Leita í fréttum mbl.is

Tvær vikur

Ég áttaði  mig á því í gærkveldi að það eru bara tvær vikur í næstu niðurstöður, ohh boy!!  Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að kvíða fyrir eðurei?  Því náttúrlega úr síðustu niðurstöðum vissu þeir ekki hvort þetta væri stækkun eða bara svona miklar bólgur frá geislanum sem getur verið miklar líkur á þannig maður veit eiginlega ekki hvernig maður á að vera. 

Hún er að sjálfsögðu kraftaverk hún Þuríður mín, það er bara ótrúlegt hvað henni líður vel í dag og hvað hún er að taka miklu framförum sem engin skilur?  Með réttu ætti henni ekkert að líða svona en kraftaverkin gerast sem ég hef verið vitni afGrin.

Ég var líka að rifja það upp í huganum myndirnar af æxlinu, við fáum að sjálfsögðu að sjá myndirnar eftir hverja töku en síðast fengum við að sjá myndirnar frá því fyrir tveimur og hálfu ári og síðustu myndir og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað hefur verið mikil stækkun.  Vávh!!  Fyrstu myndirnar af æxlinu þá var það oggupínulítið reyndar alveg sjö cm eða eitthvað sem er reyndar mjög stórt í þessu litla höfði en síðast þakti það eiginlega bara yfir hann allan sem ég vona að mestu voru bólgur en það veit engin fyrr en eftir tvær vikur vonandi.  En einsog ég hef sagt þá viljum við frekar bíða alla ævi heldur en að fá erfiðar fréttir þannig ég verð ekkert alveg miður mín ef þeir eru ekki vissir eftir tvær vikur en samt vil ég fá GÓÐAR fréttir en engar fréttir eru góðar vil ég túlka allavega með Þuríði mína.

Þegar æxlið uppgvötaðist fyrst þá var það góðkynja og læknarnir sögðu að það ætti ekkert að breytast, gæti kanski breyst þegar hún væri orðin eldri en svo kom annað í ljós.  Þeir höfðu aldrei séð svona áður þess vegna gátu þeir heldur ekki greint hana alveg strax og svo er æxlið á versta stað þannig þeir geta aldrei tekið það nema hún verði fyrir miklu skaða alla sína ævi sem við viljum heldur ekki.

Í júní síðastliðin varð fyrsta breytingin á æxlinu en læknarnir hérna heima og læknarnir úti voru ekki sammála um hvort það væri að breytast í illkynja, þeir heima vildu meina að það væri stækkun til hins verra en þeir úti vildu meina að þetta væru bólgur frá lyfjameðferð en í það sinn höfðu okkar læknar rétt fyrir sér því verr og miður.  Ég gæti öskrað!!

Þuríður mín hefur sýnt og sannað að hún er ein af þessum kraftaverkum og ég ætla mér að trúa því þangað til annað kemur í ljós. 

Í lokin langar mig að senda kraftaverkaknús til einnar hetjunnar hérna til hliðar hennar Ástu Lovísu, þið megið alveg kveikja á kerti fyrir hana á kertasíðu hennar og senda henni kraftaverk.  Knús til þín Ásta mín, mikið ofsalega langar mig að gefa þér alvöru knús núna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Megi allar góðar vættir strjúka vanga hennar og lækna þannig meinin.

Það þarf styrk til að berjast bið Guð að styrkja ykkur fjölskylduna. 

Orð eru auðsögð en bæn heits hjarta nær oft alla leið.

Kveiki á kerti mínu ykkur til heilla.

Bjarni Kjartansson, 28.3.2007 kl. 10:02

2 identicon

Kæra fjölskylda.  Mikið er gaman að lesa að þuríður er mikið hressari og í raun bara kraftaverk hvað henni fer fram.  Óskum þess að framhald verði á því og þið eigið langan tíma saman í framtíðinni.

Guðrún

Guðrún Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 11:11

3 identicon

Kraftaverkaknús til ykkar og allra sem þurfa á því að halda. Þið hafið og verðið ávallt í bænum okkar. Knús, knús og kossar. Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 28.3.2007 kl. 21:31

4 identicon

Mikið er gott að heyra hvað Þuríður Arna er dugleg.

Biðjum til Guðs um að þið fáið góðar fréttir núna í apríl :-)

Kkv.

Martha og co

Martha Jörundsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 00:14

5 identicon

Það var gaman að lesa ferðasögu ykkar um daginn úr New York ferðinni en það er ennþá skemmtilegra að lesa hvað henni Þuríði líð vel þessa dagana. Skil vel blendnar tilfinningar og tilhlökkun/kvíða fyrir niðurstöðunum.  Endilega njótið í botn þessara daga sem Þuríði líður svona vel og vonandi er heilsufarið á hinum fjölskyldumeðlimum orðið gott líka.  Hafið það sem allra best um páskana.

kv.

Hrafnhildur Ýr

Hrafnhildur Ýr (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 08:50

6 Smámynd: Elsa Nielsen

Þuríður Arna er algjör hetja ;)

Hlakka til að sjá ykkur í kvöld!

Knús

Elsa Nielsen, 29.3.2007 kl. 09:20

7 identicon

Kæra Áslaug.

Þetta er bara alveg æðislegt að Þuríði skuli líða svona vel og það skulu vera framfarir. Nú er bara að trúa því að þetta sé komið til að vera. Við vonum svo innilega að eitthvað gott komi út úr næstu skoðun. Frábært, kannski er hið langþráða kraftaverk sé að fljúga í faðm hennar það vona ég.

Hún Ásta Lovísa er alveg einstök og er í bænum mínum bæði seint og snemma, ég blogga henni nánast á hverjum degi´. Hún er systir æskuvinkonu minnar sem er nú látinn.

Þuríður og Ásta Lovísa eru fallegar hetjur og alveg einstaklega duglegar í sinni baráttu. Óska ykkur öllum alls hins besta í komandi framtíð. Kveðja Sigga Ásgeirsd.

Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 17:19

8 Smámynd: Þórunn Eva

knús knús :) þið eruð hetjur i mínum augum...

koss og knús

Þórunn Eva , 30.3.2007 kl. 08:41

9 identicon

Það er ekki bara hún Þuríður Arna sem er kraftaverk af guðsnáð, þið eruð það líka, svona sterk og réttsýn sem þið eruð.

Vona að veikindin fari að lagast hjá ykkur, því nóg er það nú samt sem dynur á ykkur og þið þurfið á öllum ykkar kröftum að halda í þessu eilífa stríði........hugsum til ykkar

Helga og Unni

Helga Jónasdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband