Leita í fréttum mbl.is

2 daga seinkun

Það er búið að seinka myndatökunum hjá Þuríði minni um tvo daga eða þanga til 12.apríl og  niðurstöður föstudaginn 13, hmmmm á ég að vera hjátrúafull?  Það er nú í lagi að þeim seinkaði ekki meira en þetta en það skiptir svo sem engu við elskum að bíða eða þannig.  Einsog læknarnir segja við okkur eigum við bara að horfa á Þuríði og sjá hvernig henni líður og henni líður vel, hún er súper dugleg.  Hún var einmitt í sjúkraþjálfun í gær og hún er meira að segja farin að þrauka klukkutíma í þjálfun sem er æði, hún líka hjólað smá í þjálfuninni sem hefur ALDREI gerstGrin.  Reyndar var það með smá hjálp þar að segja hún er föst við petalana en sjúkraþjálfarinn ætlar að panta svoleiðis handa henni hjá TR þannig stúlkan getur farið út að hjóla í sumar þar að segja ef foreldrarnir gefi henni hjól í afmælisgjöf thíhí!!  En Þuríður mín hefur aldrei haft krafta í að hjóla en með þessari aðstoð getur hún vonandi hjólað og það verður gaman hjá henni í sumar, víííí!!  Kanski við fjölskyldan kaupum okkur hjól og hjólum hér í sveitinni í sumar? 

Annars er flensna ennþá hér í sveitinni og það er sko alveg komið nóg, Theodór minn búinn að vera með hita í sex daga og það ekkert lágan eða milli 39-40, grrrrr!!  Fór með hann til doktor Þuríðar í gær og þar voru teknar blóðprufur til að ath hvort þetta væri eitthvað alvarlegra en flensan en sem betur fer var það ekki.  Drengurinn fer þá ekki í fermingarveisluna hjá honum Sindra Snæ okkarFrown en tengdó ætlar að vera svo æðisleg að sitja hjá honum á meðan við hinum knúsum hann og borðum góðar kræsingar. slurp slurp! Vonandi verður hann orðinn hitalaus á morgun svo hann komist í næstu veislu.  Dóóhh!!

Börnin hefðu átt að fara í næturpössun á morgun þar sem þau fóru ekki síðustu en það verður víst ekkert úr því vegna veikinda en Oddný mín Erla fær nú samt að gista hjá Evu sætu mús frænku og leyfa þeim frænkum aðeins að rífast thíhí!!  En við Skari erum að fara í þrídugsafmæli (þá eru þau að byrja) en munum þá bara í staðin stoppa styttra, vonum bara að þessi flensa verði farin fyrir páska en þá ætlum við fjölskyldan að fara í sveitina, skoða dýrin og hafa það gaman.Halo

Ætli ég fari ekki að sinna lasarasnum mínum sem er orðinn versti mömmukarl ever, má ekki líta af mér þá verður hann alveg snar.  Hann liggur hérna hjá mér og segir "mamma" svona öðru hvoru en þá vill hann athygli þessi dekurrófa eheh!!  Best að fara dekra við hann og góða helgi alle sammen.  Njótið hennar í botn!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórunn Eva

föstudagurinn 13 er nú bara happadagur hjá sumum vonandi verður það hjá ykkur líka :)

koss og knús

Þórunn Eva , 30.3.2007 kl. 11:15

2 identicon

oh. við vorum búin að hlakka svo til að sjá Tedda gæjann í jakkafötunum í fermingunni.  Hlökkum til að sjá ykkur hin.

 kv. Linda og strákarnir

Linda Arilíusdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 12:49

3 identicon

Ég segji arg og garg við þessari flensu endalaust. Munurinn á þinni og minni flensu er að ég berst við uppúr og niðrúr. Alveg komin með nóg af þessum slappleika og sleni. Allir verða að vera komnir í form fyrir páska. Borðið á ykkur gat og skemmtið ykkur vel í veislum. Bið fyrir ykkur.  Það verður frábært að hjóla þarna í sveitinni hjá ykkur í sumar. ;) Knús og kossar. Kristín Amelía.

Kristín Amelía (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 16:33

4 identicon

13 er lukkutala í minni fjölskyldu (t.d. barnsfæðingar borið upp á þennan dag) og ég hef orðið vör við að föstudagurinn 13. er yfirleitt alveg súperdagur hjá mér  Óska ykkur þess sama - þið eigið það svo innilega skilið. Eigið góða helgi og vonandi fer stubbnum að batna.

Ólöf (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 18:06

5 identicon

góða helgi mín kæra og gangi ykkur vel

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 19:47

6 identicon

Hann Skari minn var þrettánda barnið sem fæddist á Akranesi árið 1973  (reyndar ekki á föstudegi) og síðan þá hefur talan 13 verið ein af mínum uppáhalds tölum Nú halda allir áfram að biðja og kveikja á kertum fyrir litlu elskuna okkar amma trúir ennþá á kraftaverk  Guð gefi ykkur góða nótt. am

mamma (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 21:56

7 identicon

13 er líka ein af mínum uppáhaldstölum. Hefur aldrei haft vonda merkingu svo ég viti

Eigið góða helgi elskurnar og knús til ykkar allra af votvirðasömum vestfjörðunum.

Ylfa (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband