Leita í fréttum mbl.is

Afmælisstelpur

Ótrúlegt en satt þá er komið eitt ár og tíu ár síðan ég fæddi tvær af mínum fimm. Gekk þrettán daga framyfir með þá eldri en átti þá yngri þrettán dögum fyrir settan tíma - Var í sólarhring með verki með þá eldri en með þá yngri voru það fjórir tímar frá fyrstu verkjum, mjög svo ólíkar fæðingar.

Þær eru ofsalega líkar á margan hátt - opna sig ekki fyrir hverjum sem er, byrjuðu báðar að labba mjög snemma eða sú eldri níu mánaða en sú yngri tíu mánaða. Sú eldri dreymir um að sú yngri verði líka í fimleikum og er farin að þjálfan hana í kollhnís og kreppa tær - einsog mamman væri til í að hún myndi velja sér aðra íþrótt ehehe

Við fjölskyldan ætlum að fagna þessum flotta degi á Fabrikkunni í kvöld en Þuríður Arna fær líka smá snemmbúna afmællisveislu þar en hún á afmæli eftir 20 daga.

Hérna er ein af afmælissystrunum:
1491710_10152120308454611_5203572441237269662_n


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega til hamingju með flottu dömurnar ykkar <3

Kveðjur úr Trékyllisvíkinni

Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2014 kl. 10:30

2 identicon

Til hamingju með þessar flottu stelpur. Og með ferðina hjá vildarbörnum, alveg frábært að heyra það:-)

Steinunn (ókunnug) (IP-tala skráð) 30.4.2014 kl. 13:29

3 identicon

Ji hvað þær eru flottar! Til hamingju :)

Birna S. Jónsdóttir (ókunnug) (IP-tala skráð) 30.4.2014 kl. 14:31

4 identicon

Innilegar hamingjuóskir með flottu afmælisskotturnar, og hin börnin líka, ljúfar kveðjur og góðar óskir :)

Didda ókunn (IP-tala skráð) 30.4.2014 kl. 15:10

5 identicon

Til hamingju með flottu afmælisstelpurnar :)

Kristín (IP-tala skráð) 4.5.2014 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband