spennt fyrir og ég veit að þar á hún eftir að eignast góða vini og njóta þess að vera sterki einstaklingurinn en ekki ALLTAF sú lakasta í öllu.  Ég er ofsalega spennt að sjá hana blómstra því ég veit að þarna á hún "heima".

Hún átti að fara í rannsóknir sínar í þessum mánuði en einsog margir vita þá er búið að vera "rugl" í gangi hjá geislafræðingunum svo rannsóknum hennar frestast frammí sept eða við tökum ekki annað í mál að hún fari í næsta mánuði því þá er liðið meira en hálft ár síðan síðast og ég læt ekki lengri tíma líða á milli en þegar hún greindist síðast þá liðu 9 mánuðir og hún var alveg að "renna út á tíma" með að leggjast undir gammahnífinn í Svíþjóð.

Litla DraumaDísin mín er búin að vera lasin eða dagur tvö í hita og sleni - mikið rosalega finnst manni alltaf erfitt þegar þau eru lasin sérstaklega þegar þau eru svona lítil en hún er rétt rúmlega þriggja mánaða.  Hún hefur ekki mikið leyft mömmu sinni að sofa síðan hún fæddist - vaknar mjög oft og sefur lítið sem ekkert á daginn og ég get alveg viðurkennt það að mamman á ekki mikið bensín eftir. 

Annars eru allir spenntir fyrir vetrinum og við farin að telja dagana í jólin enda okkar uppáhalds tími.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bestu kveðjur til ykkar allra kæra Áslaug.

Þorgerður (IP-tala skráð) 20.8.2013 kl. 20:49

2 identicon

Bið þess að allt gangi vel hjá ykkur, sérstaklega Maístjörnunni í nýja skólanum sínum :)

Kristín (IP-tala skráð) 21.8.2013 kl. 13:56

3 identicon

knús og kram og góðar kveðjur og ósk um að allt gangi vel :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 21.8.2013 kl. 21:17

4 identicon

Gangi ykkur allt í haginn góða fjölskylda  

Maja (IP-tala skráð) 23.8.2013 kl. 13:57

5 identicon

Duglegu þið!!!!!

Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 23.8.2013 kl. 17:48

6 identicon

Elsku ofur Áslaug.

Ofan á aðrar annir sefur minnstan í minni kantinum, ég átti eina svoleiðis fyrir 30 árum og ekki,annað en 10 ára englabarn með,en ég var oft alveg á tampi, hún grét reyndar mjög mikið. Þannig að ég skil alltaf minna og minna í því hvernig þú ferð að með þinn stóra fallega og kröftuga hóp.

Ég sé reyndar alltaf betur og betur hvers konar snillingur þú ert.

KNÚS í hús.

Sólveig (IP-tala skráð) 26.8.2013 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband