Leita í fréttum mbl.is

Mánuður rannsóknar

Maístjarnan mín er ofsalega hamingjusöm í nýja skólanum sínum - þar sem hún finnur sig sterka, er að leika við vinkonur í fríminútum sem hún þekkti ekki fyrir sem mér finnst BEST í heimi.  Hún er líka ofsalega þreytt þessa dagana, mikil viðbrigði að vera komin alltíeinu á fullt og þurfa vakna mjög snemma á morgnanna enda rotast hún um leið og hún leggst á koddann sinn á kvöldin.  Hún reyndar kvartar smávegis undan hausverk og mamman fær alltaf hnút í magann þegar það gerist enda mjög langt síðan hún fór síðast í rannsóknir sínar eða sjö mánuðir en hún á að fara næst 17.sept eða 24.sept.  En að sjálfsögðu kemur allt vel út en ekki hvað.Tounge

Konan var annars matgæðingur vikunnar í nýjasta tölublaði Vikunnar svo ef þig langar að eignast eitt eintak þá myndi ég hlaupa útí búð NÚNA áður en það verður uppseltWink.  Skemmtilegt að koma í einhverju blaði án þess að þurfa ræða veikindin - skemmtileg tilbreyting og gæti alveg hugsað mér að hafa þetta að venju þar að segja koma með uppskriftir vikulega.  Gaman að geta gleymt sér í eldhúsinu og elda góða kjúklíngarétti en ef þig vantar góða uppskrift af kjúkling þá endilega kíktu á www.vefeldhus.is en þar eru allir girnilegu réttirnir "mínir" en Holta kjúklingar hafa styrkt mig um kjúkling svo ég get glatt alla kjúklingaaðdáendur.  Ætla að reyna gera nýja rétti vikulega en krakkarnir mínir elska að smakka nýja rétti þess vegna er þetta líka svo gaman.

Verð svona í lokin að monta mig aðeins af snillingunum mínum:

Hérna er Gulldrengurinn minn á leiðinni í afmæli - hann elskar að klæða sig upp þrátt fyrir að elska líka að vera í fótboltagallanum allan daginn.  Þvílíkur töffari og hann veit alveg af því.

1175239_10151653913514611_735595663_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Gulldrengurinn minn var að keppa um helgina í svona líka skemmtilegu veðri eða þannig - þvílíkt drullumall í Mosó en honum gat ekki verið meira sama og stóð sig FRÁbærlega en ekki hvað.1230012_10201660728110217_41563678_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Hérna er DraumaDísin mín en hún varð fjagra mánaða á föstudaginn - eftir að hún lagaðist í mallakútnum sínum þá varð hún algjör DraumaDís þrátt fyrir að leyfa ekki mömmu sinni að sofa á nóttinni þá er hún bara svo yndisleg að það er ekki hægt að kvarta undan henni.1255200_10151651997254611_1332966348_n


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að heyra að Maístjarnan er ánægð í skólanum, það skiptir svo miklu máli. Skólabyrjunin er ekki allt of góð hjá mínum og það nístir mömmuhjartað.

Ég veit að allt gengur vel í rannsóknunum í september, en ekki hvað?  Skólabyrjun tekur mikið á og ekkert skrítið að vera þreyttur og fá smá hausverk...þekki það á mínum bæ.

Gulldrengurinn er ekkert smá flottur, hvort sem hann er í fótboltagallanum eða sparigallanum......getur verið að DraumaDísin sé líkust honum? ...mér sýnist það á þessum myndum.

Gangi ykkur allt í haginn - Helga

Helga (IP-tala skráð) 2.9.2013 kl. 21:40

2 identicon

Gott að heyra að það gengur vel í nýja skólanum. Það er nauðsynlegt

að eiga vini og leikfélaga. Gangi ykkur vel:-)

Steinunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 2.9.2013 kl. 21:46

3 identicon

Æðislegt að heyra að Maístjarnan sé ánægð í nýja skólanum sínum. Áframhaldandi góðar kveðjur til ykkar.

Birna S. Jónsdóttir (ókunnug) (IP-tala skráð) 3.9.2013 kl. 00:11

4 identicon

Frábært að heyra hvað Maístjarnan finnur sig vel í skólanum. Þetta verður mánuður góðra frétta elsku fjölskylda, gangi ykkur vel :)

Kristín (IP-tala skráð) 3.9.2013 kl. 16:51

5 identicon

góðar kveðjur til ykkar, yndisleg börnin ykkar, gullmolarnir, góðar óskir og gangi ykkur allt vel :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 3.9.2013 kl. 20:33

6 identicon

Dásamlegt að heyra að Stjarnan er ánægð í nýja skólanum og á vinkonur og passar í hópinn, þetta er það sem þarf. Hver þarf að passa þar sem hann er.

Þið eruð alger englafjölskylda Allir að standa sig svo vel og eru svo fallegir.

Bið Guð að gefa að þannig verði þar áfram

KNÚS

Sólveig (IP-tala skráð) 3.9.2013 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband